
FULLT TUNGL Í LJÓNI 2025
Tunglið verður fullt þann 12. febrúar, en líkur eru á að flestir dagar í þessari viku verði fullir af skyndilegum og óvæntum atburðum, hugsanlegum jarðskjálftum,

Tunglið verður fullt þann 12. febrúar, en líkur eru á að flestir dagar í þessari viku verði fullir af skyndilegum og óvæntum atburðum, hugsanlegum jarðskjálftum,

Þann 29. janúar næstkomandi kveiknar nýtt Tungl og samhliða því fagna Kínverjar nýju ári. Árið framundan er ár Snáksins. Það kemur til með að verða ár róttækra breytinga, aðlögunar og úthalds og kalla fram hjá okkur sjálfum eiginleika eins og aðlögunarhæfni, greind, hæfni til að finna nýjar lausnir svo og aukið sjálfstraust.

Þetta er fyrsta nýja Tungl ársins, því árið byrjaði með fullu Tungli þann 13. janúar. Sól og Tungl eru alltaf í samstöðu á nýju Tungli, í þetta sinn á níu gráðum í Vatnsbera. Í samstöðu við þau eru svo Merkúr á tveimur gráðum og Plútó á tæplega tveimur gráðum eða einni gráðu og fimmtíu og sex mínútum. Þetta nýja Tungl markar líka upphafið að nýju ári hjá kínverjum, því ár Snáksins hefst þann 29. janúar.

Tunglið verður fullt á 24 gráðum í Krabba klukkan 22:27 í dag, þann 13. janúar og er þetta Tungl ársins gjarnan kallað Úlfatunglið. Þar sem fullt Tungl er hámark hringrásar Tunglsins og Krabbinn stjórnar Tunglinu, er líklegt að tilfinningar hjá fólki verði í hámarki í dag.

Þetta ár gefur fyrirheit um að verða öðruvísi en öll önnur ár hingað til og við sem höfum verið að bíða óþolinmóð undanfarin ár eftir því að eitthvað breytist og að fleiri vakni til vitndar um vitundarbreytinguna miklu þurfum ekki að bíða lengur. Við verðum væntanlega jafn undrandi og margir aðrir yfir þeim uppljóstrunum og umbreytingum, sem eiga eftir að verða á árinu og eru þegar að byrjaðar að koma fram.

Sumir kalla þetta nýja TUNGL þann 30. desember “Myrka Tunglið”, en þetta er annað nýja Tunglið í þessum mánuði. Hið fyrra var 1. desember.

Það verður nýr vendipunktur í orkuflæðinu þann 21. desember, því þá verða Vetrarsólstöður klukkan 09:21 hér á landi. Vetrar- og sumarsólstöður, svo og jafndægur á vori og hausti er mikilvægir tímapunktar, því þeir virka eins og bakgrunnur fyrir næstu þrjá mánuði sem á eftir fylgja.

Tunglið nær fyllingu sinni í merki Tvíburanna í dag klukkan 09:02, en á fullu Tungli eru Sól og Tungl í andstöðu, svo Sólin er í Bogmanni. Hér áður fyrir var þetta kallað „kalda Tunglið“.

Þann 7. desember 2024 breytir Mars um stefnu á sex gráðum í Ljóni til að fara aftur á bak. Mars verður í þessu aftur á bak ferli í næstum þrjá mánuði…

Nýja Tunglið í Bogmanni kveiknar sunnudaginn 1. desember, en í desember gerist sá frekar sjaldgæfi atburður að það verða tvö ný Tungl, annað í upphafi mánaðar og hitt undir lok hans. Bogmaðurinn er hress, einlægur, elskan sannleikann og vill réttlæti, auk þess sem hann er sífellt leitandi.