Ég bíð upp á einkaráðgjöf, eins og ég kalla það þótt ég sé lærð sem markþjálfi. Ég skoða stjörnukort þeirra sem til mín leita í ráðgjöf til að geta hjálpað þeim að nýta styrkleika sína, skynja hvar breytingar eru að eiga sér stað í lífi þeirra út frá afstöðu plánetanna hverju sinni og úr hverju þeir þurfa að vinna til að geta náð betri árangri í lífinu.

Margir leita til mín eftir heilsu- og lífsstílsráðgjöf, enda hef ég verið með heilsutengd námskeið í 35 ár.

Aðrir standa á tímamótum í eigin lífi og leita eftir aðstoð við að velja kærleiksríkari leið inn í framtíðina.

Enn aðrir eiga erfiða áfallasögu og tilfinningamál að baki og þá veiti ég aðstoð við úrvinnslu þeirra, meðal annars með því að „lesa“ hvar áföllin eru að halda aftur af fólki og meta hvaða leiðir er hægt að fara til að vinna úr því ferli, en við slíka vinnu skoða ég meðal annars fjölskyldusöguna. 

Alger trúnaður og virðing ríkir í samskiptum mínum við þá sem til mín leita.
Hvert viðtal er 60 mínútur og öll viðtöl fara fram í gegnum Zoom fundi. 

Smelltu hér til að bóka 15 mínútna ókeypis kynningarviðtal!

Ekkert magn af eftirsjá breytir fortíðinni!

Ekkert magn af kvíða breytir framtíðinni!

En sérhver ögn af þakklæti breytir nútíðinni!

image_print