Stjörnuspeki

ÖFLUGAR AFSTÖÐUR PLÁNETANNA

Fimmtudaginn 26. febrúar breytir Merkúr um stefnu á 22 gráðum í Fiskum og verður á ferð afturábak til 20. mars, en þá verða jafndægur í Hrúti. Merkúr verður kominn aftur á 8 gráður í Fiskum þegar hann stöðvast til að snúa við og stefna framávið. Með Sól, Venus og Norðurnóðuna í Fiskum gætum við fundið sterka löngun til að draga okkur inn á við, vera í kyrrð, þögn og hugleiðslu, eða verja meiri tíma úti í náttúrunni. Þetta er tímabil þar sem mikil áhersla er á Fiskamerkið og við finnum að innsæi okkar og draumar verða dýpri og ríkari.

Lesa meira »

SATÚRNUS OG NEPTÚNUS Í SAMSTÖÐU

Í dag ná Satúrnus og Neptúnus nákvæmri samstöðu – kraftmiklu stjörnuspekilegu augnabliki sem markar djúpa umbreytingu í meðvitund okkar og andlegum vexti. Þessi samstaða hefur ekki orðið á NÚLL gráðu í Hrútnum, fyrsta stjörnumerkinu í stjörnumerkjahringnum í 6300 ár, svo hún markar umbyltingu.

Núll gráðan er gjarnan kölluð sköpunargráðan, svo ef þú finnur fyrir aukinni alvöru, innri togstreitu eða sterkri löngun til að gera drauma þína raunverulega – þá ertu að upplifa orkuna sem fylgir þessari samstöðu.

Lesa meira »

SATÚRNUS KOMINN Í HRÚTINN

Nákvæm samstaða Satúrnusar og Neptúnusar á núll gráðu Hrútsins þann 20. febrúar er línan í sandinum. Með Satúrnusi í Hrútnum mun okkar eigið „Atlantis“ – eða hvaða nafni sem við kjósum að kalla persónulegan draum okkar eða sýn – rísa upp úr djúpinu og tekur á sig form, skipulag og stefnu.

Lesa meira »

ÞRÝSTINGURINN FYRIR UMBREYTINGUNA

Í næstu viku mætast nýtt Tungl og Sól-myrkvi þann 17. febrúar – og hið kínverska nýár hefst með ári ELDHESTSINS. Samstaða Tungls og Sólar markar alltaf sterkt umbreytingarhlið. Það gera myrkvar einnig, en þeir virka ekki aðeins á ytri atburði heldur hafa djúp áhrif á taugakerfið, tilfinningalífið og innri stefnu okkar. Oft byrja áhrifin fyrir sjálfan atburðinn og geta haldið áfram í tvær vikur eða lengur eftir hann, þar sem líkami og meðvitund vinna saman að því að losna við það sem er orðið úrelt.

Lesa meira »

ÞEGAR SANNLEIKURINN OPNAR LEIÐINA

Á lífsleiðinni söfnum við sárum. Sum þeirra eru augljós, önnur grafin djúpt í líkama okkar, minni og taugakerfi. Við lærum að aðlaga okkur, lifa af og halda áfram – oft með því að þagga niður í hluta af okkur sjálfum. En andlegur þroski kallar okkur fyrr eða síðar til uppgjörs: að horfast í augu við það sem særði okkur og finna leið til raunverulegrar heilunar.

Lesa meira »

FULLT TUNGL Í LJÓNI 01.02.26

Þann 1. febrúar verður Tunglið fullt í Ljónsmerkinu. Febrúar markar orkumikinn og jarðskjálftakenndan tíma, sem getur birst á marga vegu. Meðal annars má búast við aukinni spennu í kringum nýtt Tungl og sólmyrkva í Vatnsbera þann 17. febrúar – en nánar verður fjallað um það síðar. Úranus er í öflugum spennuafstöðum í febrúar og því má búast við mjög öfgakenndri jarðskjálftorku, bæði í jörðinni sjálfri sem og í stjórnmálum, efnahag og fjármálum.

Lesa meira »

ÞEGAR ALLT ER ÞURRKAÐ AF TÖFLUNNI

Í Mesópótamíu til forna voru skuldir skráðar á leirtöflur. Þegar færslurnar urðu of margar og óskiljanlegar, var einfaldlega allt þurrkað af töflunni. Ekki til að afneita fortíðinni, heldur til að gera lífinu kleift að halda áfram í jafnvægi. Stundum þarf slíkt augnablik. Stað þar sem eitthvað endar – og eitthvað annað getur hafist.

Lesa meira »

NEPTÚNUS FER INN Í HRÚTINN – MARKAR KAFLASKIL

Þegar Neptúnus skiptir um stjörnumerki markar það upphaf nýs og afgerandi kafla í lífi okkar – bæði fyrir einstaklinga, sem og heildina. Neptúnus var í stuttan tíma í Hrútnum á síðasta ári, frá mars til október 2025. Sá tími markaði tímabil þar sem heimurinn virtist vera að fara úr skorðum. En áður en við náðum að skilja hvað var í raun að gerast, færðist plánetan aftur inn í þægindaríki Fiskanna.

Lesa meira »

MIKIL UMBROT 20.-26. JANÚAR 2026

Það eru miklar og öflugar afstöður hjá plánetum himinhvolfsins næstu daga og eftir því sem  stjörnuspekingurinn Bracha Goldsmith segir verður þetta spennuþrungið tímabil. Allar þær breytingar sem verða á þessu tímabili, frá 20.–26. janúar, verða varanlegar og til frambúðar. Það eru því sannarlega spennandi tímar fram undan.

Lesa meira »

FYRSTA NÝJA TUNGL ÁRSINS

Nýja tunglið er í Steingeit, en Steingeitin er táknræn fyrir ábyrgð, festu, þroska og langtímasýn. En eins og Astro Butterfly bendir á er Steingeitarorkan að umbreytast. Hún snýst ekki lengur um að sanna sig, klifra upp metorðastigann eða lifa samkvæmt væntingum annarra.

Lesa meira »