ÞEGAR ALLT ER ÞURRKAÐ AF TÖFLUNNI

ÞEGAR ALLT ER ÞURRKAÐ AF TÖFLUNNI

Í Mesópótamíu til forna voru skuldir skráðar á leirtöflur. Þegar færslurnar urðu of margar og óskiljanlegar, var einfaldlega allt þurrkað af töflunni. Ekki til að afneita fortíðinni, heldur til að gera lífinu kleift að halda áfram í jafnvægi.

Stundum þarf slíkt augnablik. Stað þar sem eitthvað endar – og eitthvað annað getur hafist.

HEIMUR SEM LIFIR Á LOFORÐUM

Við lifum í heimi sem byggir í auknum mæli á loforðum um framtíðina. Skuldir, kerfi og kröfur tengja okkur saman í ósýnilegu neti sem snýst ekki aðeins um peninga, heldur um tíma, orku og athygli.

Þetta hefur áhrif á hvernig við lifum lífinu sjálfu: að taka núna það sem tilheyrir síðar, að fresta nærveru, að lifa aðeins á undan okkur sjálfum.

Á einhverjum tímapunkti finnum við að eitthvað er óuppgert. Að jafnvægið er ekki alveg rétt.

STJÖRNUSPEKI SEM KORT AF ÞESSUM STRAUMUM

Í stjörnuspeki skoðum við ekki aðeins einstaklinginn, heldur líka stærri strauma. Ytri reikistjörnurnar – Neptúnus og Satúrnus þar á meðal – sýna hvernig sameiginlegur veruleiki mótast, hvar kerfi verða óljós og hvar raunveruleikinn kallar eftir nýjum ramma.

Neptúnus táknar hið ósýnilega: drauma, hugmyndir, flæði, kerfi og trú. Satúrnus táknar mörk, ábyrgð og það sem verður að taka á sig form.

Þegar þessar tvær orkurnar mætast, sérstaklega eins og þær er að gera núna á upphafspunkti Hrútsins eða núll gráðunni, erum við stödd á þröskuldi breytinganna. Við stöndum þar sem blekkingar leysast upp – og eitthvað raunverulegt vill taka við.

SKULD SEM INNRA ÁSTAND

Á persónulega planinu birtist þetta oft sem tilfinning um orkuskuld. Ekki endilega gagnvart öðrum – heldur gagnvart okkur sjálfum.

  • Þegar við segjum já þegar við meinum nei.
  • Þegar við frestum köllun okkar.
  • Þegar við lifum drauma sem eru ekki í samræmi við það sem við erum í raun tilbúin til að lifa.

Þetta er ekki „rangt“ – heldur vísbending. Líkaminn, lífið og kortið vill vita hvar eitthvað er óuppgert.

FEBRÚAR 2026 – AUGNABLIK NÚLLPUNKTS

Samstaða Neptúnusar og Satúrnusar á NÚLL gráðu og 44 mínútum í Hrút  sem verður þann 20. febrúar 2026 markar slíkan núllpunkt. Upphafspunkt! Stað þar sem eitthvað nýtt getur aðeins orðið til ef einhverju gömlu er sleppt.

Þessi orka snýst ekki um ótta eða spádóma – heldur um skýrleika. Um að standa sterkum fótum og taka aftur höfundaréttinn að eigin lífi.

ÞITT EIGIÐ STJÖRNUKORT – ÞÍN TAFLA

Þó við deilum sameiginlegum tímum, upplifir hver og einn þessa strauma á sinn einstaka hátt. Þar kemur stjörnukortið inn.

Stjörnukortið sýnir:

  • Hvar þú ert líkleg/ur til að lifa á „lánuðum forsendum“
  • Hvar orka þín lekur, og hvar hún vill byggjast upp
  • Hvar lífið er að kalla eftir ábyrgð sem frelsar
  • Hvar ný byrjun vill verða skrifuð á þína eigin töflu

Það felst enginn dómur í persónulegu stjörnukorti. Það er spegill fyrir þig til að horfa í og í því er að finna leiðarvísi það því sem getur orðið – ef þú vilt skapa það.

NÝ TAFLA – MEÐVITAÐ UPPHAF

Ef Neptúnus afhjúpar það sem aldrei var raunverulegt, býður Satúrnus okkur að byggja það sem er satt – skref fyrir skref, í núinu. Stjörnuspeki snýst ekki um að vita „hvað mun gerast“. Hún snýst um að skilja hvað er að gerast – og hvernig þú getur mætt því með meiri meðvitund, ábyrgð og sjálfstrausti.

Og stundum byrjar það einfaldlega með forvitni. Forvitni um kortið þitt. Um tímann þinn og um ÞIG.

Pantaðu þitt persónulega stjörnukort

Ef eitthvað í þessum texta vakti forvitni þína, þá er það ekki tilviljun. Stjörnuspeki virkar þannig – hún kallar þegar tíminn er réttur.

Persónulegt stjörnukort sýnir hvar þú ert stödd/staddur núna, hvaða straumar eru að móta líf þitt og hvar þú ert beðin(n) um að taka næsta meðvitaða skref. Það hjálpar þér að skilja ekki aðeins hvað er að gerast, heldur af hverju – og hvernig þú getur mætt því af meiri skýrleika og sjálfsöryggi.

Þetta er ekki almenn túlkun. Þetta er kort byggt á þínum fæðingartíma, þinni orku og þínum möguleikum.

👉 Pantaðu þitt persónulega stjörnukort hér
og stígðu meðvitað inn í næsta kafla með góða jarðtengingu.

©Guðrún Bergmann
Mynd: Shutterstock.com

AÐRAR ÁHUGAVERÐAR GREINAR:

NEPTÚNUS FER INN Í HRÚTINN – MARKAR KAFLASKIL

FYRSTA NÝJA TUNGL ÁRSINS

2026 ER ÁR ELDHESTSINS

 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN