21. OKTÓBER ER ÖFLUGUR DAGUR

Í dag verður Tunglið nýtt á 28 gráðum og 22 mínútum í Voginni. Skoðaðu hvar þessi staða lendir í þínu stjörnukorti og mundu að setja þér nýjan ásetning, allt eftir því í hvaða húsi kortsins 28 gráður í Vog lenda í stjörnukortinu þínu. Hvaða nýju fræjum ætlarðu að sá sem líklegt er að blómstri í lífi þínu í byrjun apríl 2026 þegar Tunglið verður fullt í Voginni?

Hugsaðu sérstaklega um tengslanet þitt líka, því það gæti fengið þig til að gera þér grein fyrir að þú sért að vaxa upp úr sumum samskiptum þínum og færast yfir í ný tengsl.

Kort fyrir nýtt Tungl í Reykjavík 21.10.2025

ÖFLUGUR DAGUR

Dagurinn í dag er öflugur dagur þar sem við erum ekki aðeins með nýtt Tungl, heldur er Jörðin í beinni línu við Sólina og 3I Atlas. Þess vegna munu engir sjónaukar frá Jörðinni geta séð 3I Atlas, þar sem það verður á bak við Sólina. Við munum því ekki fá aðra skýra mælingu á stjarnfræðilegri stöðu 3I Atals fyrr en seint í nóvember. Samkvæmt fréttum í gær, kom fram að það hafi dregið verulega úr hraða 3I Atals, sem er mjög sérkennilegt fyrir hnött/geimfar sem er á náttúrulegri á braut þaðan sem honum/því var skotið.

Í dag er halastjarnan R2 Swan líka komin það næsta sem hún verður Jörðinni og enginn veit hvaða áhrif það mun hafa.

SPENNANDI TÍMAR

Báðir þessir óvenjulegu hnettir eru í sterkum afstöðum á himninum. Við gætum því átt von á meiri sveiflum í rafsegulsviðinu í þessari viku, meiri sólvirkni og/eða jarðskjálftavirkni – auk þess sem fólk er að upplifa svo ótal margt í gegnum drauma sína og aukna vitundarvakningu.

Þetta er sannarlega mjög spennandi tími í sögu okkar. Verið róleg og haldið innri ró og bjóðið velkomna þá hátíðni ljóskóða sem nú streyma yfir Jörðina okkar.

VILTU STUÐNING? ÞEIR SEM HAFA ÁHUGA Á AÐ FÁ LEIÐBEININGAR UM ÞAÐ HVERNIG BEST ER AÐ TAKA Á MÓTI ÞESSARI ORKU OG VINNA AÐ EIGIN „HÆKKUN“ GETA SKOÐAÐ NÁMSKEIÐIÐ: INN Í HÆKKANDI TÍÐNI

Heimild: Þýðing á pósti af Facebook síðu Pam Gregory
Mynd: Stjörnukort fyrir nýja Tunglið og mynd af shutterstock.com
Stjörnukort: Ef þú átt ekki stjörnukort geturðu panta þér kort með því að SMELLA HÉR

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN