NÝTT TUNGL Í MEYJU

Þann 23. ágúst, klukkan 06:06 að morgni hér á landi kviknaði nýtt Tungl. Eins og alltaf eru Sól og Tungl í samstöðu á nýju Tungli, í þessu tilviki á núll gráðu og 23 mínútum í Meyju. Sól og Tungl eru því í 90 gráðu spennuafstöðu við Úranus og dvergplánetuna Sedna, en þær plánetur eru á rúmlega einni gráðu í Tvíburum.

Sól og Tungl eru í tólfta húsi í kortinu fyrir Reykjavík, en tólfta húsið tengist stjórvöldum og stórum stofnunum og ýmsu sem þarf að gera þar upp – og svo endalokum hluta. Pláneturnar Úranus og Sedna búa hins vegar yfir þeirri orku að fletta ofan af hlutum og ýta þeim upp á yfirborðið, stundum með látum, því Úranus býr yfir spengikrafti.

SAMHLJÓMA AFSTÖÐUR

Ágúst er mánuðirnn þar sem samhljóma afstaðan á milli Úranusar og Sedna fremst í Tvíburunum myndar 120 gráðu samhljóma afstöðu við Plútó fremst í Vatnsberanum og svo sextíu gráðu samhljóma afstöðu við Satúrnus og Neptúnus fremst í Hrútnum.  Sextíu gráðu afstaðan er táknræn fyrir ný tækifæri og breytingar. Satúrnus er táknrænn fyrir hið gamla og Úranus fyrir hið nýja, fyrir umbreytingar og uppreisn, endurskipulag og nýjar leiðir.

Þessi afstaða veitir okkur tækifæri til að fara úr hinu gamla yfir í hið nýja. Nokkkuð nákvæm sextíu gráðu afstaða varð á milli Satúrnusar og Úranusar hinn 12. ágúst, en áhrifanna gætir áfram. Nú er því tækifæri til að skoða hvar ný tækifæri liggja.

Þann 28. ágúst verður nákvæm sextíu gráðu afstaða á milli Úranusar og Neptúnusar. Samstaða þessara plánetna varð árið 1993, en ferlið frá einni samstöðu til þeirrar  næstu tekur 171 ár. Um svipað leyti og samstaðan varð árið 1993 byrjaði internetið að opnast fyrir almenningi. Þeir sem fæddir voru á þessu tímabili eru nú í kringum þrítugt, farnir að stíga inn í mikilvægar stöður í samfélögum heimsins, með allt aðra skoðun á heiminum en sú kynslóð sem á undan kom, svo þeir eru líklegir til að vera tilbúnir til að umbylta heiminum.

TÍMI ENDURMATS

Síðar í þessum mánuði halda Satúrnus, Neptúnus og Úranus áfram bakka inn í merkin sem þessar plánetur voru í þar til fyrr á þessu ári. Satúrnus fer aftur inn í Fiskana þann 1. september. Neptúnus eltir Satúrnus inn í Fiskana þann 22. október – og Úranus fer aftur inn í Nautið þann 8. nóvember. Þetta ferli plánetanna inn á tuttugustu og níundu gráðu merkjanna veitir okkur tækifæri til endurmats og uppgjörs á öllu því sem ekki var lokið við að gera upp í viðkomandi merkjum. Jafnframt veitir þð okkur tækifæri til að skoða enn betur hvar áhugasvið okkar liggur og hvaða skilaboð við erum að fá fyrir nýja framtíð.

Við eigum möguleika á að eygja hið nýja – að minnsta kosti í huganum, en við þurfum að vanda valið vel og vera mjög meðvituð um hvert ákvarðanir okkar leiða okkur. Gæta þess að hafa stjórn á bæði hugsunum okkar og orðum. Oft tekst okkur að hafa orðin okkar jákvæð, en hugsanir okkar geta hins vegar malað í neikvæða átt.

Pam Gregory stjörnuspekingur gefur þau ráð að finna tvö eða þrjú jákvæð orð, sem við hugsum eða segjum upphátt þegar hugurinn leiðir okkur af leið. Jákvæð orð eyða þá út neikvæðum hugsunum og reyndar orðum líka.

TVÖ NÝ TUNGL Í MEYJU

Nýja Tunglið núna þann 23. ágúst er annað af tveimur nýjum Tunglum í Meyju á rétt um 30 dögum. Hitt verður þann 21. september á jafndægrum á hausti, en þá verður líka Sólmyrkvi á 29 gráðum í Meyju. Ný Tungl og myrkvar boða alltaf nýtt upphaf eða breytingar, svo það er frábært að setja sér markmið á nýju Tungli.

Meyjan tengist mjög hinu daglega í lífi okkar og henni er stjórnað af Merkúr. Meyjan vill gjarnan hafa allt í röð og reglu og er tilbúin til að hjálpa öðrum á praktískan máta. Meyjan er líka mjög tengd heilsu líkamans, einkum heilsu meltingarvegarins og heilsusamlegri næringu.

TENGINGIN VIÐ NEPTÚNUS

Samstaðan á milli Satúrnusar og Neptúnusar á núll og fyrstu gráðu í Hrútnum, er táknræn fyrir nýja drauma og nýja sýn. Möguleika okkar á að geta látið drauma okkar verða að veruleika með styrkri aðstoð frá Plútó í Vatnsbera, sem er að vinna að uppbyggingu hins nýja fyrir heildina.

Nýja Tunglið er í 150 gráðu afstöðu við Neptúnus, en Neptúnus er tengdur blóði okkar og ónæmiskerfi, á meðan Meyjan er meira tengd því að fá líkamann til að ganga eins og klukku. Bæði Neptúnus og Meyjan eru tengd heilsu okkar, þótt Meyjan sér meira tengd þörmunum og örverum þar, svo og næringu líkamans. Við gætum því séð mál koma upp á næstunni, sem tengjast heilsu okkar og blóði. Þótt Meyjan sé oftast hógvær, þá er Úranus það ekki, svo við gætum átt von á róttækum uppljóstrunum sem tengjast heilsumálum.

NÝTT UPPHAF

Þetta nýja Tungl í dag (23/8) á núll gráðu í Meyju, er enn eitt táknið fyrir nýtt upphaf. Að auki eru sex aðrar plánetur á núll til tveimur gráðum í sínum merkjum sem allar eru táknrænar fyrir nýtt upphaf. Pláneturnar eru Sól og Tungl í Meyju, Haumea á einni gráðu í Sporðdreka, Plútó á tæplega tveimur gráðum í Vatnsbera, Satúrnus á núll gráðu og Neptúnus á eini gráðu í Hrútnum og Sedna og Úranus á fyrstu gráðunni í Tvíburunum.

Allar þessar plánetur tengjast nýju upphafi og umbreytingum. Dvergplánetan Haumea tengist töfrum, endurnýjun og yngingu okkar. Samstaðan á milli Satúrnusar og Neptúnusar er táknræn fyrir aukið næmi hjá okkur og þá drauma (Neptúnus) sem Satúrnus hjálpar okkur að forma og byggja upp. Dvergplánetan Haumea er að vekja upp hjá okkur gamla sjamaníska visku, því mýtan um hana er mjög tengd þeirri gömlu þekkingu og skilningi á landinu en Haumea bjó yfir mjög endurnýjandi orku, því hún gat breytt sér úr gamalli konu í unga konu og þannig endurnýjað sig.

KÆRLEIKURINN HEILAR ALLT

Mars í Vog er í níutíu gráðu spennuafstöðu við Júpiter í Krabba. Það gefur til kynna að við séum tilbúin til að berjast fyrir málstað. Allar líkur eru á því að það tengist friði í heiminum, því fólk er almennt orði svo þreytt á stríði. Það vill frið. Krabbinn gerir kröfu um meira jafnræði, meiri sjálfsumhyggju og umhyggju í samfélaginu og svo sannarlega frið á Jörð.

Venus á tuttugu og sjö gráðum í Krabba er í níutíu gráðu spennuafstöðu við Chiron á tæpum tuttugu og sjö gráðum í Hrút (afstaða ekki teiknuð inn á kortið) en það gefur til kynna að við notum kærleikann til að heila okkur, því Chiron er táknrænn fyrir upprunalegan sársauka eða áfall okkar, gjarnan úr æsku. Með kærleikanum tekst okkur að heila áföllin.

SEPTEMBER VERÐUR STÓR MÁNUÐUR

Það verða tveir myrkvar í september. Tunglmyrkvi verður þann 7. september á blóðmána og á jafndægrum þann 21. september verður hlutamyrkvi á Sólu. Þann 6. september mun Úranus stöðvast til að breyta um stefnu og fara aftur á bak. Við getum fundið fyrir þeirri umbreytingu alveg frá upphafi mánaðarins og Tunglmyrkvinn mun svo sannarlega magna upp orku Úranusar. Hún getur tengst netárásum, rafmagnsleysi, auknum jarðskjálftum, meiri sannleika sem kemur upp á yfirborðið og aukinni vitundarvakningu. Við megum búast við einhverju eða öllu af þessu frá næstu mánaðarmótum.

Í lok ágústmánaðar kemur Plútó til með að fara út fyrir þá braut sem hann almennt fylgir. Samkvæmt bandaríska stjörnuspekingnum Rosie Finn förum við inn í tíma mikillar harðstjórnar þegar Plútó fer út fyrir sporbaug sinn til norðurs. Hins vegar færist valdið til fólksins þegar Plútó fer út fyrir sporbaug sinn til suðurs, eins og hann gerir núna. Plútó í Vatnsbera er að færa okkur aukna vitundarvakningu næstu tíu árin.

ATHUGIÐ! Þar sem nýtt Tungl í Meyju tengist svo mjög heilsu, meltingarveginum og örveruflóru hans vil ég benda á námskeið mitt MEIRA EN HREINT sem hefst 27. ágúst. NÚNA er frábær tími til að koma lagi á ástand meltingarvegarins með aðstoð Meyjunnar.

SMELLTU HÉR til að kynna þér málið og skrá þig.

Heimildir: Að hluta úr skýringum Pam Gregory fyrir nýtt Tungl í Meyju.
Myndir: Stjörnukort fyrir Reykjavík – Guðrún Bergmann – Shutterstock.com

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN