FYRRI HLUTI MARS 2026

ALMYRKVI Á FULLU TUNGLI

Mars býður stjörnuspekilega séð upp á ýmsar breytingar. Í þessari grein fjalla ég um orkuna í fyrri hluta mánaðarins, en í mars erum við í myrkvatímabilinu. Þann 3. mars verður almyrkvi á fullu Tungli í Meyju sem kemur til með að bera með sér aðlögun og mjög raunverulegar afleiðingar í hinu daglega lífi.

Á sama tíma erum við enn að samþætta Satúrnusar og Neptúnusar samstöðuna sem varð á NÚLL gráðu í Hrút þann 20. febrúar – endurstillinguna sem markaði opinberlega upphaf nýs tímabils. Þótt nýja tímabilið sé tæknilega hafið, erum við enn að vinna úr því fyrra. Orku Fiskamerkisins gætir enn sterkt í mars, þar sem nokkrar plánetur dvelja áfram í síðasta merki stjörnumerkjahringsins.

Þetta skapar mjög sérstakt andrúmsloft – að hluta til endalok einhvers, að hluta til upphaf einhvers. Við stöndum með annan fótinn í hafi fortíðarinnar og hinn þegar kominn á þurrt land.

Við vorjafndægur hitnar aftur hratt í kolunum og þann 20. mars 2026 verður sjaldgæf þétting 6 pláneta í Hrútsmerkinu. En hverjar verða mikilvægustu afstöður mánaðarins:

FULLT TUNGL OG ALMYRKVI Á TUNGLI

Þann 3. mars 2026 verður Tunglið fullt, samhliða almyrkva á Tungli á tólf gráðum  í Meyju. Myrkvinn er á Suðurnóðunni (fortíðin) sem leiðir til lykta þemu sem hafa verið í gangi í bakgrunninum í langan tíma. Í Meyju geta þemun tengst úreltum kerfum, fullkomnunaráráttu eða skyldum sem “meika ekki lengur sens” í samhengi við þá leið sem við erum á inn í framtíðina.

Myrkvinn myndar sextíu gráðu afstöðu við Júpíter, þannig að þrátt fyrir þá ákefð sem fylgir myrkvatímabilinu er stuðningur til staðar. Það gerir aðlögunina auðskiljanlegri og ekki fylgir tap öllu sem endar. Sumt þarf einfaldlega að endurskipuleggja.

Kort fyrir fulla Tunglið 03.03.26 miðað við Reykjavík

VENUS Í SAMSTÖÐU VIÐ SATÚRNUS OG NEPTÚNUS

Þann 6. mars 2026 fer Venus inn í Hrútinn og þá er komið að aðgerðum. Venus er fyrsta persónulega plánetan sem virkjar NÚLL gráðu Hrútsins – punktinn þar sem Satúrnus og Neptúnus mættust í febrúar – og gefur okkur persónulegri upplifun af þessari stóru endurstillingu.

Þann 20. febrúar sáðu Satúrnus og Neptúnus fræinu. Nú, þegar persónulegu pláneturnar fara að fara inn á og yfir þessa gráðu, förum við að skilja betur hvað það fræ þýðir í raun fyrir okkur persónulega. Sameiginleg breyting verður einstaklingsbundin.

Þegar kemur að Venusi snúst málin um gildi – hvað skiptir okkur máli, hvað við þráum og í hvað við viljum leggja í orku. Af öllum þeim möguleikum sem hafa opnast – hvað er það þá sem heillar okkur? Hvað tengist þeirri innri breytingu sem hefur orðið hjá okkur ? Hvað lítur ekki bara vel út á blaði heldur talar tilfinningalega til okkar?

SÓL Í SAMSTÖÐU VIÐ MERKÚR

Þann 7. mars 2026 verður Sólin í samstöðu við Merkúr sem er en á ferð afturábak, nú á sextán gráðum í Fiskunum. Þessi staða er í raun að marka upphafið á nýju hringferli Merkúrs -hringferlis sem setur tóninn fyrir næstu 3–4 mánuði.

Samstaða Sólar og Merkúrs – eins og allar samstöður – er augnablik þar sem fræinu er sáð. Það markar þessi „efnahvarfaviðbrögð“ þegar tvær plánetur mætast og hefja eitthvað nýtt. Með Sól og Merkúr bendir þetta til nýrrar hringrásar þar sem sjálfsmynd og tilgangur verða skírari.

Þessi samstaða á sextán gráðum í Fiskum myndar einnig hundrað og tuttugu gráðu samhljóma afstöðu  við Júpíter, sem er á ferð afturábak á fimmtán gráðum í Krabba. Sú afstaða styrkir stuðning og samhengi í ferlinu.

Ef þú ert með verkefni eða draum í huga – veitir þetta nýja hringferli Merkúrs sérstakan stuðning við það. Jarðvegurinn er tilbúinn og tímasetningin uppbyggileg.

JÚPITER FER BEINT ÁFRAM

Þann 11. mars 2026 stöðvast Júpíter á fimmtán gráðum í Krabba til að breyta um stefnu og fara beint framávið. Frá þeim degi fer Júpíter nokkuð hratt áfram í gegnum Krabbann og fer inn í Ljónsmerkið í lok júní.

Við eigum því eftir þrjá mánuði af Júpíter sem er upphafinn (öflugur) í Krabbanum. Í þessum mánuði mynda pláneturnar í Fiskum hver af annarri hundrað og tuttugu gráðu afstöðu  við Júpíter. Sú afstaða skapar flæði og stuðning og hjálpar hlutum að færast eðlilega áfram.

Því er um að gera að nýta tímann vel meðan þessi afstaða varir.

MERKÚR Í SAMSTÖÐU VIÐ MARS OG NORÐURNÓÐUNA

Frá 14. og 17. mars myndast mjög kraftmikil þreföld samstaða á milli Merkúrs á ferð afturábak og Mars. Báðar pláneturnar virkja Norðurnóðuna (framtíðin), sem nú er á átta gráðum í Fiskum. Þann 15. mars er svo nákvæm samstaða milli Merkúrs og Mars á níu til tíu gráðum í Fiskum.

Þegar pláneta hugans (Merkúr) mætir plánetu athafna (Mars), hugsum við ekki bara eða tölum um eitthvað – við framkvæmum það. Við förum af stað. Og þegar við förum af stað, förum við ekki í hvaða átt sem er. Með Norðurnóðunni er fókus okkar í takt við þá átt sem við eigum að vaxa í – þangað sem umbreytingin er að leiða okkur.

Grunnheimild: Grein á www.astrobutterfly.com

Þýðing og aðlögun á texta: Guðrún Bergmann

STJÖRNUKORT skýra svo vel líkindi þess sem kann að gerast í lífi okkar – eða kannski öllu heldur opna augu okkar fyrir tækifærum sem eru nú í kortunum okkar. Ef þú átt ekki persónulegt stjörnukort GETURÐU PANTAÐ HÉR!

 

Fleiri greinar sem fjalla um stjörnuspeki:

SATÚRNUS OG NEPTÚNUS Í SAMSTÖÐU

ÖFLUGAR AFSTÖÐUR PLÁNETANNA

ÞRÝSTINGURINN FYRIR UMBREYTINGUNA

 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN