FULLT WESAK TUNGL Í SPORÐDREKA
Það er mjög áhugavert að skoða kortið fyrir Wesak Tunglið sem verður fullt þann 12. maí vegna þess að í því korti hefur Plútó á þremur gráðum og 48 mínútum í Vatnsbera nýlega stöðvast til að breyta um stefnu og fara afturábak. Plútó verður fastur á þriðju gráðunni fram til 7. júlí og kemur til með að hafa áhrif á allar plánetur og afstöður sem eru á milli tvær-fjórar gráður í föstu merkjunum sem eru Nautið, Ljónið, Sporðdrekinn og Vatnsberinn. Því er gott að kíkja aðeins á eigin stjörnukort til að sjá í hvaða húsum kortsins Plútó er að hafa áhrif á okkur persónulega, einkum og sér í lagi vegna þess að Plútó verður á ferð afturábak fram til 14. október.
Þegar Plútó er á ferð afturábak veitir hann okkur einstakt tækifæri til persónulegs þroska, nýrra viðhorfa og jákvæðra beytinga. Þetta verður frábær tími til að losa sig við gömul vanamynstur, endurmeta markmiðin og vinna að dýpri sjálfsmeðvitund. Því er tilvalið að nota þetta tímabil til að hreinsa til í huganum og draga fram gamlar hugmyndir, sem nú eru tilbúnar til að verða að veruleika.
EINKENNI PLÚTÓS
Þegar Plútó fer í gegnum stjörnumerkin, er ferli hans nokkuð flókið. Annars vegar eykur hann eiginleika merkisins sem hann er á leið í gegnum. Hins vegar flettir hann ofan af öllu því sem er okkur ekki fyrir bestu, en það gerist aðallega þegar plánetan er á leið afturábak. Þar sem Plútó er nú í Vatnsberanum tengjast málin vísindum, meðal annars læknavísindum og tækni. Plútó er líka pláneta leyndarmála og stjórnar fulla Tunglinu í Sporðdreka sem verður þann 12. maí.
Fullt Tungl varpar gjarnan ljósi sínu á þau leyndarmál sem við höfum verið ómeðvituð um, svo við gætum farið að rekast á ýmislegt tengt vísindum og tækni sem fer að sjá dagsins ljós, en hefur hingað til verið falið.
SÓL OG ÚRANUS
Sól og Úranus eru í áttunda húsi leyndarmálanna í kortinu fyrir Reykjavík í 180 gráðu spennuafstöðu við Tunglið (fólkið) í Sporðdreka, svo við megum eiga von á ýmsum uppljóstrunum hér á landi. Líkur eru einnig á því að fólkið (Tunglið) sé róttækara og uppreisnargjarnara – og að við gætum orðið vör við meira af jarðskjálftum, bæði í Jörðinni sjálfri, svo og í stjórnmálum og fjármálakerfinu, því öxullinn á milli Nauts og Sporðdreka tengist fjármálunum. Eins megum við eiga von á frekari truflunum á rafmagni og netárásum, auk þess sem það gætu orðið truflanir á flugi. Plánetan Úranus er tengd rafmagni og rafmagnsleysi, rofi á orku og aukinni orku eins og eldingum, auk þess sem hún er tengd flugi.
ÚRANUS, SEDNA OG ALGOL
Úranus í Nauti er líka í utan merkja samstöðu við dvergplánetuna Sedna í Tvíburunum en það eru aðeins fjórar gráður á milli þessara pláneta. Sedna er nokkuð táknræn fyrir það sem við þurfum að sleppa tökum á og losa okkur við, til að geta haldið að fullu inn á andlegu brautina og inn á hærri víddir. Auk þess tengist Sedna svikum feðraveldisins – en það hugtak getur bæði verið tengt körlum og konum, ríkisstjórnum og öðrum sem beita ofurvaldi og í sumum tilvikum svikum til að koma sínu fram.
Úranus er líka í samstöðu við fastastjörnuna Algol (ekki teiknuð inn á kortið) en báðar pláenturnar eru á tuttugu og sex gráðum í Nauti. Þessi afstaða tengist sérstaklega því að leiðtogar missi völdin í gegnum stöðumissi eða falli frá völdum á annan hátt. Einn af helstu leiðtogum heims, Frans páfi, hefur auðvitað nýlegar falið frá – en þessi afstaða plánetana er nákvæm fram til 12. maí. Við fylgjumst því með hvað gerist hjá öðrum leiðtogum í heiminum á næstunni.
ERIS OG CHIRON
Það sem mér finnst athyglisvert fyrir kortið fyrir Reykjavík er að í sjöunda húsinu, sem er samskiptahúsið eru bæði dvergplánetan Eris og Chiron sem var hinn særði heilari, en Chiron var kentár að hálfu hestur og hálfu maður samkvæmt grísku goðafræðinni. Þessar plánetur eru í samstöðu á tuttugu og fjórum og tuttugu og fimm gráðum í Hrút. Chiron er táknrænn fyrir sársaukann og særindin sem við höfum orðið fyrir og þarf að heila. Gyðjan sem plánetan Eris er nefnd eftir var sú eina sem ekki fékk boð í brúðkaup á Ólympusfjalli, en mætti nú samt og var með uppsteit.
Eris berst fyrir því að enginn sé skilinn eftir útundan og að allir í samfélaginu séu jafn réttháir. Mikið vantar upp á það hér á landi og við erum með marga jaðarhópa sem þarf að sinna betur. Chiron gæti verið að reyna að heila málin, en þessi mál þarfnast dýpri lausna, til að ekki upp úr sjóði – því Eris er í Hrút og hún lætur til sín taka á götum úti ef hún er ekki sátt. Hún krefst fyrst og fremst réttlætis fyrir alla.
VATNIÐ ER MIKILVÆGT
Allar líkur eru á að vatn verið metið mun mikilvægara en gert hefur verið hingað til næstu tvö árin á meðan Satúrnus og Neptúnus verða í samstöðu í Hrútnum. Líkur eru á átökum í kringum vatn og merki um það eru nú þegar sýnileg, því Indland hefur sagt upp Indus vatnssamningnum við Pakistan. Meira en tveir þriðju hlutar vatns í Pakistan koma frá löndum utan landamæra landsins, svo það er líklegt til að valda frekari erjum milli landanna tveggja. Að auki er Sporðdrekaorkan alltaf tilfinningarík, svo orkan í kringum þetta fulla Tungl er líkleg til að verða spennuþrungin.
MARS Í LJÓNI – OG PLÚTÓ
Það sem einnig nærir þessa spennuþrungnu mynd er að Mars er í Ljónsmerkinu, sem setur Mars í frekar mikinn baráttugír, einkum þar sem hann er í 180 gráðu spennuafstöðu við Plútó í Vatnsbera. Þessi afstaða er mjög táknræn fyrir togstreitu milli gömlu kerfanna sem Plútó er að rífa niður og þess einstaklinga fullveldis sem Ljónið vill standa fyrir. Sól í samstöðu við Úranus og í 180 gráðu spennuafstöðu við Tunglið (fólkið) snýst um þessa þörf fyrir að vera sjálfráðari og sjálfstæðari einstaklingur, þótt brjóta þurfi reglurnar til að ná því fram.
DVERGPLÁNETAN HAUMEA
Dvergplánetan Haumea sem er á annarri gráðu í Sporðdreka, er mjög tengd allri endurnýjun. Ekki bara umbreytingu, heldur endurnýjun frá gamalli kerlingu yfir í unga meyju, en hún gat jafnframt samkvæmt goðsögninni fætt af sér börn hvaðanæva af líkama sínum. Haumea með þessa endurnýjandi orku er í 90 gráðu spennuafstöðu við Plútó í Vatnsbera, en Plútó hefur verið að rífa niður hið gamla meðan hann var í Steingeitinni og jafnvel ennþá, nú þegar hann er í Vatnsberanum, því hann er í fjórða húsinu, en þar gæti hann verið að hjálpa okkur að vinna úr gömlu vanamynstrum sem við höfum erft kynslóð fram af kynslóð og þurfum nú að vinna úr og sleppa tökum á. Í framhaldi af því er svo tími til að fæða hið nýja.
Plútó á þremur gráðum í Vatnsbera er ansi vel tengdur á þessu fulla Tungli, því hann er líka í 120 gráðu samhljóma afstöðu við dvergplánetuna Sedna sem er á núll gráðu fremst í Tvíburunum. Báðar pláneturnar eru í loftmerkjum og Sedna býr yfir þessum umbreytingar-, jafnvel frekar myndbreytingarkrafti líkt og verður þegar púpan breytist í fiðrildi. Sedna kennir okkur að við þurfum að sleppa því gamla – til að geta tekið á móti hinu nýja. Til að geta stigið inn í Nýja Jörð þurfum við að sleppa tökum á þeirri gömlu og halda meira inn á þá hærri andlegu braut sem Sedna er að leiða okkur inn á.
Í þeirri háu tíðni og ljósmiklu orku sem flæðir til Jarðar eigum við öll kost á því að umbreytast, en við þurfum að sleppa hinu gamla til að það geti gerst. Höldum því áfram að móta hina nýju Jörð með því að vinna út frá hjartanu, láta kærleikann vísa okkur veginn og treysta innsæi okkar.
HVAÐ ER WESAK TUNGL?
Í kringum fullt Tungl í maí er gjarnan talað um Wesak daginn, stundum skrifað Vesak, eða Wesak Tunglið, því þá er fæðingardegi Búddha fagnað. Sumir halda því reyndar fram að dagurinn tengist uppljómun hans, eða þegar hann uppgötvaði tilgang lífsins. Þetta er dagur til íhugunar og skoðunar á kennisetningum hans og hvað felst í því að vera Búddhisti. Á síðustu áratugum hafa margir, hverrar trúar sem þeir eru, komið saman og hugleitt á þessum degi til að njóta blessunar frá Búddha, en hann er sagður birtast Meisturum á æðri sviðum á Wesak Tunglin á duldum stað í Himalajafjöllum og veita blessun.
Kort: Gert fyrir Reykjavík
Mynd: Shutterstock.com
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar11. maí, 2025EKKI VERÐUR AFTUR SNÚIÐ
Greinar8. maí, 2025WESAK TUNGLIÐ 12. MAÍ
Greinar13. apríl, 2025FULLT TUNGL Á PÁLMASUNNUDEGI
Greinar11. apríl, 2025MIKILVÆGI LIFRAR