ÞRÝSTINGURINN FYRIR UMBREYTINGUNA

ÞRÝSTINGURINN FYRIR UMBREYTINGUNA

Kerfið hægir á sér fyrir næstu hröðun

Undanfarið hafa margir fundið fyrir óvenjulegri þreytu, aukinni tilfinninganæmni, djúpum eða mjög lifandi draumum og jafnvel sterkri þörf fyrir að draga sig í hlé frá hávaða og áreiti. Þetta er ekki tilviljun og ekki merki um að eitthvað sé „að“. Þetta er eðlileg líkamleg og orkuleg aðlögun að djúpstæðri endurstillingu sem er í gangi.

NÝTT TUNGL, SÓLMYRKVI OG ÁR ELDHESTSINS

Allt á sama degi er Úranus í spennuafstöðu við Sól og Tungl

Í næstu viku mætast nýtt Tungl og Sól-myrkvi þann 17. febrúar – og hið kínverska nýár hefst með ári ELDHESTSINS. Samstaða Tungls og Sólar markar alltaf sterkt umbreytingarhlið. Það gera myrkvar einnig, en þeir virka ekki aðeins á ytri atburði heldur hafa djúp áhrif á taugakerfið, tilfinningalífið og innri stefnu okkar. Oft byrja áhrifin fyrir sjálfan atburðinn og geta haldið áfram í tvær vikur eða lengur eftir hann, þar sem líkami og meðvitund vinna saman að því að losna við það sem er orðið úrelt.

Þennan dag er Úranus líka í 90 gráðu spennuafstöðu við Sól og Tungl, sem eru í Vatnsberanum – en Úranus stjórnar Vatnsberanum. Úranus er táknrænn fyrir hið óvænta, fyrir jarðskjálfta hvort sem er í jörðinni eða í mannlífinu sjálfu, svo og eldgos. Líkur er á að þetta verði því magnþrunginn dagur og að óvæntir hlutir geti gerst.

 

TAUGAKERFIÐ HÆGIR Á SÉR

Þegar svona tímamót nálgast hægir taugakerfið viljandi á sér. Það sem við upplifum sem orkuleysi eða áhugaleysi er oft vitræn varðveisla – líkaminn safnar kröftum fyrir næstu skref. Innri kerfi eru að endurraða sér áður en ný stefna verður meðvituð. Sálin sleppir gömlum tímalínum áður en nýjar birtast.

Margir upplifa að þeir séu „á milli tíðnilína“:
– minni þörf fyrir að þrýsta hlutum áfram
– minni áhuga á átökum eða of mikilli virkni
– meiri löngun í kyrrð, íhugun og orkuvernd

SNÁKURINN AÐ LJÚKA HAMSKIPTUNUM

Táknrænt má líkja þessu við snák sem er að ljúka hamskiptum. Þegar síðustu vafningarnir á hamnum sem ár SNÁKSINS er að losa sig við myndast herpingur og okkur getur fundist lífið þrengra, hægara og jafnvel aðeins þyngra. Þetta er ekki afturför, heldur síðasta samdráttarskeiðið áður en losunin á sér stað. Umbreytingunni verður ekki flýtt — hún gerist þegar gamli „hamurinn“ losnar af sjálfu sér.

Vegna samspils nýs Tungls, Sólmyrkva og hins nýja árs Eld-Hestsins, sem marka endalok og nýtt upphaf, kallar líkaminn nú á stöðugleika fremur en örvun. Minna álag. Minna ytra áreiti. Meiri meðvitund um hvar og með hverjum þú deilir orkunni þinni.

Þegar orkukerfið fær stuðning og rými, birtist skýrleiki án átaka. Þegar orkan dreifist of víða eykst þreyta og spenna.

Ef þú finnur fyrir því að vera orkulega „opin/n“ eða tóm/ur eftir samskipti eða óvenju viðkvæm/ur á þessu tímabili, þá er það skýr vísbending um að vernd, jarðtenging og mýkt skipta meira máli en afköst.

Næstu tvær vikur – og jafnvel lengur – er ekki tími til að ýta, heldur til að hlusta, samþætta og undirbúa. Það á allt eftir að fara á fulla ferð aftur, en fyrst þarf kerfið að stilla sig af.

HEFUR ÞETTA ÁHRIF Á ÞITT LÍF?

Væntanlega hefur það áhrif á okkur öll, en til að skilja betur á hvaða sviði lífsins það er geturðu pantað þér persónulegt stjörnukort  (er á Valentínusar tilboði til 15/2) og öðlast dýpri skilning á því hvar áhrifanna er að vænta. Það er líkt því að hafa veðurspá fyrir tímabilið framundan.

© Guðrún Bergmann
Mynd: Shutterstock.com og kort fyrir nýja Tunglið 17.02.26 miðað við Reykjavík

Aðrar áhugaverðar greinar um svipuð málefni:

ÞEGAR ALLT ER ÞURRKAÐ ÚT AF TÖFLUNNI

NEPTÚNUS FER INN Í HRÚTINN

2026 ER ÁR ELD-HESTSINS

ÞEGAR SANNLEIKURINN OPNAR LEIÐINA

Fáðu ókeypis fréttabréf með því að SKRÁ ÞIG Á PÓSTLISTANN

 

 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN