MERKÚR BREYTIR UM STEFNU
Þann 19. mars varð Tunglið nýtt í Fiskum og í gær þann 20. mars voru jafndægur á vori. Þrennan endar svo í dag 21. mars með því að Merkúr stöðvast til að breyta um stefnu og halda fram á við. Samtímis hafa verið gífurleg gos á Sólinni, en þau hafa magnað upp áhrifin frá plánetunum. Öll þessi orka hefur svo áhrif á okkur.
MIKILVÆGIR ÞÆTTIR
Þessir dagar um miðjan mars mynda óvenju þétt og merkingaríkt tímabil þegar þrír mikilvægir þættir koma saman: nýtt tungl, jafndægur og síðan stöðvast Merkúr til að breyta um stefnu og fara beint áfram. Þetta ekki tilviljun heldur kraftmikið samspil sem bendir til umbreytinga og nýs upphafs.
Nýtt tungl er eins konar „tómleiki fullur af möguleikum“, þar sem hið ósýnilega er að taka á sig mynd – og við höldum áfram með ímyndunarafli okkar og innsæi að skerpa þá mynd. Þar hjálpar Hrúturinn okkur, því hann kveikir á frumkrafti, hugrekki og vilja til að hefja eitthvað nýtt.
MERKÚR STYRKIR UMSKIPTIN
Það sem gerir þetta tímabil mjög áhugavert er að Merkúr, plánetan sem tengist hugsun, samskiptum og skynjun, sé að breyta um stefnu til að halda beint áfram. Þegar Merkúr skiptir um stefnu skapast oft tilfinning fyrir skýrleika sem kemur í kjölfar ruglings eða endurskoðunar. Það sem áður var óljóst getur orðið skýrara, ákvarðanir festast og samskipti fara að flæða á ný.
Þetta verður nokkurs konar „endurstillingu hugans“, þar sem við fáum tækifæri til að samþætta það sem við höfum lært á meðan Merkúr var á ferð sinni aftur á bak að endurmeta allt. Þegar þessi breyting fellur saman við önnur öflug tímamót – eins og nýtt Tungl og jafndægur – geti áhrifin orðið margfölduð. Þá er eins og mismunandi lög af umbreytingu leggjist hvert ofan á annað.
HVAÐ VIL ÉG GERA NÚNA?
Fyrir einstaklinginn getur þetta verið góður tími til að staldra við og spyrja: Hvað þarf ég að skilja eftir? Hvað er það sem ég vil byrja að vinna að? Hvernig get ég tjáð mig skýrar í því sem fram undan er? Tímabil eins og þetta snýst um að vera meðvitaður þátttakandi í eigin lífi frekar en að láta straumana bera sig áfram. 👍
© Guðrún Bergmann
Fleiri greinar um stjörnuspeki síðustu daga:
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar26. mars, 2026TVEIR ÁHRIFAVALDAR
Greinar23. mars, 2026FRÁ FRÆI TIL FRAMVINDU
Greinar21. mars, 2026MERKÚR BREYTIR UM STEFNU
Greinar20. mars, 2026JAFNDÆGUR 20. MARS
