Plánetur himinhvolfsins eru alltaf á stöðugri hreyfingu og hafa áhrif á líf okkar á ýmsan máta. Á fyrsta degi september stöðvaðist Satúrnus til að breyta um stefnu og fara aftur inn í Fiskanna. Plánetan kemur til með að vera í Fiskunum fram í miðjan febrúar 2026. Í þessu kyrrláta og viðkvæma merki og kemur Satúrnus til með að vekja athygli okkar á því að við þurfum að “sleppa takinu” á og hætta að láta trufla okkur.
Þessi tilflutningur Satúrnusar aftur inn á síðusta gráðuna í Fiskunum, en hún er almennt gráðan sem hjálpar okkur af fara yfir og sjá hvort við höfum “gleymt” einhverju, getur valdið nokkurri óvissu, sérstaklega ef fólk er þegar að vinna af áhuga að nýrri byrjun. Einmitt þess vegna er mikilvægt að endurskoða markmið sín og aðferðir, því þær verða að vera í samræmi við nýju orkuna. Sýndið ykkur þolinmæði og hafið kjark til að byrja upp á nýtt ef þörf krefur.
MERKÚR Í MEYJUNNI
Merkúr fer inn í Meyjuna þann 2. september. Hann kemur til með að vera algjörlega í essinu sínu þær tvær vikur sem hann verður þar – og mun stuðla að kerfisbundinni og greiningarlegri nálgun á hlutunum.
Þann 3. september myndar hann 90 gráðu spennuafstöðu við Úranus og dvergplánetuna Sedna, sem eru á fremstu gráðunni í Tvíburunum. Sedna er að hjálpa okkur að losna úr “fórnarlambs” hlutverkinu og umbreytast yfir í aukna vitundarvakningu. Úranus gæti hins haft þau áhrif að hringekjan í hugum okkar (eða hamsturshjólið) snúist hraðar en venjulega, sem gerir okkur erfitt fyrir að viðhalda yfirsýn. Haldið fótunum föstum á Jörðinni á þessum degi og takið engar mikilvægar ákvarðanir í skyndi.

Júpiter í Krabba verður á þessum degi líka í 180 gráðu spennuafstöðu við Tungl kortsins. Útþensla Júpiters gæti verið að þrýsta á okkur að sleppa tökum á gömlum hugsana- og hegðunarmynstrum í eigin lífi, en þrjóskan í Steingeitinni heldur fast í sitt og gæti lent í vanda með það.
MARS Í VOG
Mars í Voginni verður í 90 gráðu spennuafstöðu við Júpíter í Krabba þann 5. september. Þessi skapandi og frjósama spennuafstaða gæti nýst þér vel, til að uppfylla einlæga ósk fyrir sjálfan þig eða einhvern annan. Hún ýtir einnig undir listsköpun. Þessi töfrandi tími hentar vel fyrir alls kyns framkvæmdir.
ÚRANUS BYRJAR AÐ BAKKA
Þann 6. september stöðvast Úranus, til að breyta um stefnu og fara aftur inn í Nautið, en þar mun hann vera fram í byrjun febrúar árið 2026. Fyrst bakkar hann í gegnum Tvíburana, en þann 9. nóvember kemur hann til með að fara aftur inn í Nautið. Á þessum tíma þurfum við að endurskoða nokkra af vaxtarhvötum síðustu tveggja mánaða til að kanna hvort þeir séu hagnýtir og aðlaga þróunarhraða þeirra að raunverulegum möguleikum.
ALMYRKVI Á TUNGLI
Þann 7. september verður Tunglið fullt í Fiskunum. Þessu fulla ofurtungli fylgir líka almyrkvi á Tungli, en þetta Tungl ársins kallast gjarnan Blóðmáni. Á þessu fulla Tungli eru Sól og Tungli í 180 gráðu spennuafstöðu hvort við annað, sem þýðir að Sólin er í Meyjunni. Þessi öxull milli merkjanna kallast „Heilsuöxullinn“ en Meyjan tengist mjög meltingarveginum okkar. Það er því mikilvægt að hlusta á skilaboð hans – og fara eftir þeim.
Gæði tímans eru gegnsæ og lúmsk og kalla á að við einbeitum okkur að því nauðsynlegasta. Á þessum tíma er gott að veita sérstaka athygli þeim hugsunamynstrum sem við leyfum að taka völdin, sérstaklega ef þau vekja upp efasemdir og ótta. Forðist meðvitað streitu eða rifrildi á þessum degi og leyfið ykkur frekar langa þagnarstund.
Heimildir: Astrodienst
Mynd: Kort af plánetuafstöðu í Reykjavík 3. September kl. 12 á hádegi
Mynd: Shutterstock.com
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar29. nóvember, 2025ÁHRIF PLÁNETANNA Á NÆSTUNNI
Greinar23. nóvember, 2025GÍFURLEGT ÞRÓUNARSTÖKK
Greinar20. nóvember, 2025MIKILVÆGASTA TUNGL ÁRSINS
Greinar13. nóvember, 2025HÆKKANDI TÍÐNI KÆRLEIKA

