VESAK TUNGLIÐ 2026

VESAK TUNGLIÐ 2026

Fullt Tungl í Sporðdreka 1. maí

Föstudaginn 1. maí verður Tunglið fullt á  ellefu gráðum og tuttugu mínútum í Sporðdreka, á meðan Sólin er á sömu gráðu í Nautinu. Tunglið nær fyllingu sinni hér í Reykjavík klukkan 17:23 síðdegis. Sporðdrekinn er fast (eða stöðugt) vatnsmerki og ber ávallt með sér mikla tilfinningalega dýpt. Mörg ykkar kunnið að finna fyrir henni aukast á næstu dögum, jafnvel eftir að Tunglið hefur náð fyllingu sinni.

Kort fyrir Tunglið kl. 17:23 í Reykjavík

 

PLÚTÓ BREYTIR UM STEFNU

Ástæðan er sú að Plútó, nútíma stjórnandi Sporðdrekans, stöðvast til að fara afturábak á fimm gráðum og þrjátíu mínútum í Vatnsbera þann 6. maí. Þegar pláneta skiptir um stefnu, sérstaklega ytri pláneta, magnast táknræn áhrif hennar í nokkra daga fyrir og eftir breytinguna.

Plútó mun verða á þessari fimmtu gráðu í Vatnsbera til 25. júní. Ef þú ert með plánetur (eða afstöður) í fæðingarkortinu þínu, sem tengjast fjórðu til sjöttu gráðu í föstu merkjunum Nauti, Ljóni, Sporðdreka eða Vatnsbera, gætir þú verið að upplifa djúpar breytingar í lífi þínu eða fundið fyrir utanaðkomandi þrýstingi til breytinga.

HVAR ÞARF AÐ SLEPPA TAKINU?

Skoðaðu hvar ellefu gráður í Sporðdreka lenda í þínu eigin stjörnukorti og í hvaða húsi kortsins það er, til að fá tilfinningu fyrir því hvað það er eða hvar það er sem þú þarft að sleppa takinu á, á þessu fulla Vesak Tungli.

Plútó er pláneta sem tengist valdi, hvort sem það er ytra valdakerfi eða þín eigin innri valdtilfinning – eða skortur á henni. Þetta fulla Tungl mun varpa ljósi á þessi málefni þar sem Plútó myndar einnig öfluga T-spennuafstöðu við bæði Sólina og Tunglið.

ÞAÐ SEM ÞJÓNAR EKKI LENGUR

Pláneturnar Sól, Tungl og Plútó eru allar í föstum merkjum. Föstum merkjum fylgir þrautseigja og ákveðin stjórnunartilhneiging. Tilfinning um að vilja ekki sleppa takinu á „því sem er“ til að halda stjórn á lífinu.

Í Nautinu getur þetta birst sem tenging við efnislega hluti eða eignir, en í Sporðdrekanum sem tilfinningaleg tengsl og sambönd. Allt þetta magnast og verður ákafara á þessu fulla Tungli, en fullt Tungl er einnig tími losunar – að sleppa því sem þjónar okkur ekki lengur.

VESAK HÁTÍÐIN

Þetta fulla Tungl tengist Vesak hátíðinnni, en hún snýst um að fagna lífi og starfi Búdda. Hátíðarhöld og hugleiðslur verða haldnar í tengslum við hana um allan heim. Gera má ráð fyrir að orkan frá hugleiðslum tengdum hátíðarhöldunum komi til með að hjálpa til við að hækka sameiginlega vitund okkar og gera okkur kleift að opna okkur fyrir æðri visku. Tími fyrir hugleiðslu hér á landi gæti t.d. verið á milli klukkan 17:00 og 18:00.

Ef þú átt ekki stjörnukort geturðu pantað þér kort með því að SMELLA HÉR!

HÉR ER grein þar sem fjallað er um hús stjörnukortanna!

Efni greinarinnar er þýtt og staðfært úr skýringum Pam Gregory stjörnuspekings af Guðrúnu Bergmann.
Myndir: Kortið sem fylgir tekur mið af Reykjavík kl. 17:23 þann 1. maí 2026
Aðrar myndir: Shutterstock.com

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN