Ég setti inn greinina FYRSTU 7 DAGAR SEPTEMBER fyrir rúmri viku síðan og ætla hér að renna yfir helstu hápunkta í stjörnuspekinni í síðari hluta september.
MERKÚR OG SATÚRNUS
Þann 17. september verður Merkúr í nákvæmri 180 gráðu andstöðu við Satúrnus þegar hann fer inn í Vogina. Þann 18. og 19. september verður hann í 180 gráðu andstöðu (spenna) við Neptúnus og níutíu gráðu afstöðu (spenna) við Úranus í Tvíburunum og Plútó í Vatnsberanum.
Við það myndast nokkurs konar flugdreki í kortunum, sem styður við allar tegundir samskipta. Þetta er góður tími til alvarlegra samningaviðræðna, að hefja diplómatísk verkefni eða kynna ný tilboð. En verið á varðbergi: Allar stórbrotnar yfirlýsingar kalla á varúð. Á þessu tímabili er gott að íhuga vandlega við hvað eða hverja við erum í samskiptum við og gæta okkar á óeinlægni. Sólin mun endurvirkja flugdrekamyndina nokkrum dögum síðar og afhjúpa marga falska leiki.
UPPÖRVUN ANDANS
Þann 19. september fer Venus inn í Meyjuna og lendir degi síðar í 90 gráðu spennuafstöðu við Úranus. Þeirri afstöðu getur fylgt uppörvun andans og við gætum orðið mjög opinn fyrir nýjum hugmyndum. Í samböndum gæti þessi afstaða leitt til truflana, en einnig til kærkominnar endurlífgunar. Sumir gætu fundið fyrir meiri viðkvæmni en venjulega.

NÝTT TUNGL Í MEYJU
Þann 21. september verður nýtt Tungl og Sólmyrkvi á síðustu gráðunni Meyju. Þetta er annað nýja Tunglið í Meyju, en hið fyrra kviknaði 23. ágúst. Tunglið er í 180 gráðu spennuafstöðu við Satúrnus og Neptúnus og myndar 90 gráðu spennuafstöðu við Úranus og Plútó. Nákvæma flugdrekamyndin sem myndaðist með afstöðum við Merkúr fyrir nokkrum dögum birtist nú aftur.
Þessu nýja Tungli gætu fylgt ýmsar áskoranir, jafnvel þó að flugdrekamyndin gefi til kynna möguleika á samhljóða afstöðum. Til þess að eitthvað nýtt komi fram verður hið gamla og úrelta að víkja. Án framtíðarsýnar getur þetta táknað áhyggjuferli.
JAFNDÆGUR Á HAUSTI
Degi síðar fer Sólin inn í Vogina (jafndægur að hausti) og nær nákvæmri andstöðu (spenna) við Neptúnus þann 23. september og nákvæmri 120 gráðu samhljóma afstöðu við Úranus og Plútó þann 24. september.
Mars fer inn í Sporðdrekann þann 22. september verður í 90 gráðu spennuafstöðu við Plútó þann 24. september. Þessi afstaða getur þýtt uppljóstranir á djúpum leyndarmálum og átök og/eða nðurbrot á því sem er ekki lengur að virka.
Sól og Tung eru í 180 gráðu spennuafstöðu við Satúrnusar og Neptúnus. Þeirri afstöðu getur fylgt óreiða og ruglingur. Hlutir sem hafa virkað vel hingað til geta skyndilega hætt að virka, án þess að fyrir því séu augljósar ástæður. Aðlögun nýrra ferla krefst þolinmæði og athygli, hvort sem er í daglegu lífi eða viðskiptamálum.
ENDALOK OG NÝTT UPPHAF
Spennan milli Mars og Plútós gefur til kynna þörf á að sleppa óþarfa þáttum/hlutum, sjálfrátt eða ósjálfrátt. Heilsufarsmál eru einnig í brennidepli á þessum tíma. Gættu sérstaklega að hollu mataræði núna.
Taktu þér nægan tíma til að taka ákvarðanir á þessu tímabili og láttu ekki streitu eða ótta setja þrýsting á þig. Þetta er góður tími til að skoða hvar þú ert að leggja óþarflega mikið á þig í samböndum, viðskiptum eða öðru, sem þjónar þér í raun ekki lengur. Ef þú kemur auga á slíkt í lífi þínu geturðu meðvitað sleppt tökunum á því og skapað rými þar sem fræin fyrir eitthvað nýtt geta fundið bestu skilyrði til að spýra og vaxa.
ATH! Ef þú átt ekki nú þegar stjörnukort geturðu pantað þér kort með 20% afslætti út september með því að SMELLA HÉR
Heimildir: Astrodienst
Mynd: Kort af nýju Tungli í Meyju 21.09.25 – og mynd frá Shutterstock.com
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar2. mars, 2026FYRRI HLUTI MARS 2026
Greinar24. febrúar, 2026ÖFLUGAR AFSTÖÐUR PLÁNETANNA
Greinar22. febrúar, 2026222 ORKUHLIÐIÐ
Greinar20. febrúar, 2026SATÚRNUS OG NEPTÚNUS Í SAMSTÖÐU
