Eftirfarandi grein er byggð á þýðingu á pósti af Facebook-síðu Pam Gregory sem birtist 24.02.26 – en þýðandi hefur bætti í hann millifyrirsögnum.
Öflugar afstöður plánetanna halda áfram. Fimmtudaginn 26. febrúar breytir Merkúr um stefnu á 22 gráðum í Fiskum og verður á ferð afturábak til 20. mars, en þá verða jafndægur í Hrúti. Merkúr verður kominn aftur á 8 gráður í Fiskum þegar hann stöðvast til að snúa við og stefna framávið.
AÐ HÆGJA Á OKKUR
Með Sól, Venus og Norðurnóðuna í Fiskum gætum við fundið sterka löngun til að draga okkur inn á við, vera í kyrrð, þögn og hugleiðslu, eða verja meiri tíma úti í náttúrunni. Þetta er tímabil þar sem mikil áhersla er á Fiskamerkið og við finnum að innsæi okkar og draumar verða dýpri og ríkari. Á meðan heimurinn verður villtari, hraðari og óútreiknanlegri að utan, með stöðugum áföllum og óvæntum uppákomum, finna mörg okkar þörf fyrir AÐ HÆGJA Á OKKUR. Að einfaldlega verja tíma með okkur sjálfum í kyrri íhugun.
INNBLÁSTUR OG SAMHLJÓMUN
Það er einmitt þetta sem stjörnuspekin hvetur okkur til að gera. Erfiða vinnan er að baki og nú erum við á tímabili móttöku. Takið betur eftir draumum ykkar, hlustið á fuglasönginn og tengist náttúrunni sterkari böndum en nokkru sinni fyrr. Finnið að þið eruð hluti af þeirri Einingu. Finnið að þið flæðið með öllu sem er og að með því að vera meira í kyrrð munið þið bæði fyllast innblæstri og samhljómun.
Þegar við erum í slíku ástandi hjartasamhljómunar þurfum við hvorki að rembast né þrýsta á til að komast þangað sem við eigum að vera. Það sem við viljum laða að okkur í lífinu virðist auðveldlega finna leiðina til okkar. Rétta fólkið, réttu upplýsingarnar og tækifæri birtast einfaldlega, þar sem við erum að laða aðra sem eru á sömu tíðni kærleiksríkrar samhljómunar að okkur.
Við munum læra að allt í heiminum starfar eftir lögmáli segulómunar, jafnvel stjörnuspekin sjálf. En í bili skulið þið HÆGJA Á YKKUR og leyfa innsæinu fremur en huganum að leiða ykkur áfram. Það mun í auknum mæli verða leiðsögutæki ykkar, og það vinnur beint frá hjartanu.
FRIÐUR OG RÓ
Þessi friðar og róandi tilfinning verður mikilvæg í þessari viku þegar við nálgumst spennuafstöðuna á milli Mars á 27 gráðum í Vatnsbera og og Úranusar á 27 gráðum í Vatnsbera föstudaginn 27. febrúar. Afstaðan getur verið stingandi, hvatvíst, herská, eldfim og mögulega hlaðin sprengiorku. Það getur kynt undir byltingarkennda hegðun og afhjúpað átakanlegan sannleika sem vekur fólk til vitundar. Mikilvægar viðræður eiga sér stað í þessari viku milli Bandaríkjanna og Íran.
SPENNUAFSTAÐAN TENGIST LEIÐTOGUM HEIMS
Þessi spennuafstaða myndar tengingar við mikilvægar plánetur í kortum leiðtoga heimsins og hér erum við að horfa á síðustu gráður hinna föstu merkja. Forseti Bandaríkjanna er með Mars á 26 gráðum í Ljóni, forseti Frakklands er með Miðhimin (staða, ferill) á 29 gráðum í Sporðdreka, forsætisráðherra Ísraels er með Mars á 26 gráðum Ljóni, og Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, er með Miðhimin á 28 gráðum í Nauti. Nokkuð sterk röð af stöðum sem þessi ákveðna spennuafstaða snertir.
ÁHRIFIN Á ÍRAN
Fyrir Íran, miðað við kort sett upp fyrir 1. febrúar 1979 kl. 9:33 í Teheran, verður almyrkvi Tunglsins á 12 gráðum og 54 mínútum í Meyju þann 3. mars – sem tákn um hápunkt, lok og fullkomnun – í samstöðu við Satúrnus landsins á 12 gráðum og 39 mínútum í Meyju, en hann stjórnar Miðhimninum í korti landsins. Eitthvað úrslita og þýðingarmikið gæti komið fyrir forystu eða ríkisstjórnina á þessu myrkvatímabili og áhrif myrkvans ná að sjálfsögðu allt að sex mánuðum fram í tímann.
HÖLDUM INNRI RÓ – SENDUM ÚT KÆRLEIKA
Þegar allt er tekið saman er líklegt að við munum sjá dramatísk og pólitísk áhrif – og hugsanlegar jarðhræringar í heiminum. Leyfum okkur því að tengjast enn sterkar, hönd í hönd og hjarta við hjarta, í INNRI RÓ og senda kærleika og bænir um frið og samkennd til allra sem þjást. Að vinna með orkuna á þennan hátt í hópi er eitt það öflugasta sem við getum gert, á meðan við höldum sýn okkar á mun kærleiksríkari heim.
Heimild: Póstur á Facebook-síðu Pam Gregory 24.02.26 – þýddur og settar í hann millifyrirsagnir.
Þýðing: Guðrún Bergmann
Mynd: Shutterstock.com
Mikilægi stjörnukorta hafa aldrei verið meiri í mínum huga en einmitt nú. Ég hef verið að lesa í kort fyrir marga undanfarnar vikur og teningar við staðsetningar plánetanna í kortun þeirra gefa ótrúlega miklar upplýsingar. Allar plánetur á 0-5 gráðum verða fyrir áhrifum frá hinni öflugu samstöðu milli Satúrnusar og Neptúnusar sem varð þann 20. febrúar. Þú getur PANTAÐ ÞÉR KORT HÉR!
Hér má finna geinina um:
SATÚRNUS OG NEPTÚNUS Í SAMSTÖÐU
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar2. mars, 2026FYRRI HLUTI MARS 2026
Greinar24. febrúar, 2026ÖFLUGAR AFSTÖÐUR PLÁNETANNA
Greinar22. febrúar, 2026222 ORKUHLIÐIÐ
Greinar20. febrúar, 2026SATÚRNUS OG NEPTÚNUS Í SAMSTÖÐU
