JAFNDÆGUR 20. MARS
-Tímamót ljóss og jafnvægis
Í dag, 20. mars verða jafndægur á norðurhveli Jarðar. Þetta er annað af tveimur mikilvægum tímamótum ársins þar sem dagur og nótt eru nær jafnlöng um allan heim. Jafndægrin eru sólarhringi á eftir nýju Tungli í Fiskum. Þau eiga sér skýra stjarnfræðilega skýringu, því ás Jarðar hallar hvorki í átt að Sólu né frá henni á þessum tíma. Það leiðir til þess að sólargeislarnir falla jafnt á bæði norður- og suðurhvel.
UPPHAF VORS Á NORÐURHVELI
Frá vísindalegu sjónarhorni markar þessi dagur upphaf vors á norðurhveli. Sólin fer yfir miðbaug himins og verður sífellt hærra og lengur á lofti næstu mánuði. Fyrir okkur sem búum á norðlægum slóðum hefur þetta sterk áhrif, þar sem birtan tekur að aukast hratt eftir langan vetur. Jafndægur eru því ekki aðeins stærðfræðilegt jafnvægi ljóss og myrkurs, heldur einnig táknræn umbreyting í náttúrunni – frá kyrrstöðu og dvala til vaxtar og nýs lífs.
JAFNDÆGUR HAFA DJÚPA MERKINGU
Í stjörnuspeki hafa jafndægur einnig djúpa merkingu. Samkvæmt túlkunum stjörnuspekinga á borð við Pam Gregory og Rick Levine tákna jafndægur jafnvægi milli andstæðra afla – ljóss og skugga, innri og ytri veruleika. Þau eru talin opna eins konar „orkuglugga“ þar sem einstaklingar geta endurstillt sig, sleppt gömlu mynstri og sett sér ný markmið. Þetta fellur vel að þeirri hugmynd að vorið sé tími nýs upphafs.
INNRI UPPLIFUN
Pam Gregory hefur lagt áherslu á að jafndægur séu ekki aðeins atburður á himninum heldur einnig innri upplifun. Hún bendir á að með jafnvægi í náttúrunni skapist kjöraðstæður til að finna jafnvægi innra með okkur sjálfum. Þetta getur birst sem aukin meðvitund, löngun til breytinga eða einfaldlega tilfinning fyrir endurnýjun.
ENDURNÝJUN HRINGRÁSARINNAR
Rick Levine fjallar um jafndægur sem tímamót þar sem hringrásin endurnýjast. Í stjörnuspeki marka vorjafndægur upphaf hrings stjörnumerkjanna, því þá fer Sólin inn í Hrútinn. Hann er fyrsta stjörnumerkið í stjörnumerkjahringnum. Hrúturinn er tákn um frumkraft, frumkvæði og hugrekki til að hefja ný verkefni. Þessi orka getur hvatt fólk til að taka skref sem það hefur lengi frestað.
Þrátt fyrir mismunandi nálganir eiga þessar túlkanir það sameiginlegt að líta á jafndægur sem jafnvægispunkt – bæði í náttúrunni og í lífi mannsins. Hvort sem við skoðum þau út frá vísindum eða stjörnuspeki, minna þau okkur á að allt er á sífelldri hreyfingu. Jafnvægi er því ekki varanlegt ástand, heldur augnablik sem við getum nýtt okkur.

KORTIÐ FYRIR JAFNDÆGRIN
Kortið sem ég gerði fyrir jafndægrin er mjög sérstakt að því leyti að pláneturnar raða sér nánast allar í ellefta og tólfta húsið í kortinu. Ég nota svokallað Placidus kerfi þegar ég geri kortin og þá eru húsin oft misstór. Þríhyrningurinn í kortinu er á milli Plútós á fimm gráðum í Vatnsbera. Í því merki er hann að brjóta niður gömlu kerfin og byggja upp ný og betri með meira jafnræði meðal fólks. Plútó er í sextíu gráðu samhljóma afstöðu við bæði Satúrnus á fjórðu gráðu og Neptúnus á fyrstu gráðu í Hrútnum.
SAMSTAÐA 20. FEBRÚAR
Þetta eru pláneturnar sem voru í magnaðri samstöðu þann 20. febrúar síðastliðinn – á NÚLL gráðu í Hrútnum. Þær voru síðast í samstöðu á þessari núll gráðu fyrir 6.300 árum síðan. Núll gráðan er sköpunargráðan, svo við stöndum á þröskuldi þess að skapa nýja drauma. Draumarnir eru Neptúnus og byggingaraðilinn er Satúrnus, sem er að hjálpa okkur að gera þá að veruleika.
PLÚTÓ BRÝTUR NIÐUR – ÚRANUS VELDUR JARÐSKJÁLFTA
Plútó á fimmtu gráðu í Vatnsbera er svo í hundrað og tuttugu gráðu utanmerkja afstöðu við Úranus á tuttugu og átta gráðum í Nauti og dvergplánetuna Sedna á núll gráðu í Tvíburunum. Plútó í Vatnsbera vill sannleikann og Úranus er duglegur að koma honum upp á yfirborðið, oft með sprengikrafti. Svona nálægt Tvíburunum er Úranus líklegur til að draga upp á yfirborðið ýmislegt sem falið hefur verið og á eftir að koma fólki á óvart. Úranus getur bæði verið táknrænn fyrir jarðskjálfta og eldgos meðal fólks, svo og í Jörðinni sjálfri.
SVIK SAMFÉLAGSINS
Sedna er táknræn fyrir svik (beggja kynja) og þá fórnarlambsvitund sem fylgir hjá þeim sem sviknir eru. Ýmsir stjörnuspekingar hafa talað um að þegar Úranus komi inn í Tvíburana 24. apríl í nákvæma samstöðu við Sedna getum við losnað undan þessari fórnarlambsvitund fortíðarinnar og leitað meira í andlega innri vinnu.
EITTHVAÐ ÓSAGT
Ég ætla ekki að skýra kortið frekar þótt ótal margt annað sé hægt að lesa úr því. Tólfta húsið er táknrænt fyrir stórar stofnanir og kerfi hvers konar, endalok og nýtt upphaf. Við erum því að segja skilið við hið gamla á svo margan máta – og byrja að láta okkur dreyma (Neptúnus) um eitthvað nýtt og betra. Júpiter í Krabba í níutíu gráðu spennuafstöðu við Tunglið í Hrútnum, bendir til þess að það sé eitthvað sem við segjum ekki eða biðjum ekki um – eða verðum mjög tilfinningasöm ef við gerum það.
NÆSTU SKREF
Fyrir flesta er 20. mars góður dagur til að staldra við, líta yfir farinn veg og velta fyrir sér næstu skrefum. Það má gera á einfaldan hátt – með göngutúr í vaxandi birtu, með því að setja sér ný markmið eða einfaldlega með því að taka eftir breytingum í umhverfinu.
Jafndægur minna okkur á að eftir myrkur kemur ljós, og að jafnvel smæstu breytingar í stöðu Jarðar geta haft djúpstæð áhrif á líf okkar. Þau eru áminning um hringrás náttúrunnar – og okkar eigin.
@Guðrún Bergmann
www.gudrunbergmann.is
Mynd: Kort gert fyrir Reykjavík á jafndægrum
Mynd: Jafnvægi á milli dags og nætur
Fleiri greinar um afstöður plánetanna og áhrif þeirra í mars.
STJÖRNUSPEKI SÍÐARI HLUTA MARS
SATÚRNUS OG NEPTÚNUS Í SAMSTÖÐU
HÉR ER HÆGT AÐ PANTA SÉR STJÖRNUKORT
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar26. mars, 2026TVEIR ÁHRIFAVALDAR
Greinar23. mars, 2026FRÁ FRÆI TIL FRAMVINDU
Greinar21. mars, 2026MERKÚR BREYTIR UM STEFNU
Greinar20. mars, 2026JAFNDÆGUR 20. MARS
