MIKILVÆGAR BREYTINGAR Í JÚLÍ

Ein mikilvægasta tilfærsla milli stjörnumerkja á þessu ári verður þegar Úranus fer inn í Tvíburana. Í júlí 2025 fara einnig nokkrar plánetur afturábak, en það ferli markar alltaf tímamót hjá okkur öllum – bæði persónulega og sameiginlega sem heild. Þá gefst tími til að hugleiða það sem við höfum séð koma fram – og veitt hefur okkur innsýn í það sem er mögulegt – og meta hvar við erum í raun stödd á þessum tímapunkti í lífi okkar.

Afturábak tíminn býður okkur upp á að „fara til baka“ og endurmeta fyrri reynslu okkar. Þegar plánetur eru á hreyfingu beint fram á við höfum við tilhneigingu til að bregðast við hlutunum, án þess að vinna að fullu úr því sem er að gerast.

MELTUM REYNSLUNA

Það er vegna þess að þegar reikistjörnur hreyfast á miklum hraða er einfaldlega ekki nægur tími til að „melta“ reynslu okkar að fullu þegar hún er að eiga sér stað. Það er aðeins þegar við tökum skref til baka og hugleiðum hlutina að við öðlumst raunverulegan skilning.

Júlí hleypir af stokkunum þessu endurmatsferli. Þetta er tækifæri okkar til að kafa dýpra, betrumbæta skilning okkar, gera breytingar, leiðrétta stefnu okkar og öðlast víðtækara sjónarhorn á það HVERS VEGNA hlutirnir þróuðust eins og þeir gerðu, þegar pláneturnar voru á ferð beint áfram.

Í júlí njótum við einnig stuðnings frá tveimur mikilvægum Tunglafstöðum. Annars vegar er um að ræða afkastamikið fullt Tungl í Steingeit og og hins vegar nýtt Tungl í sjálfsöruggu, fullvalda og tjáningarfullu Ljóninu. Við komum til með að skynja að samræming og framfarir er raunverulegar!

MIKILVÆGUSTU TILFÆRSLUR PLÁNETANNA

Þann 3. og 4. júlí 2025, rétt áður en við pláneturnar fara inn í Tvíburana, mætast Venus og Úranus í síðasta gráðu Nautsins. Þegar Venus og Úranus – sem kalla mætti dóttur og faðir – mætast á tuttugu og níu gráðum í Nauti, munum við öðlast mikilvæga innsýn í sjálfsmynd okkar og stöðu okkar í heiminum. Á meðan á þessari samstöðu og tilfærslu plánetanna stendur, er gott að gefa sér tíma til að hugleiða og gera lista yfir:

  1. A) Það sem þú nýtur virkilega að gera og þér finnst áreynslulaust og ánægjulegt (Venus), og
  2. B) Æðri köllun þína – stóra verkefnið í lífi þínu – sem, ef þú legðir rækt við það, gæti fært þér ósvikið frelsi og persónulegt fullveldi (Úranus).

Hvernig tengjast þessir tveir hlutir?

4. JÚLÍ 2025 – VENUS FER INN Í TVÍBURANA

Venus er táknræn fyrir það sem skiptir okkur máli – það sem okkur líkar og það sem veitir okkur ánægju og hamingju. Með því að fylgjast með ferðalagi Venusar í gegnum mismunandi stjörnumerki (Venus eyðir að meðaltali um einum mánuð í hverju merki) aukum við skilning okkar á því hvernig við getum notið lífsins betur.

Meðan Venus var í Nautinu fólst hamingja okkar í einföldum þáttum – eins og góðum mat, hvíld og því að heiðra eigin takt. Um leið og Venus fer inn í Tvíburarana færist fókusinn okkar. Venus í Tvíburum er mun virkari og forvitnari, svo ánægja okkar og hamingja mun á komandi vikum birtast í þörf okkar til að kanna málin – með því að koma okkur út úr húsi, tengjast öðrum, eiga örvandi samræður og prófa nýja hluti.

Sú staðreynd að bæði Venus og Úranus fara inn í Tvíburana með nokkurra daga millibili (í beinu framhaldi af samstöðu þeirra á síðustu gráðunni í Nauti) er mjög afgerandi – og mun leiða til þess að við skiljum mun betur hvað þarf að breytast til þess að við finnum fyrir meira frelsi, þátttöku í og samhljómi við hver við erum að verða.

5. JÚLÍ 2025 – NEPTÚNUS FER AFTUR Á BAK

Þann 5. júlí 2025 stöðvast Neptúnus á annari gráðu í Hrútnum til að breyta um stefnu og fara aftur á bak. Viku síðar, eða þann 13. júlí 2025, kemur Satúrnus einnig til með að stöðvast á fyrstu gráðu í Hrútnum, til að breyta um stefnu og fara aftur á bak. Það er því mikil virkni á þessari fyrstu gráðu stjörnumerkjahringsins, sem líka kallast Öxull Alheimsins.

Þegar Neptúnus og Satúrnus fara aftur á bak kemur það til með að skýra fyrir okkur hvaða þemu munu ráða sameiginlegri áherslu okkar í mörg ár fram í tímann – eða næstu 14 árin. Neptúnus og Satúrnus eru ekki í bókstaflegri samstöðu – þótt pláneturnar verði í innan við einnar gráðu fjarlægð frá hvor annarri.  Þær eru þó nógu nálægt til að við finnum fyrir sameiginlegum áhrifum þeirra. Þótt við séum kannski eftirvæntingarfull er hin eiginlega ENDURSTILLINGIN ekki að gerast.

Enn eru ýmsir þættir sem þarf að hugleiða og laga. Þar sem Neptúnus og Satúrnus eru báðir að renna aftur inn í Fiskana (frá síðari hluta þessa árs og fram í byrjun næsta árs), er okkur boðið upp á tímabil til að fínstilla það sem þarf að fínstilla – svo við getum stigið inn í næsta stóra kaflann í lífi okkar eftir að hafa lokið heimavinnunni

7. JÚLÍ 2025 – ÚRANUS FER INN Í TVÍBURANA

Í dag er stóri dagurinn. Úranus er að hefja nýtt sjö ára ferli í Tvíburunum. Sjö ára tímabilið er vel þekktur vendipunktur – því stjörnuspekingar tengja það oft við Satúrnusar hringrásina (7 ár er tíminn sem líður á milli tveggja níutíu gráðu afstaðna Satúrnusar) – en við getum líka ímyndaðokkur að hugsanlega séu þessar breytingar tengda breytingum á fókus Úranusar.

Þegar Úranus fer úr einu stjörnumerki yfir í annað, fer það sem áður hefur verið áríðandi og skilgreinandi síðustu sjö árin að missa athygli okkar – þar sem ný þemu taka skyndilega alla athygli okkar og orku.

Innkoma Úranusar byrjar með látum. Ólíkt öðrum ytri reikistjörnum eins og Neptúnusi, sem starfa á dularfullan hátt, hefur Úranus ekki tíma fyrir vægar breytingar – honum fylgja áföll, byltingar og vekjaraklukkur sem hrista upp í okkur.

Þegar Úranus fór inn í Hrútinn árið 2011, tókumst við á við kjarnorkuslysið í Fukushima og Arabíska vorið. Úranus fór svo inn í Nautið árið 2018 og því fylgdi mikil kryptó-uppsveifla með tilheyrandi truflunum á fjármála- og umhverfiskerfin.

Úranus í Tvíburum mun líklega endurmóta landslag gervigreindar og stafrænna samskipta – en eins og gjarnan er sagt um Úranus: „Búist við því óvænta.“

Hugmyndir okkar í tenglsum við helsta tákn Tvíburanna – tungumálið – gætu breytst. Einnig hugmyndir okkar um ferðalög milli staða, netkerfi og það hvernig við vinnum úr upplýsingum sem fram koma – og koma okkur á óvart og krefjast breytinga til að hjálpa okkur að finna meira frelsi og sjálfstæði.

10. JÚLÍ 2025 – FULLT TUNGL Í STEINGEIT

Þann 10. júlí 2025 verður Tunglið fullt á átján gráðum í Steingeit. Þetta er jákvætt, öflugt fullt Tungl, í níutíu gráðu spennuafstöðu við Mars í Meyjunni.

Full Tungl, sérstaklega í Steingeitinni vilja framkvæmdir, því orka Steingeitarinnar er afreksmiðuð. Þegar hinn afkastamikli Mars í Meyju býður svo fram nákvæmni sína og vinnusemi, verður þessi orka enn áhrifaríkari.

Það er eitthvað sem jarðmerkin skilja um heiminn sem við búum í, sem önnur merki gera ekki. Þau starfa út frá hlutlausu, jarðbundnu og raunsæju sjónarhorni sem virkar í raun. Þau þurfa ekki að flækja hlutina of mikið. Þau grípa til aðgerða sem eiga rætur að rekja til raunveruleikans. Þetta fulla Tungl í Steingeit er það sem þú ættir að vinna með ef þú vilt ná árangri í einhverju sem er þýðingarmikið fyrir þig.

18. JÚLÍ 2025 – MERKÚR FER AFTUR Á BAK

Merkúr fer aftur á bak á fimmtán gráðum í Ljóni. Þegar Merkúr er á ferð afturábak nýtum við tímann til að endurmeta hugsanir okkar og skilning. Merkúr verður á ferð aftur á bak til 11. ágúst 2025 og fer á því tímabili frá fjórðu að fimmtándu gráðu Ljónsins. Ef þú ert með plánetur (skoða fæðingarkortið þitt) eða afstöður við þessar gráður, mun þetta afturábak ferli Merkúrs verða persónulegra. Ef ekki, tékkaðu þá samt á því í hvaða húsi í fæðingarkorti þínu Ljónið er. Það er þar sem endurskoðun, endurmat og endurstilling kemur til með að eiga sér stað.

22. JÚLÍ 2025 – SÓLIN FER INN Í LJÓNSMERKIÐ

Ljónstímabilið er sá tími ársins þegar við erum öll aðeins meiri Ljón, óháð persónulegum plánetum í kortum okkar. Þetta er sá tími þegar við erum hvött til að tengjast aftur barninu innra með okkur – því sem veitir okkur gleði, því sem lýsir okkur upp – og lifa lífi sem er í samræmi við okkar raunverulegasta sjálf.

Það er engin tilviljun að júlí-ágúst (Ljónstímabilið) er sá tími þegar mörg okkar taka sér pásu eða fara í frí – líklega vegna þess að okkar raunverulega sjálf þarfnast sannarlega meiri gleði, leiks og skapandi tjáningar.

24. JÚLÍ 2025 – NÝTT TUNGL Í LJÓNINU

Þennan dag kviknar nýtt Tungl í annarri gráðu í Ljóninu. Afstöðurnar við þetta nýja Tungl eru ótrúlegar – því það tengist bókstaflega öllum hægfara plánetunum. Það verður í níutíu gráðu spennuafstöðu við Neptúnus og Satúrnus í Hrútnum, sextíu gráðu samhljóma afstöðu við Úranus í Tvíburunum og í 180 gráðu spennuafstöðu við Plútó í Vatnsberanum.

Við nýja Tunglið í Ljóninu erum við að stilla okkur inn á stærri krafta sem eru að verki – og við erum kölluð til að stíga inn í og ​​krefjast þess hlutverks sem við viljum gegna í þessum vaxandi veruleika.

Ljónið vill að við séum hugrökk – þorum að stíga fram og láta rödd okkar, gildi eða drauma heyrast út í heiminum. Við þurfum ekki að vita nákvæmlega hvernig á að láta það gerast – ennþá – en fyrsta skrefið er að krefjast sjálfræðis okkar og svæðis, á sama hátt og Ljónið birtist og lætur alla vita þegar það hefur helgað sér svæði að það sé mætt.

31. JÚLÍ 2025 – CHIRON FER AFTURÁBAK

Þennan dag stöðvast Chiron á tuttugu og sjö gráðum í Hrút til að breyta um stefnu og fara afturábak. Chiron býður okkur í því ferli að skoða sár eða áföll okkar nánar. Hvernig hafa áföll okkar og sár – meðvituð og ómeðvituð – haft áhrif á líf þitt?

Þau særindi eða áföll sem Chiron veldur eru ekki alltaf augljós, en þau kunna að spilla lífi okkar á lúmskan hátt. Við vitum ekki einu sinni hver við gætum verið án þeirra. Kannski hefjum við ekki nýtt samband af ótta við að verða yfirgefin. Við sækjumst ekki eftir því sem okkur langar mest í af ómeðvituðum ótta við vandræði. Við nýtum ekki möguleika okkar til fulls vegna ómeðvitaðrar hollustu við foreldra okkar eða þau hlutverk, sem við höfum verið mótuð til að gegna.

Afturábak ferli Chiron er tækifæri okkar til að líta inn á við og skilja hvernig þessi særindi hófust og grófu í mörgum tilvikum um sig í undirvitund okkar. Markmiðið er að yfirstíga sársaukann eða vinna úr áfallilnu – ekki með því að hunsa það, heldur með því að samþætta reynsluna okkur eins og við erum í dag – vegna þess að sár okkar, áföll og særindi eru lyklarnir að stærstu gjöfum okkar.

Þýtt og endurbætt úr grein frá Astro Butterfly

ATH! Ef þú átt ekki STJÖRNUKORT geturðu pantað þér kort með því að SMELLTA HÉR!

Mynd: Shutterstock.com

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN