NÝTT TUNGL Í FISKUM

NÝTT TUNGL Í FISKUM

„Allar leiðir liggja til Rómar“ á rætur sínar að rekja til hins víðfeðma vegakerfis Rómverja sem eitt sinn tengdi höfuðborgina við fjarlægustu hluta heimsveldisins.

Orðatiltækið gefur til kynna að sama hvaða leið þú veldir, myndirðu að lokum enda á sama stað – því það sem er miðlægt og grundvallaratriði verður á endanum alltaf endapunkturinn.

Þessi myndlíking bendir til þess að hvaða vegakerfi sem er – eða merkingar, verkefni, heimsveldi – hafi miðju: upphafspunkt sem allt sprettur frá og sem allt snýr að lokum aftur til.

Þetta minnir okkur á Fiskana, síðasta merki stjörnumerkjahringsins. Haf Fiskanna er bæði endir á hringrás – allt í náttúrunni rennur að lokum til sjávar – og upphaf nýrrar, þar sem lífið sjálft kviknar í hafinu.

Í þessum skilningi færa Fiskarnir okkur aftur til dýpri uppruna sem við höfum gleymt. Þegar hann rifjast upp, afhjúpa dreifðir þræðir söguna sem þeir hafa alltaf verið hluti af.

NÝTT TUNGL Í FISKUM Í SAMSTÖÐU VIÐ NEPTÚNUS

Nýja Tunglið þann 19. mars 2026 er á tuttugu og átta gráðum í Fiskum og er í samstöðu við stjórnanda sinn, Neptúnus. Nýja Tunglið og Neptúnus mynda topp á þríhyrningi með Plútó í Vatnsbera og Úranusi í Nautinu.

Þar sem nýja Tunglið er virkjað af öllum ytri plánetunum fylgir því tilfinning um að margir ferlar sameinist í eina stund skilnings eða fullkomnunar.

Allar leiðir liggja að þessu nýja Tungli!

Tuttugu og átta gráður í Fiskum eru alveg á síðustu gráðum stjörnumerkjahringsins. Við erum enn í vatninu. En við erum líka mjög, mjög nálægt ströndinni. Við sjáum land framundan, heyrum hljóð og finnum að við erum að nálgast einhvern áfangastað.

FRÁ FISKUM TIL HRÚTS

Neptúnus, stjórnandi Fiskanna, er nú þegar kominn í Hrútinn. Stjörnuspekilega séð erum við því þegar komin inn í nýtt tímabil Hrútsins.

Samt kemur nýja Tunglið í lok Fiskanna til með að afhjúpa eitthvað grundvallaratriði um hvaðan við komum.

Þegar við komum inn í þennan heim á núll gráðu Hrútsins, er taflan þurrkuð – og við gleymum minningum fyrir fæðingu, fyrri lífum og stærri sögu sálarinnar.

En á mörkum Hrútins erum við enn mjög nálægt Fiskunum – og stundum berst okkur endurómur af þessum djúpu minningum í gegnum drauma og táknræn skilaboð.

Eins og hvísl frá vitsmunum alheimsins minna þessi fínu skilaboð okkur á hver við erum í raun, hvaðan við komum og leiðbeina okkur í því nýja lífi sem við höfum valið okkur.

NÝTT TUNGL Í FISKUM

Sabian táknið fyrir nýja Tunglið í Fiskum er „Ljósið sem fer í gegnum prisma“, en prisma er tæki sem skiptir ljósi upp í alla liti regnbogans.

Sem myndlíking talar prismað til hæfni okkar til að taka eitthvað sem virðist ógreint eða óljóst og greina undirliggjandi uppbyggingu þess. Prismað býr ekki til litina – það afhjúpar einfaldlega það sem var þegar til staðar í ljósinu.

Þetta nýja Tungl í Fiskum gæti fært okkur svipaða opinberun. Eitthvað sem hefur verið varpað á okkur eða litið á sem eina sögu, gæti nú skipt sér í mismunandi þætti. Það myndi gera okkur kleift að sjá skilaboðin eins og þau raunverulega eru.

Ef við höfum verið að „finna“ eitthvað en ekki skilið það skýrt, ef okkur hefur liðið eins og við séum hluti af sögu sem er enn ekki fullkomlega ljós…

… þá gæti nýja Tunglið í Fiskum leitt okkur aftur til “Rómar” – og veitt þá innsýn sem vantar til að við skiljum heildarmyndina. Þegar prismað er notað, þegar litrófið birtist, fellur allt á sinn stað.

Auðvitað liggja allir leiðir til Rómar! Eða… fylltu í eyðurnar – þangað sem er miðlægur uppruni eða sannleikur.

NÝJA TUNGLIÐ EYKUR SKILNING OKKAR

Nýja Tunglið í Fiskum hjálpar okkur að skilja dýpri söguna á bak við nýlega atburði.

Skilningurinn gæti birst sem:

  • Meðvitund um dýpri hvata og undirliggjandi krafta sem móta frásögnina
  • Skilningur á rót orsaka nýlegra þróana sem hafa verið að gerast bak við tjöldin
  • Ný „Róm“ eða „Atlantis“ sem rís upp – þ.e. viðskiptaleiðir, landfræðilegir áhrifakjarnar, efnahagslegar miðstöðvar

Á persónulega sviðinu mun nýja Tunglið í Fiskum hjálpa okkur að átta okkur á einhverju sem hefur lengi valdið okkur heilabrotum.

Þetta er nýtt Tungl á síðustu gráðum stjörnumerkjahringsins. Það er í samstöðu við Neptúnus á fyrstu gráðunni í Hrútnum. Sú samstaða hjálpar okkur að tengjast fyrirliggjandi auðlind eða vanmetinni innsýn til að skapa nýja sögu fyrir okkur sjálf.

TÍMABIL HRÚTSINS ER HAFIÐ

Tímabil Hrútsins er þegar hafið. „Hvað“ og „Hvernig“ hlutirnir verða, verður samt aðeins ljóst við og eftir þetta nýja Tungl.

Þann 19. mars er nýtt Tungl í Fiskum. Þann 20. mars fer Sólin inn í Hrútinn og virkjar upphafsgráðu stjörnumerkjahringsins.

Skömmu síðar eða þann 21. mars stöðvast Merkúr til að breyta um stefnu og fara beint fram á við. Þá verður hægt að hugsa skýrar og við verðum væntanlega með nýja framtíðarsýn.

Stjörnuspeki næstu vikna kallar á opinberanir, nýjar þróanir og vendipunkta.

Þegar dýpra mynstrið birtist að lokum, munum við skilja af hverju allar leiðir þurftu að liggja að þessu nýja upphafi.

****************

Heilmild: AstroButterfly.com

Þýðing: Guðrún Bergmann

#STJÖRNUKORT opnar fyrir þér skilning á þeirri orku sem þú komst með til Jarðar til að vinna úr. Einnig hvernig “transit” pláneturnar (þær sem eru á ferð um himinhvolfið núna) – hafa áhrif inn á fæðingarkortið þitt. Með afstöðum inn á fæðingarkort okkar gefa þær okkur “smá spark í rassinn” til að gera breytingar – láta drauma okkar rætast – eða taka á málum sem hafa setið á hakanum.

Sérstakt “fermingartilboð” á stjörnukortum – “fyrir fermingarbörn” á öllum aldri gildir til og með 24. mars.
SMELLTU HÉR til að panta þér kort!

 

Fleiri greinar um stjörnuspeki:

FYRRI HLUTI MARS 2026

STJÖRNUSPEKIN SÍÐARI HLUTA MARS

Þér er velkomið að skrá þig á póstlistann minn með því að SMELLA ÞÉR

 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN