TVEIR ÁHRIFAVALDAR
– Fá samt litla athygli
Það er ýmislegt í stjörnuspekinni, sem margir veita litla athygli. Fólk gleymir oft að fylgjast með smástirnum og dvergplánetum eins og Chiron og Eris. En hægt og hljóðlega hafa þessar plánetur verið að færast nær hvor annarri í Hrútnum.
Þann 26. mars 2026 gengur Venus svo til liðs við þær og saman mynda pláneturnar sterka þrenningar samstöðu á tuttugu og fimm gráðum í Hrútnum. Og þá verða áhrifavaldarnir þrír – en flestir eru mun meðvitaðri um Venus en Chiron og Eris.
Þetta er einn af þessum atburðum sem fær ekki mikla athygli – en útskýrir samt ótrúlega margt af því sem er að gerast núna, bæði innra með okkur og úti í heiminum.
STÖLDRUM AÐEINS VIÐ
– Þær veita dýpri skilning
Undanfarin ár hefur Chiron í Hrútnum verið að snerta viðkvæma strengi innra með okkur. Þá hluta af okkur, sem hafa þurft rödd, jafnvel þó þeim hafi aldrei verið gefið pláss til að nýta hana.
Margir hafa þó lagt í átökin og farið í gegnum sársaukafullt ferli, en líka losandi. Erfiðast er samt að svona heilunarferli kallar á að við berskjöldum okkur. Hið jákvæða er þó að í gegnum það höfum við smám saman öðlast dýpri skilning á okkur sjálfum… og meira hugrekki til að standa með því hver við erum.
CHIRON Í HRÚTNUM
– „ÉG ER“ sárið
Chiron snertir grunnsár tilverunnar. Það áfall sem við kunnum að hafa orðið fyrir í æsku eða síðar á lífsleiðinni, sem situr hvað fastast í okkur. Það áfall sem búið hefur til viðbrögð og mynstur í lífi okkar, sem við höfum þróað og notað til að lifa af – og fela sárin.
Þegar Chiron er í Hrútnum verða spurningarnar í kringum hann mjög hráar:
Af hverju er ég hér? Hef ég rétt á að vera til?
Í þessu merki hefur Chiron varpað ljósi á það hvernig við höfum í mörgum tilvikum lifað eins og tilvera okkar skipti ekki máli – og á sama tíma hvernig við höfum reynt að sanna hið gagnstæða.
Hann minnir svolítið á barnið sem var lagt í einelti í skólanum… og ákvað hljóðlega að vinna í því sem gagnrýnt var:
- „Þú ert heimsk/ur“ → verður að þrautseigju og vilja til að læra
- „Þú ert ljót/ur“ → verður að umhyggju fyrir líkamanum og vellíðan
- „Þú ert fátæk/ur“ → verður að sköpunarkrafti og hæfni til að byggja upp úr litlu
ERFIÐARI HLIÐIN
– Eineltið
Svo er það hin hliðin… sú sem er erfiðari, einkum ef hún tengist einelti. Einelti getur nefnilega snúist um eitthvað sem erfitt er að „laga“:
- „Þú tilheyrir ekki“
- „Við viljum þig ekki“
- „Það er eitthvað að þér – bara af því að þú ert þú“
…og það sem særir kannski mest: það sem við höfum enga stjórn á, en þar kemur Eris inn.
Ólíkt Chiron, sem vinnur með sár sem hægt er að heila smám saman, snýr Eris að óréttlæti sem er kerfisbundið. Að útilokun sem við getum ekki lagað, samið um eða „vaxið upp úr“. Í goðafræðinni er Eris ekki sú sem beitir afli – heldur skynsemi, orðum og tímasetningu.
ERIS Í HRÚTNUM
– Fíllinn í herberginu
Eris er þessi óþægilegi sannleikur sem enginn vill horfast í augu við. Fíllinn í herberginu, sem enginn vill sjá eða tala um.
Í mýtunni er Eris eina gyðjan á Ólympusfjalli sem ekki fær boð í brúðkaup. Hún mætir nú samt og kastar gullnu epli inn í hóp hinna gyðjanna og segir: “Fyrir þá fegurstu.”
Allar vildu þær vera sú fegursta og börðust um að ná eplinu, svo það leiddi til “stríðsástands”. Ekki vegna þess að Eris „valdi“ stríðið – heldur vegna þess að hún afhjúpaði kerfi sem var þegar orðið brothætt. Í goðsögninni er talað um að þessi slagur um gulleplið hafi leitt til Trójustríðssins.
Spurningin er kannski ekki hvort Eris sé að hefna sín…heldur hvort hún sé einfaldlega að draga fram það sem var þegar til staðar. Það sem var falið og þegar sannleikurinn kemur upp á yfirborðið – breytist allt.
VENUS Í HRÚTNUM
– Getum ekki lengur svikið okkur sjálf
Svo mætir Venus og þegar Venus kemst í samstöðu við Chiron og Eris verður allt mjög persónulegt.
Þá snýst þetta ekki lengur bara um sár eða óréttlæti – heldur um gildi. Um það sem skiptir okkur raunverulega máli.
Og þá komum við að ákveðnum punkti… þar sem við getum einfaldlega ekki lengur svikið okkur sjálf. Þegar þeim punkti er náð verður val óhjákvæmilegt.
Og í goðsögninni er það Venus sem „velur“ – og allt sem gerist eftir það fylgir þeirri ákvörðun. Það er bara þannig.
Það sem við veljum – mótar allt hitt og stundum þarf eitthvað að hrynja svo eitthvað nýtt geti fæðst. Eris er ekki orsökin. Hún er einungis síðasta hálmstráið. Augnablikið þegar spennan losnar úr kerfi sem gat ekki haldið sér lengur saman.
ÞEGAR „BARNIГ STENDUR LOKS Á SÍNU
– Allt upp á yfirborðið
Þessi samstaða á milli Venusar, Chiron og Eris – færir allt þetta upp á yfirborðið. Allt sem hefur verið að byggjast upp… fær nú rödd.
Þetta er eins og þegar barnið sem allir hlógu að stendur allt í einu upp – og enginn getur lengur hunsað það. Eða þegar sá hluti okkar sem var alltaf ýtt til hliðar segir: Hingað og ekki lengra.
Við erum að upplifa ákveðna endurstillingu. Bæði innra með okkur… og úti í heiminum. Kerfi sem hafa misst tengingu við sannleika sinn halda ekki lengur.
Og þótt það sé auðvelt að horfa út á við – liggur raunverulega gjöfin í því að spyrja:
- Hvar í mínu lífi er eitthvað komið að mörkum?
- Hvar hef ég verið að þegja… að aðlaga mig… að semja – þótt eitthvað innra með mér viti betur?
- Hvar er ég búin/n að vaxa upp úr aðstæðum sem ég þoli ekki lengur?
- Hvað þarf að breytast – svo ég geti loksins leyft því að vera… sem aldrei fékk að vera?
ALLT GERIST HRATT
– Við þurfum að halda innri ró
Það fylgir meiri drífandi kraftur plánetunum þegar þær eru á leið beint fram á við, en frá 20. mars eru þær allar á þeirri leið. Og þær verða það – allt fram til 4. eða 5. maí.
Þess vegna má gera ráð fyrir að í apríl gerist margt, mánuðurinn verði hraður, fullur af eldorku Hrútsins – og ekki síður eldorkunni frá ári Eldhestsins, en hann er táknrænn fyrir þetta ár í kínverskri stjörnuspeki. Við erum í miðju breytinganna, sem ekki verður framhjá komist. Haldið innri ró. Það hefur sjaldan skipt eins miklu máli og núna.
© Guðrún Bergmann
www.gudrunbergmann.is
Mynd– AI teiknuð
Fleiri greinar um stjörnuspeki síðustu vikna:
JAFNDÆGUR 20. MARS
SATÚRNUS OG NEPTÚNUS Í SAMSTÖÐU
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar26. mars, 2026TVEIR ÁHRIFAVALDAR
Greinar23. mars, 2026FRÁ FRÆI TIL FRAMVINDU
Greinar21. mars, 2026MERKÚR BREYTIR UM STEFNU
Greinar20. mars, 2026JAFNDÆGUR 20. MARS
