Neptúnus fer inn í Hrútinn – Markar kaflaskil!
26. janúar 2026 er sögulegur dagur – Neptúnus fer inn í Hrútinn.
Þegar Neptúnus skiptir um stjörnumerki markar það upphaf nýs og afgerandi kafla í lífi okkar – bæði fyrir einstaklinga, sem og heildina. Neptúnus var í stuttan tíma í Hrútnum á síðasta ári, frá mars til október 2025. Sá tími markaði tímabil þar sem heimurinn virtist vera að fara úr skorðum. En áður en við náðum að skilja hvað var í raun að gerast, færðist plánetan aftur inn í þægindaríki Fiskanna.
Nú snýr Neptúnus hins vegar aftur – og að þessu sinni er hann kominn til að vera. Frá og með 26. janúar 2026 er Neptúnus í Hrútnum og hann endurstillir tóninn í öllu. Það er engin leið til baka. Héðan í frá verður ekki snúið til baka.
Neptúnus dvelur í um það bil 14 ár í hverju stjörnumerki, þannig að við upplifum aðeins örfáar slíkar innkomur á ævinni. Þetta er því stórt upphaf að nýjum kafla.
Frá lokum til upphafs – frá Fiskum yfir í Hrút
Neptúnus er ekki bara að skipta um merki – hann er að færast úr Fiskum, síðasta merki stjörnumerkjahringsins, yfir í Hrútinn, fyrsta merkið.
Núll gráðan í Hrútnum er ein magnaðasta og mikilvægasta gráða stjörnumerkjahringsins. Hún táknar upphaf alls – fyrsta andardráttinn, fyrsta skrefið og það eru margir sem telja að núll gráðan í Hrútnum sé mikilvægasta gráðan af öllum 360 gráðum hringsins.
Fyrir Neptúnus markar þetta upphafið á nýju 165 ára hringferli umhverfis Sólina.
Ytri plánetur – þar á meðal Neptúnus – tákna kynslóðatengdar þróanir sem hafa áhrif á nánast alla þætti lífsins.
Neptúnus í Fiskum – upplausn marka
Á meðan Neptúnus var í Fiskum sáum við aukna áherslu á fiskakennd þemu eins og:
- Tengsl og samtengingu
- Andlega einingu
- Hugmyndina um að „við séum öll eitt“
Fiskarnir eru hafið – takmarkalaust, endalaust, án landamæra.
Neptúnus í Fiskum leysti því upp mörk – bæði sýnileg og ósýnileg. Ef við ættum að nefna eitt meginþema síðustu 14 ára, þá væri það hnattvæðing.
Helstu þróanir á tímabili Neptúnusar í Fiskum
- Aukin áhersla á opnun landamæra, samþykki, fjölmenningu og fólksflutninga
- Sprenging í internetnotkun, samfélagsmiðlum og rafrænni verslun – heimurinn varð stafrænt landamæralaus
- Fjarvinna, gig-hagkerfið og stafrænt flakk braut upp hefðbundin störf og þjóðlegar atvinnumyndarinnar
- Streymisveitur (Netflix, Spotify, YouTube) þurrkuðu út menningarleg mörk – fólk um allan heim neytir sama efnis
Neptúnus í Hrút 2026–2039 – frá „við“ í „ég“
Hvernig þróast þessi Neptúnísku þemu þegar plánetan fer úr Fiskum yfir í Hrút?
Ef Fiskarnir tákna upplausn, uppgjöf og heildina, þá táknar Hrúturinn einstaklinginn, lífsneistann og sjálfið. Hrúturinn er þar sem við fæðumst, tökum fyrsta andardráttinn og segjum: „Ég er hér.“
Áherslan færist yfir á:
- Sjálfsmynd
- Frumkvæði
- Að finna sitt eigið hlutverk
- Að lifa af og standa með sjálfum sér
Ef Fiskarnir segja: „Við erum öll eitt“, þá segir Hrúturinn:
„Þetta er ég.“
Hrúturinn er hetjan – eða hetjan sem fer sína eigin leið, óháð væntingum annarra.
Persónuleg og samfélagsleg áhrif
Á persónulega stiginu
Fókusinn færist frá því að leita tengingar við eitthvað stærra (Fiskar) yfir í:
- Að endurforma sjálfsmyndina
- Finna tilgang
- Taka meiri ábyrgð á eigin lífi
Minna af:
- Að horfa, taka við og láta reka á reiðanum
Meira af:
- Að gera, skapa, standa með sjálfum sér
Á heimsvísu
Neptúnus í Hrút getur markað umbreytingu:
- Frá hnattvæðingu → yfir í sjálfstæði
- Frá „einu heimsfyrirkomulagi“ → yfir í sérstöðu og sjálfsákvörðun
Þjóðir, stofnanir og einstaklingar munu enduruppgötva sína einstöku sjálfsmynd.
Það getur leitt til:
- Nýrrar pólitískrar afstöðu
- Endurskilgreindra landamæra
- Nýrrar merkingar þjóðar- og einstaklingsvitundar
Ný menningarleg stefna
Við gætum séð:
- Minni af „eitt fyrir alla“ afþreyingu
- Meira hrátt, djarft, persónulegt og sérhæft efni
- Aukna áherslu á sjálfstæða list, tónlist og kvikmyndir
Hrúturinn tengist einnig uppgötvunum, og í Neptúnískum skilningi gæti það þýtt:
- Geimferðir
- Djúpsjávarrannsóknir
- Ný landamæri í meðvitund
Að aftengjast kerfinu
Önnur líkleg þróun:
- Fólk dregur sig út úr kerfum sem það treystir ekki lengur
- Meiri sjálfbærni í fjármálum, heilbrigðismálum og menntun
- „Gerðu það sjálf/-ur” menning, dreifð tækni og grasrótarsamfélög styrkjast
„Ég er á eigin vegum“ á ekki eftir að hljóma einangrandi –heldur styrkjandi.
Neptúnus í Hrút – hvað þýðir þetta fyrir þig?
Á einstaklingsstiginu er þetta mjög djúpstæð breyting.
Neptúnus yfirgefur það lífssvið (hús) sem hefur verið í brennidepli síðustu 14 ár og fer inn á algjörlega nýtt svæði í fæðingarkortinu þínu.
Það sem áður var ráðandi þema í lífi þínu mun smám saman fjara út – og nýtt svið tekur við.
Neptúnus umbreytir okkur innan frá, hægt og rólega, þar til við finnum meiri samhljóm við það sem skiptir okkur raunverulega máli – jafnvel þótt við eigum erfitt með að setja það í orð.
Merki versus hús – lykillinn að raunverulegum skilningi
Neptúnus í Hrút er ekki það sama og Neptúnus í 1. húsi stjörnukortsins.
Til að skilja hvernig þessi innkoma Neptúnusar í Hrútinn hefur áhrif á þig persónulega, þarftu að skoða hvaða hús Hrúturinn virkjar í fæðingarkortinu þínu núna.
Almennar stjörnuspekispár vinna á merkjalaginu – en húsin segja okkur hvar í lífinu þetta birtist í raun.
Þegar við lærum að lesa merki og hús saman, opnast raunverulegur galdur stjörnuspekinnar.
—–
Guðrún Bergmann
Vantar þig stjörnukort? Ef svo er geturðu PANTAÐ ÞÉR kort HÉR!
Ég les bæði saman Neptúnus í færðingarkorti þínu og í hvaða húsi Neptúnus í “transit” lendir þegar hann er kominn inn í Hrútinn – og skoða samspilið.
Heimild: Þýtt og aðlagað að íslensku úr grein af AstroButterfly.com
Mynd: Shutterstock.com
Þér er velkomið að skrá þig á PÓSTLISTANN MINN til að fá ókeypis efni sent reglulega.
Aðrar áhugaverðar greinar um svipað efni:
MIKIL UMBROT 20.-26. JANÚAR 2026
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar11. febrúar, 2026ÞRÝSTINGURINN FYRIR UMBREYTINGUNA
Greinar6. febrúar, 2026ÞEGAR SANNLEIKURINN OPNAR LEIÐINA
Greinar1. febrúar, 2026FULLT TUNGL Í LJÓNI 01.02.26
Greinar30. janúar, 2026ÞEGAR ALLT ER ÞURRKAÐ AF TÖFLUNNI

