Stjörnukort

AUKINN SKILNINGUR Á ORKUNNI ÞINNI ✨

Viltu skilja sjálfa(n) þig betur, sjá mynstrin í lífi þínu og tengjast orkuflæðinu sem er að móta vegferð þína? Stjörnukortið þitt er lykill að því.

Ég býð upp á persónuleg stjörnukort ásamt örnámskeiði í gegnum Zoom, þar sem ég kenni þér að lesa úr kortinu þínu og skilja hvernig orkan er að vinna með þér – og fyrir þig. Námskeiðið er hægt að taka upp svo þú getir hlustað aftur og aftur, á þínum eigin tíma.

✨ Stjörnukort sem fara dýpra

Í hefðbundnum stjörnukortum eru oftast einungis tíu plánetur (þær „gömlu“) teknar með. Í kortunum sem ég geri vinn ég bæði með persónulegu pláneturnar og dvergpláneturnar – nýju pláneturnar úr Kuiper-beltinu, sem opna fyrir dýpri vitund, umbreytingu og ótakmarkaða möguleika.

Dvergpláneturnar voru uppgötvaðar í kringum árið 2000 og tengjast þeim miklu breytingum sem mannkynið er að ganga í gegnum núna og eru að víkka vitund okkar. Orka þeirra styður okkur í að hækka tíðni okkar, losa um gömul mynstur og stíga inn í meiri skýrleika og kraft.

✨ ÞITT KORT – ÞÍN VEGFERÐ

Með stjörnukortinu þínu:

  • kynnist þú sjálfri(um) þér á dýpri máta
  • færð betri innsýn í styrkleika þína, áskoranir og lífsverkefni
  • lærir að fylgjast með hreyfingum plánetanna og skilja hvernig þær eru að hafa áhrif á líf þitt hverju sinni – út frá húsum og plánetum í þínu persónulega korti

Þetta er öflugt verkfæri til sjálfsvinnu, meðvitundar og ákvarðanatöku.

✨ Veldu pakkann sem hentar þér:

GULLPAKKI
– 75 mínútna örnámskeið
– Ýtarlegri lestur, dýpri útskýringar og meiri innsýn í orkuna sem er að móta líf þitt

Verð: 27.770 kr.*

SILFURPAKKI
– 50 mínútna örnámskeið
– Grunnlestur og skýringar á stjörnukortinu þínu

Verð: 22.220 kr.*

πŸ“Œ Mikilvægt:
Þegar þú pantar stjörnukortið þitt, mundu þá að skrá:

  • fæðingardag
  • fæðingarár
  • fæðingartíma
  • fæðingarstað

í athugasemdadálkinn á greiðslusíðunni.

πŸ’³ Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða með debet- og kreditkorti.
Ef þú ert með NETGÍRÓ geturðu dreift greiðslunum vaxtalaust í 2–3 mánuði.

* ATH! Stjörnukortin fást ekki endurgreidd

 

UMSAGNIR

β€žLestur Guðrúnar í stjörnukortið mitt kom skemmtilega á óvart. Hún las mig eins og bók út frá kortinu þar sem innsæi hennar er greinilega mjög sterkt. 
– Signý Jóna Hreinsdóttir

β€žTakk kærlega Guðrún fyrir skemmtilegan, fróðlegan og greinargóðan lestur úr stjörnukortinu mínu. Eftir hann átta ég mig svo vel á því hvað pláneturnar eru að hafa mikil áhrif á allt í lífinu. 
– Fjóla I. Kjartansdóttir – Jógakennari

 

β€žÞað var frábært að fá stjörnukort hjá þér kæra Guðrún. Örnámskeiðið var magnað og þú náðir að lýsa fullkomlega því sem er að gerast í mínu lífi núna. Ég mæli eindregið með því að fólk fái sér stjörnukort frá þér.β€ž

– Birgitta Hrönn Halldórsdóttir, rithöfundur og Reiki meistari

 

Ég mæli með henni Guðrúnu Bergmann. Ég skildi sjálfa mig betur og vissi hvað ég gat gert til að leysa það sem þurfti að leysa. Ég sé ekki eftir að hafa látið gera stjörnukort fyrir mig. 
– Jóhanna í Spákofanum

 

β€žÉg er svo ánægð með stjörnukortið mitt og örnámskeiðið sem fylgdi í kaupunum. Það gaf mér betri sýn á sjálfa mig og líf mitt.  Mæli mjög mikið með stjörnukortunum frá henni.β€œ
– Guðrún S. Svanbergsdóttir – Reikimeistari og Englareiki heilari

 

β€žÉg var mjög ánægð með örnámskeiðið. Skýringarnar voru vel fram settar og á skemmtilegan hátt. Guðrún hefur líka næmleika sem hefur mikið vægi í skýringunum að mér finnst. Hún er líka með skemmtilega og góða nærveru. Mæli hiklaust með stjörnukortum frá henni. Fór mjög sátt, glöð og uppfull af góðum ábendingum frá viðtalinu.β€œ

– Sigrún Inga Birgisdóttir, heilari og hómópati

 

*ATH! Ekki er hægt að fá stjörnukortin og örnámskeiðið endurgreitt.

 

image_print