Guðrún Bergmann

FULLT TUNGL Í HRÚTNUM

Tunglið var í nákvæmri samstöðu við Neptúnus – og ég man ekki eftir fullu Tungli í JAFN þéttri samstöðu við Neptúnus. Þessi samstaða leiðir okkur mun dýpra en sú athafnasemi Hrútsins sem knúin er áfram af sjálfsbjargarhvöt.

Lesa meira »

PLÁNETURNAR Í SEPTEMBER 2026

Úranus er líka öflugur og hann veldur “jarðskjálfta og eldgosum” hvort sem er í mannlífinu eða Jörðinni. Að auki veltir hann upp á yfirborðið alls konar upplýsingum sem faldar hafa verið, þar sem hann er í Tvíburunum – og verður þar til ársins 2033.

Lesa meira »

FULLT TUNGL OG TUNGLMYRKVI

Tunglmyrkvar eru í eðli sínu tengdir atburðum sem gerast hratt. Fullt Tungl er hulið af skugga Jarðar. Tunglið dökknar og verður síðan aftur að fullu upplýst á örfáum klukkustundum.

Lesa meira »

NÝTT TUNGL Í NAUTI 16.05.26

Við byrjum að sjá örla fyrir þessu nýja Tungli kl. 20:01 hér á landi. Það er í Nauti og í samstöðu við Sólina – eins og alltaf er á nýju Tungli. En áður en ég fjalla um Tunglið og áhrif þess vil ég vekja athygli ykkar á að þann 6. maí stöðvaðist Plútó til að breyta um stefnu og fara afturábak.

Lesa meira »

VESAK TUNGLIÐ 2026

Föstudaginn 1. maí verður Tunglið fullt á  ellefu gráðum og tuttugu mínútum í Sporðdreka, á meðan Sólin er á sömu gráðu í Nautinu. Tunglið nær fyllingu sinni hér í Reykjavík klukkan 17:23 síðdegis. Sporðdrekinn er fast (eða stöðugt) vatnsmerki og ber ávallt með sér mikla tilfinningalega dýpt. Mörg ykkar kunnið að finna fyrir henni aukast á næstu dögum, jafnvel eftir að Tunglið hefur náð fyllingu sinni.

Lesa meira »

TVEIR ÁHRIFAVALDAR

Það er ýmislegt í stjörnuspekinni, sem margir veita litla athygli. Fólk gleymir oft að fylgjast með smástirnum og dvergplánetum eins og Chiron og Eris. En hægt og hljóðlega hafa þessar plánetur verið að færast nær hvor annarri í Hrútnum. Þann 26. mars 2026 gengur Venus svo til liðs við þær og saman mynda pláneturnar sterka þrenningar samstöðu á tuttugu og fimm gráðum í Hrútnum. Þetta er einn af þessum atburðum sem fær ekki mikla athygli – en útskýrir samt ótrúlega margt af því sem er að gerast núna, bæði innra með okkur og úti í heiminum.

Lesa meira »

FRÁ FRÆI TIL FRAMVINDU

Þegar nýtt Tungl reis markaði það upphaf nýrrar hringrásar – tímabil þar sem hugmyndir, tilfinningar og áform eru enn í mótun. Í anda túlkunar Pam Gregory stjörnuspekings má segja að þetta hafi verið augnablik þar sem „ósýnilegu fræjunum“ var plantað. Þetta var tími sem kallaði á kyrrð, innsýn og viljann til að hlusta frekar en að framkvæma strax.

Lesa meira »

MERKÚR BREYTIR UM STEFNU

Þann 19. mars varð Tunglið nýtt í Fiskum og í gær þann 20. mars voru jafndægur á vori. Þrennan endar svo í dag 21. mars með því að Merkúr stöðvast til að breyta um stefnu og halda fram á við. Samtímis hafa verið gífurleg gos á Sólinni, en þau hafa magnað upp áhrifin frá plánetunum. Öll þessi orka hefur svo áhrif á okkur.

Lesa meira »

JAFNDÆGUR 20. MARS

Í dag, 20. mars verða jafndægur á norðurhveli Jarðar. Þetta er annað af tveimur mikilvægum tímamótum ársins þar sem dagur og nótt eru nær jafnlöng um allan heim. Jafndægrin eru sólarhringi á eftir nýju Tungli í Fiskum.  Þau eiga sér skýra stjarnfræðilega skýringu, því ás Jarðar hallar hvorki í átt að Sólu né frá henni á þessum tíma. Það leiðir til þess að sólargeislarnir falla jafnt á bæði norður- og suðurhvel.

Lesa meira »