Skilmálar viðskipta í vefverslun

 

Fyrirtæki
G. Bergmann ehf.
Kt. 450265-0129
VSK nr. 12189
Nethyl 2A
112 Reykjavík
s. 698 3815
gb@gudrunbergmann.is

Almennt
G. Bergmann ehf. áskilur sér rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir án nokkurs sérstaks fyrirvara.

Afhending vöru
Allar vörur, fyrir utan námskeið og einkatíma, eru afgreiddar næsta virka dag eftir að pöntun berst. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu og sendingarkostnað vörunnar. G. Bergmann ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá G. Bergmann ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Greiðslur
Hægt er að greiða með kortum, í gegnum greiðslusíðu KORTA.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaup á vörum, að undanskildum námskeiðum, að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við G. Bergmann ehf. á netfanginu gb@gudrunbergmann.is ef einhver vandamál koma upp.

Námskeið fást ekki endurgreidd, nema leiðbeinandi felli þau sjálfur niður af einhverjum óviðráðanlegum orsökum. Þá fæst námskeiðsgjaldið endurgreitt að frádregnum 5% umsýslukostnaði. Geti kaupandi ekki geta mætt á það námskeið sem hann er skráður á, hefur hann kost á að skrá sig á annað af næstu tveimur námskeiðum á dagskrá.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld
Öll virðisaukaskyld verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

 

image_print
Deila áfram