NÝTT TUNGL Í NAUTI 16.05.26
Fyrst þó aðeins um áhrif Plútós
Við byrjum að sjá örla fyrir þessu nýja Tungli kl. 20:01 hér á landi. Það er í Nauti og í samstöðu við Sólina – eins og alltaf er á nýju Tungli. En áður en ég fjalla um Tunglið og áhrif þess vil ég vekja athygli ykkar á að þann 6. maí stöðvaðist Plútó til að breyta um stefnu og fara afturábak.
Hann stöðvaðist á rúmlega fimm gráðum í Vatnsbera og við það magnast táknfræði hans, en hún snýst um vald. Vald eins og það hefur verið í heiminum og breytingar og jafnvel niðurbrot á því valdi. Plútó verður í þessu afturábak ferli fram til 16. október, en þá snýr hann við til að fara beint áfram á þriðju gráðu í Vatnsberanum. Hann er því mjög áhrifamikill í nokkuð langan tíma.
STJÓRNVALD OG SJÁLFSVALD
Þetta ferli hjá Plutó snýst mjög um vald. Við sjáum skýrt, þar sem Úranus er í Tvíburum, hvernig gamaldags vald hefur stjórnað víða í heiminum (líka hér á landi) og hvernig það vald er að liðast í sundur og verða umbreyting á því. Plútó brýtur nefnilega niður og byggir upp og því er hann umbreytandinn mikli.
Þegar Plútó er á ferð afturábak fylgir því oft innri íhugun. Við snúum okkur inn á við og hugleiðum merkingu plánetunnar. Hvert er eðli valds, hvernig því er beitt í heiminum og hvernig okkur líður með það? Er þetta heilbrigt vald eða byggt á mjög gamaldags yfirráðum? Líkur eru á að við skoðum líka okkar eigin innri styrk og sjálfsvald.
LEYNDARMÁL OG SKÝRLEIKI
Plútó tengist einnig leyndarmálum. Þótt hann fari árlega afturábak um sporbaug sinn, snúa áhrif hans nú meira að afhjúpun leyndarmála. Úranus í Tvíburum tengist skýrleika og sannleika og það gerir Plútó í Vatnsbera líka. Því er eins og fortjaldið sé dregið frá mörgum hlutum sem áður voru faldir.
Leyndarmálin sem upp koma geta tengst fjármálum, gömlum stofnunum, stórum peningaupphæðum, földu fjármagni, kynferðislegum leyndarmálum, sértrúarsöfnuðum eða gamalgrónum leynifélögum.
SKUGGAHLIÐIN
Plútó sýnir oft skuggahlið þess merkis sem hann ferðast um. Þegar hann var í Steingeit kom margt upp um kapítalisma og bankakerfið, sérstaklega í kringum fjármálakreppuna 2008. Nú þegar hann er í Vatnsbera snúast máliin meira um vald tækninnar, gervigreindina, vísindi og áhrif tækninnar á andrúmsloftið og jörðina.
Plútó verður í Vatnsbera til ársins 2044, svo mikið mun koma í ljós á næstu árum. Ef þú ert með persónulegar plánetur á fjórðu til sjöttu gráða í föstu merkjunum – Nauti, Ljóni, Sporðdreka eða Vatnsbera – gætir þú fundið fyrir miklum þrýstingi til djúpstæðra breytinga. Þetta eru oft varanlegar umbreytingar, eins og hjá snák sem skiptir um ham.
PLÚTÓ OG ÚRANUS
Plútó og Úranus tengjast einnig jarðskjálftum og eldgosum. Því eru líkur á að það verði meira um jarðfræðilegar breytingar víða um heim á þessu ári en verið hefur.
Úranusi í Tvíburum fylgir hraði, ferskleiki og skýrleiki. Orkan hans er hvorki línuleg né fyrirsjáanleg heldur kemur í bylgjum og rafkenndum köstum. Líkur eru á að við finnum fyrir þessu bæði í líkama okkar og í jörðinni sjálfri.
Því skiptir miklu máli að vera með einfalda daglega iðkun sem hjálpar okkur að jarðtengja okkur – en hún getur falist í því að ganga berfætt í grasinu, stunda öndunaræfingar eins og kviðöndun, hugleiðslu eða einfaldlega að sitja í kyrrð.
SÓLIN Í TVÍBURUM
Þegar Sólin fer inn í Tvíburana þann 21. maí magnast þessi orka enn frekar. Ef þér finnst þú missa jafnvægið skaltu stíga til baka, slökkva á skjám og gefa þér tíma í náttúrunni. Með gervigreindinni og upplýsingaflóðinu sem henni fylgir, er orðið sífellt erfiðara að vita hvað er satt og hvað ekki.
Það gætu einnig orðið truflanir á rafmagni, netinu, samgöngum eða fjarskiptum. Gömlu orkukerfin okkar eru ekki byggð fyrir svona öflugar rafsegulbylgjur, eins og þær sem eru að koma frá Sólinni.
GRÍÐARLEGIR ÞRÓUNARMÖGULEIKAR
Þessum tíma fylgja gríðarlegir þróunarmöguleikar. Við fáum stuðning við að auka fjölvíddarskynjun okkar og opna fyrir aukið innsæi og skyggni.
Ef þú ert með plánetur á fyrstu gráðum í Tvíburunum, Meyjunni, Bogmanninum eða Fiskunum, gætir þú fundið sterka þörf fyrir frelsi og sjálfstæði. Úranus hvetur okkur til að fylgja því sem kallar á okkur í augnablikinu.
Þessi orka tengist einnig vaxandi frelsishreyfingu sem mun halda áfram að styrkjast á næstu árum.
NÝTT TUNGL Í NAUTI
Nýja Tunglið þann 16. maí er á tuttugu og fimm gráðum og 58 mínútum í Nauti. Nýtt Tungl táknar nýtt upphaf og er táknrænt fyrir nýtt fræ sem við viljum sá í lífi okkar.
Það er í samstöðu við Úranus, sem er á fyrstu gráðu í Tvíburunum. Á vissan hátt gefur sú samstaða til kynna að þetta Tungl sé táknrænt fyrir „NÝJA JÖRГ – nýja tíðni og nýtt meðvitundarstig.
Þrátt fyrir ringulreiðina í heiminum býður Nautið okkur upp á stöðugleika. Nautið tengist náttúru, fegurð, kyrrð og einfaldleika. Það hjálpar okkur að finna frið. Því er gott að hugsa um hvað þú vilt skapa í lífi þínu. Hvernig manneskja viltu verða? Er það einhver sem er rótfastur í friði, nærveru og hamingju?
Nautið kallar okkur aftur til einfaldleikans. Í stað þess að einblína á eigur ættum við að hugsa um gildin okkar. Með ytri pláneturnar í loft- og eldmerkjum verða mannleg tengsl, hugmyndir og reynsla mikilvægari en efnisleg staða.
RAFSEGULORKA OG KRISTALLAR
Úranus tengist rafsegulorku og kristöllun. Við erum því að að færast í átt að „kristallaðri“ líkamsvitund. Bein okkar eru í raun rafhlaðnir kristallar sem styrkjast við hreyfingu. Þegar við göngum, hlaupum eða lyftum þyngdum myndast örsmáar rafbylgjur í beinum okkar.
Satúrnus tengist beinum og líkamanum og hér er einnig sterk tilvísun í hærri tíðni ljóss sem kemur inn til Jarðarinnar og fæðingu nýrrar líffræði og nýrrar útgáfu af okkur sjálfum.
Þetta nýja Tungl er tækifæri til að kalla meira ljós inn í líf okkar. Umvefja ykkur ljósi í hugleiðslu. Finna fyrir litlum ljósneistum í líkamanum – í hjartanu, hvirflinum eða þriðja auganu – og leyfa þeim að stækka.
Biðja um hjálp frá leiðbeinendum eða englum ef það hentar. Leyfðu ljósinu að stækka innra með þér. Ég hef lengi haft þessa undirskrift undir tölvupóstum mínum: “Láttu ljós þitt skína eins og sú stjarna sem þú ert!” – og við erum öll stjörnur!
SKAPANDI ORKA
Þetta nýja Tungl hefur einnig sterka jarðneska orku. Satúrnus og Nautið hjálpa okkur að byggja eitthvað raunverulegt til framtíðar.
Merkúr og Úranus eru í samstöðu og mynda tengingu sem fylgir ný hugsun, ný viðhorf og jafnvel byltingarkenndar hugmyndir. Þetta er mjög skapandi og innsæisrík orka.
Þann 19. maí fer plánetan Mars inn í Nautið. Sú orka mun hjálpa til við að jarðtengja hugmyndir okkar – og væntanlega líka stuðla að meiri friði í heiminum.
Nýja Tunglið tengist einnig Ceres, gyðju korns og landbúnaðar. Það minnir okkur á mikilvægi þess að vera vel undirbúin og eiga alltaf einfaldar birgðir af mat heimavið.
BREYTINGAR Í VALDASTÖÐUM
Fastastjarnan Algol er mjög virk í þessu korti því hún er bæði í samstöðu við Merkúr og Úranus – og í raun við Sól og Tungl líka. Hún tengist því að „missa höfuðið“ – svo fólk gæti bæði orðið yfirbugað andlega séð eða áhrifamiklir einstaklingar gætu fallið úr stöðum sínum.
Úranus og Plútó mynda síðar í maí samhljóma tengingu sem eflir byltingarorku og frelsisþrá. Svipuð orka var mjög sterk á sjöunda áratugnum á tímum friðarhreyfinga og samfélagslegra breytinga. Væntanlega geta allir verið sammála um að mannkynið þráir frið og ljóst er að við erum að fara í gegnum miklar samfélagslegar breytingar.
ÚRANUS ÁHRIFAMIKILL
Úranus er mjög áhrifamikill nú þegar hann er kominn inn í Tvíburana. Hann tengist æðri þekkingu og mögulegri „galaktískri“ tengingu. Líklegt er að margir upplifi aukið innsæi og andlega vakingu á næstunni.
Í júní kemur Úranus til með að mynda spennuafstöðu við Suður- og Norðurnóðuna eða Tunglnóðurnar eins og þær eru líka kallaðar. Líklegt er að þá standi mannkynið á mikilvægum tímamótum þar sem stórar ákvarðanir þurfa að vera teknar.
Orkan í síðari hluta maí verður mjög hröð. Rafkennd orka gæti verið sterk og því er mikilvægt að halda jarðtengingu og innra jafnvægi.
NÝ FORYSTA
Mars og Plútó koma til með að mynda spennu í síðari hluta mánaðarins, sem getur birst sem hrá valdbeiting eða átök. Slíkt getur styrkt ákvörðun okkar um að vilja ekki lengur slíka forystu – og væntanlega veljum við hér á landi í kosningum dagsins víða nýja aðila til að taka við stjórn.
Líklegt er að leiðtogar framtíðarinnar verði öðruvísi en verið hafa – hugsjónafólk með nýjar hugmyndir og rólega en segulmagnaða nærveru.
Í lok maí verður fullt Tungl í Bogmanni sem líklegt er að varpi ljósi á forna visku og djúpa þekkingu.
Það er mikið umrót í gangi í heiminum. Ef þú bregst við af ótta gefurðu frá þér kraftinn. Ef þú bregst við af ró og innri meðvitund ertu í eigin valdi. Aðeins þú getur valið þína tíðni, þinn veruleika og þín viðbrögð gagnvart umhverfinu.
Myndir: Shutterstock.com og mynd af korti fyrir nýja Tunglið miðað við Reykjavík.
Heimild:
Skýringar Pam Gregory fyrir þetta nýja Tungl – þýddar og staðfærðar
@Guðrún Bergmann
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar15. maí, 2026NÝTT TUNGL Í NAUTI 16.05.26
Greinar30. apríl, 2026VESAK TUNGLIÐ 2026
Greinar26. mars, 2026TVEIR ÁHRIFAVALDAR
Greinar23. mars, 2026FRÁ FRÆI TIL FRAMVINDU

