FULLT „GERÐU ÞAÐ BARA“ TUNGL

FULLT „GERÐU ÞAÐ BARA“ TUNGL Í STEINGEIT

„Gerðu það bara“ slagorðið hjá Nike kann að hljóma eins og slagorð fyrir Hrútinn – eða eitthvað eldsmerki, ekki satt? Kannski – ef við setjum fókusinn á orðið „bara“, því Hrúturinn getur verið með svo hvatvísa, orkudrifna og hiklausa stemningu.

En ef við einbeitum okkur að orðunum „gerum það“ –  þá segir „veruleikinn“ allt sem segja þarf. Það eru jarðmerkin sem koma hlutunum í verk. Við gætum leitað til eldmerkjanna eftir innblæstri… eftir kveikju, neista, ástríðu.

EN þegar við tölum um árangur, raunverulega hluti sem gerast – sem eru áþreifanlegir – erum við að tala um Nautið og um Meyjuna, EN einkum þó um Steingeitina – sem er aðal framkvæmdaraðilinn í jarðmerkjum stjörnuspekinnar.

Þann 10. júlí 2025 klukkan 20:37 er Tungl ársins í Steingeitinni fullt. Það veitir okkur tækifæri til að taka eitthvað sem skiptir okkur miklu máli og setja það í framkvæmd. Þetta er árangursmiðað, orkumikið fullt Tungl á átján gráðum í Steingeit og í níutíu gráðu spennuafstöðu við Mars í Meyjunni.

Birtingarmyndin er fullt Tungl + afrek (Steingeitin) + aðgerð (Marsinn) + framleiðni (Meyjan) og mætt er uppskrift stjörnuspekings að því hvernig byrja skal að byggja eitthvað raunverulegt upp, múrstein fyrir múrstein.

FULLT TUNGL Í GEITINNI

Steingeitinn er GEITIN í stjörnumerkinu – ekki bara vegna táknfræði fjallageitarinnar, heldur einnig vegna þess að hún framleiðir stöðugt stærstu GEITUR allra tíma:

  • Muhammad Ali, var GEITIN í hnefaleikum, með Sól í Steingeit
  • Tiger Woods, er GEITIN í golfi, með Sól í Steingeit
  • Usain Bolt, er GEITIN í spretthlaupum, með Mars í Steingeit
  • Michael Jordan, er GEITIN í körfuboltanum, með Venus í Steingeit
  • Serena Williams, er GEITIN í tennis, með MC eða miðhiminn í Steingeit

Það er eitthvað við ákveðnina, óþreytandi klifrið, lipurðina til að sigla í gegnum flókin kerfi og ramma án þess að missa sjónar á markmiðinu sem gerir Steingeitina svo góða í að ná tökum á „veruleikanum“. Steingeitinn kemur hlutunum í verk og gerir það betur en nokkur annar.

GERÐU ÞAÐ BARA

En snúum okkur aftur að „Gerðu það bara“ í smá stund – því jafnvel Michael Jordan, með allri sinni þrautseigju og verðugu eiginleikum GEITARINNAR var einnig knúinn áfram af einhverju innra: löngun til að verða eitthvað meira, til að vinna, til að tjá sig, til að komast í „tengingu“ við krafta sína.

Þær pælingar leiða okkur að stjórnanda þessa fulla Tungls í Steingeit, en hann er Satúrnus – en sú pláneta er nú nær en nokkru sinni fyrr því að vera í samstöðu við Neptúnus á fyrstu gráðu í Hrútnum. Neptúnus og Satúrnus í Hrútnum hafa verið að hrærast undir yfirborðinu til að vekja upp persónulega drauma okkar. Eitthvað svo raunverulegt, svo persónulegt og svo þýðingarmikið – að það VERÐUR að fæðast.

NEPTÚNUS ER DRAUMAPLÁNETAN

Þar sem ytri pláneturnar hafa verið í sameiginlegum stjörnumerkjum í áratugi – og þar sem Neptúnus, draumaplánetan, hefur ekki snert núllpunktinn í Hrútnum í meira en 150 ár – höfum við gleymt hvernig það er að eiga okkar eigin draum. Að vera knúinn áfram af einhverju sem talar beint til sálar okkar.

Ekki drauma sem eru„ innblásnir“ af ímyndunarafli heildarinnar. Ekki „drauma“ sem tengjast löngunum annarra. Ekki „draum eins og talað eru um“ á Instagram.

Nákvæm samstaða Satúrnusar og Neptúnusar í Hrút verður ekki fyrr en í febrúar 2026. Pláneturnar Satúrnus og Neptúnus eru nú nánari en þær hafa nokkru sinni fyrr verið á okkar tímum. Þránna, eðlishvötina og togkraftinn í átt að einhverju djúpu og ósviknu er ekki lengur hægt að hunsa.

Draumsýnin er áþreifanleg. Hún er ekki lengur bara draumur heldur getum við núna GETUM gert hana að veruleika – en til þess þurfum við góða orku frá jörðinni.

FULLT TUNGL Í STEINGEIT – GERIR ÞAÐ BARA!

Fulla Tunglið í Steingeit er hér til að hjálpa okkur að taka þennan draum okkar alvarlega. Kannski veistu ekki einu sinni hver draumurinn þinn er – kannski hefurðu gleymt honum. En við eigum öll einhverja drauma vegna þess að við fæddumst öll af sömu uppsprettu óendanlegra möguleika.

Hvað fékk þig til að finnast þú lifandi sem barn? Hvað færði þér gleði og hamingju þá? Þessi draumur úr barnæsku – eða neistinn á bak við hann – gæti hafa þróast. Það er kannski ekki lengur nákvæmlega sami draumurinn. Samt sem áður er að finna í honum þetta fræ, þessa lífsorku, þennan kraft fyrir skapandi tilgang þinn í dag.

Hver er næsta raunverulega aðgerð sem þú getur sett af stað til að vinna þig í átt að markmiði þínu? Hvernig geturðu nýtt þér einbeitingu Steingeitarinnar til að skipuleggja á snjallan hátt, taka til starfa með tilgangi og byrja að byggja upp? Hvað þarf að gerast til að þú farir af stað með fullum skriðþunga?

Fullt tungl í Steingeit segir einfaldlega: Ekki láta þig bara dreyma um það. GERÐU ÞAÐ BARA!

Heimild: Astro Butterfly.com

ÁTTU ÞÚ EKKI STJÖRNUKORT? Það er eins og vegvísir þinn í lífinu og því eins gott að vita hvar Steingeitin er í því korti. Þú getur eignast þitt eigið persónulega kort með því að SMELLA HÉR!

Þú getur líka skráð þig á fréttabréfið mitt með því að SMELLA HÉR!

Fylgstu með mér á FACEBOOK með því að SMELLA HÉR

Fylgstu með mér á Instagram með því að SMELLA HÉR

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN