MIKIL UMBROT 20.-26. JANÚAR 2026
Það eru miklar og öflugar afstöður hjá plánetum himinhvolfsins næstu daga og eftir því sem stjörnuspekingurinn Bracha Goldsmith segir verður þetta spennuþrungið tímabil. Allar þær breytingar sem verða á þessu tímabili, frá 20.–26. janúar, verða varanlegar og til frambúðar. Það eru því sannarlega spennandi tímar fram undan.
Ég ákvað því að þýða efni af YouTube-rás Bracha Goldsmith til að deila með lesendum mínum, enda er mikill áhugi á stjörnuspeki hjá þeim.
KOSMÍSKUR VENDIPUNKTUR Í JANÚAR
Sjaldgæfar afstöður plánetanna

Þann 20. janúar verður Satúrnus í sextíu gráðu samhljóma afstöðu við Úranus. Slík afstaða á sér einungis stað á um 20 ára fresti og gefur til kynna fullkomið jafnvægi milli uppbyggingar og byltingar, milli fornrar visku og tækniframfara framtíðarinnar.
Þetta er ekki bara einangraður atburður, heldur opnun á kosmísku samspili sem byggir upp orkuna næstu sex daga. Afstaðan magnar upp rafmagnaða uppreisnarorku Úranusar og hinn guðlega karllega eld Mars-orkunnar. Mars er táknrænn fyrir aðgerðir, hugrekki og stríðsmannsandann – en Úranus fyrir skyndilega vitundarvakningu og stór stökk (quantum stökk) í meðvitundinni.

Þann 24. janúar, aðeins tveimur dögum áður en Neptúnus hefur sitt sögulega ferli inn í Hrútinn, myndar Mars níutíu gráðu afstöðu við Neptúnus.
Þetta skapar beina orkuleið milli stríðsplánetunnar og plánetunnar sem táknar andlegan yfirskilvitleika. Þetta gerir mögulegt það sem verur frá Sjöstirninu (sem Bracha miðlar einnig) kalla upplýsta aðgerð – hæfileikann til að berjast fyrir kosmísku réttlæti með kærleiksorku fremur en egódrifinni árásargirni.
SPRENGIKRAFTUR UMBREYTINGARINNAR
Þegar endalok og endurfæðing mætast
Á hápunkti þessa ferlis, þann 26. janúar, þegar Neptúnus fer yfir mörkin úr Fiskunum og inn á 0 gráðu Hrútsins, verður Mars kominn í samstöðu við Plútó í Vatnsberanum.
Þessi samstaða myndar eins konar kosmíska sprengingu sem losar alla orkuna sem hefur safnast upp yfir vikuna. Samstaða Mars og Plútós táknar endalok (dauða) og endurfæðingu í gegnum guðlegan kraft.
Þessi samstaða, sem á sér stað nákvæmlega þegar Neptúnus hefur nýjan 165 ára (sumir segja 167 ára) hring um sporbaug sinn, þýðir að allt sem endar (deyr) í þessari viku mun endurfæðast á algjörlega nýju stigi andlegrar þróunar.
FORDÆMALAUS RÖÐ ATBURÐA
Þróun án viðnáms – Alheimurinn ryður brautina
Það sem gerir þessa röð atburða einstaka er að allir þessir þættir eiga sér stað í fullkomnum samhljómi á innan við sex dögum. Engir harðir eða tefjandi þættir eru til staðar.
Alheimurinn hefur skapað kosmíska ofurhraðbraut – engin umferðarljós, engin hraðatakmörk og engar hindranir. Þetta er hrein og viðnámslaus þróun tilverunnar á ofurhraða.
Síðast þegar eitthvað svipað þessu átti sér stað var snemma á 17. öld og tengdist þá vísindabyltingunni, fæðingu nútímalýðræðis og grundvallarbreytingum á skilningi mannkyns á raunveruleikanum. En jafnvel það tímabil spannaði mörg ár – ekki sex daga.
SAMÞJÖPPUN ÞRÓUNARINNAR
Áratuga umbreytingar á einni viku
Engu er líkara en að Alheimurinn sé að segja nú í janúar 2026:
„Mannkynið er komið á þann stað að hægfara breytingar eru of hægar. Við ætlum að þjappa saman áratugaþróun í eina viku, því gamla hugmyndakerfið verður að deyja strax til að rýma fyrir því nýja.“
NEPTÚNUS Í HRÚTI – KYNSLÓÐATÁKN
Einu ferli lýkur – nýr skapandi neisti kviknar
Neptúnus dvelur í kringum 14 ár í hverju stjörnumerki, sem þýðir að flestir upplifa aðeins fimm eða sex stjörnumerkjaskipti Neptúnusar á ævinni.
Þetta er því ekki bara sjaldgæfur atburður – þetta er kynslóðatákn sem endurskilgreinir andlega meðvitund næstu 10–15 árin.
Neptúnus yfirgefur nú Fiskana, síðasta merki dýrahringsins, og fer yfir í það fyrsta, Hrútinn. Þar með lýkur Neptúnus 165 ára hringferli um sporbaug sinn.
Síðast þegar Neptúnus var á 0 gráðu Hrútsins var á árunum 1861–1862, þegar bandaríska borgarastyrjöldin hófst. Þá voru menn að berjast fyrir andlegum hugmyndum um mannlegt jafnræði með eldi og blóði.
0 gráðan í Hrútnum er ein öflugasta gráðan í stjörnumerkjahringnum – hreinn skapandi eldur og neisti guðlegrar meðvitundar sem hrindir nýrri skapandi orku af stað.
Þegar Neptúnus, pláneta andlegs yfirskilvitleika (næmi, draumar og hið dulmagnaða), snertir þessa gráðu á sama tíma og Mars er í samstöðu við Plútó, fáum við það sem helst má lýsa sem kosmísku sköpunaraugnabliki.
Fæðingu alveg nýrrar leiðar til að vera mannlegur.
SJÖ DAGA KOSMÍSKUR STORMUR
Raunveruleikinn verður móttækilegur fyrir vitundarvakningu
Á þessu sjö daga tímabili má búast við að raunveruleikinn verði óvenju fljótandi og móttækilegur fyrir vitundarvakningu.
Venjuleg lögmál orsaka og afleiðingar verða tímabundið óvirk, sem veitir möguleika á að kraftaverk geti átt sér stað.
Þeir sem eru tengdir æðri meðvitund sinni munu finna að hugsanir þeirra og ásetningur verða að raunveruleika með áður óþekktum hraða og krafti.
En þessi hraði virkar í báðar áttir.
Óttadrifnar hugsanir og neikvæður ásetningur munu einnig birtast hraðar. Þess vegna er meðvitaður undirbúningur algjört lykilatriði.
DJÚP UMBREYTING Á ÖLLUM SVIÐUM LÍFSINS
Það sem þjónar ekki lengur þróuninni hverfur
Á þessu tímabili má meðal annars búast við:
- að óvirkar (sofandi) DNA-raðir hjá þeim sem eru tilbúnir fyrir næsta stig verði virkar
- skyndilegum dulrænum hæfileikum, sjálfsheilun eða dýpra innsæi
- að sambönd annað hvort styrkist eða leysist upp á ótrúlegum hraða
- skýrari skilningi á tilgangi lífsins og hvert starfsorkan leiðir fólk
- fjárhagslegum byltingum hjá þeim sem nálgast allsnægð út frá þjónustu fremur en skorti
- djúpstæðum heilsufarsumbreytingum og andlegri lækningu
Alheimurinn mun ekki þola neitt sem hægir á þróunarferlinu.
HVERNIG UNDIRBÝRÐU ÞIG?
- Haltu dagatalinu þínu eins opnu og mögulegt er á tímabilinu 20.–26. janúar.
- Skilgreindu æðsta ásetning þinn fyrirfram – skrifaðu hann niður og hugleiddu hann.
- Stundaðu öfluga sjálfsumhyggju og verndaðu orkuna þína.
- Leggðu áherslu á innri samhæfingu hjarta og huga (hjartaöndun – leggja hönd á hjartað og anda inn í það eins og lungu til að mynda samaræmi milli hjarta og heila) og hlustaðu á skilaboð frá innsæinu.
- Vertu tilbúin(n) fyrir hraðar og róttækar breytingar – og taktu þeim með opnum hug.
ENDURRITUN RAUNVERULEIKANS
Þegar meðvitaður einstaklingur tekur þátt í að móta sinn eigin veruleika
Þetta minnir okkur á að meðvitaður einstaklingur getur bókstaflega endurskrifað reglur raunveruleikans þegar hann samstillir sig þróunarkröftum Alheimsins.
Þú ert ekki bara að upplifa breytingar.
Þú ert að taka þátt í að skapa nýtt hugmyndakerfi fyrir næsta tímabil mannlegrar vitundar.
LOKAORÐ
Þegar mannkynið verður andlega fullorðið
Við lifum á ótrúlegasta tíma í sögu mannkyns.
Þessa sjö daga kosmíska storms í janúar 2026 verður minnst sem vikunnar þegar allt breyttist – þegar mannkynið stökk á milli meðvitundarstiga.
Undirbúðu þig meðvitað.
Taktu virkan þátt.
Treystu djúpt þeirri velviljuðu greind sem stýrir þessum kosmísku atburðum til æðstu þróunar okkar allra.
Það sem rís úr storminum verður fegurra, máttugra og samstilltara en nokkuð sem við getum ímyndað okkur í dag.
—-
Guðrún Bergmann – fylgstu með mér á Facebook
Heimild: Bracha Astrology School – þýtt og endursagt
Öll stjörnukortin í greininni eru gerð fyrir Reykjavík.
Mynd: Shutterstock.com
Stjörnukort: Ef þú átt ekki stjörnukort er tíminn núna til að fá þér slíkt – þá sérðu hvar umskipti plánetanna milli merkja hafa áhrif í þínu lífi. SMELLTU HÉR til að panta kort.
Sjá einnig: Fyrsta nýja tungl ársins
Póstlisti: Skráðu þig HÉR til að missa ekki af fréttum sem þessum
Sjá einnig: 2026 er ár Eld-hestsins í kínverskri stjörnuspeki
Sjá einning: Þátt Stefan Burns um líkur á jarðskjálftum á næstunni
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar11. febrúar, 2026ÞRÝSTINGURINN FYRIR UMBREYTINGUNA
Greinar6. febrúar, 2026ÞEGAR SANNLEIKURINN OPNAR LEIÐINA
Greinar1. febrúar, 2026FULLT TUNGL Í LJÓNI 01.02.26
Greinar30. janúar, 2026ÞEGAR ALLT ER ÞURRKAÐ AF TÖFLUNNI


