Stjörnuspekin síðari hluta mars

STJÖRNUSPEKIN – SÍÐARI HLUTA MARS

Í byrjun marsmánaðar var ég með yfirlit yfir stjörnuspekina í fyrri hluta mánaðarins. Nú fjalla ég hins vegar um síðari hluta mánaðarins, sem er strax kraftmikil.

MERKÚR, MARS OG NORÐURNÓÐAN Í SAMSTÖÐU

Frá 14. til 17. mars myndast mjög kraftmikil þreföld samstaða á milli Merkúrs á ferð afturábak og Mars. Báðar pláneturnar virkja Norðurnóðuna (framtíðina), sem nú er á átta gráðum í Fiskum. Þann 15. mars er svo nákvæm samstaða milli Merkúrs og Mars á níu  og tíu gráðum í Fiskum.

Þegar pláneta hugans (Merkúr) mætir plánetu athafna (Mars), hugsum við ekki bara eða tölum um eitthvað – við framkvæmum það. Við förum af stað. Og þegar við förum af stað, förum við ekki í hvaða átt sem er. Með Norðurnóðunni er fókus okkar í takt við þá átt sem við eigum að vaxa í – þangað sem umbreytingin er að leiða okkur.

NÝTT TUNGL Í FISKUM

Þann 19. mars 2026 verður svo heillavænt nýtt Tungl (kl. 01:23 hér á landi) á tuttugu og átta gráðum í Fiskum. Nýja tunglið er í utan merkja samstöðu við Neptúnus og Satúrnus (nú á fyrstu gráðum Hrúts) og er í nákvæmri utan merkja sextíu gráðu afstöðu við Úranus sem er aftast í Nautinu (fer inn í Tvíburana í apríl).

Þetta nýja Tungl getur hjálpað okkur að sjá hvernig við getum tekið draum okkar – eða það sem við héldum að aldrei yrði að veruleika – og gert að raunveruleika, með einum eða öðrum hætti.

Niðurstaðan verður kannski ekki nákvæmlega eins og við ímynduðum okkur í upphafi. Satúrnus og Neptúnus eru nú í Hrútnum, þannig að birtingin er önnur en meðan draumurinn (Neptúnus) var í Fiskunum.

Engu að síður verður þetta birting á einhverju sönnu – einhverju sem hefur verið að byggjast upp lengi og er nú tilbúið til að taka á sig áþreifanlegri mynd.

Kortið fyrir Nýja Tunglið er gert fyrir Reykjavík

SÓLIN FER INN Í HRÚTINN

Þann 20. mars 2026 á Jafndægrum á vori fer Sólin inn í Hrútinn, svo hægt er að óska öllum til hamingju með upphafið á nýju stjörnuspekiári – þar sem Hrúturinn er fyrsta merkið í stjörnumerkjahringnum!

Líkt og Venus fyrr í mánuðinum mun Sólin, stuttu eftir að hún er komin inn í Hrútinn, mynda samstöðu við bæði Neptúnus (21. mars) og Satúrnus (nákvæm 25. mars).

Nú fara hlutirnir virkilega að gerast. ÞETTA er hið raunverulega upphaf nýrrar hringrásar – nýrrar ferðar hetjunnar í okkur öllum inn í framtíðina.

Þegar Sólin fer yfir “þröskuldinn” inn í Hrútinn færumst við frá því að bíða eftir að hlutir gerist „þarna úti“ yfir í að láta þá sjálf gerast. Hrúturinn almennt – og sérstaklega NÚLL gráðan í Hrútnum – ber með sér frumorku sem skapar ótrúlegan skriðþunga.

Þess vegna eru 20. mars og dagarnir þar á eftir sérstaklega mikilvægir til að koma orði yfir og ná skýrri mynd af því hver tilgangur okkar er. Frá þessum punkti verður ekki aftur snúið til gömlu útgáfunnar af okkur.

MERKÚR FER BEINT ÁFRAM

Þann 21. mars 2026 breytir Merkúr um stefnu á átta gráðum í Fiskum til að fara beint framávið. Við það losnar um hluta af þeirri “þoku” sem safnast alltaf saman í síðasta merki stjörnumerkjahringsins. En ef við erum alveg heiðarleg, finnst okkur stundum gott að týnast í “þokunni”. Við köllum það dagdrauma, skapandi flakk eða einfaldlega að taka sér frí – en „frí“ er mjög mikið Merkúr-í-Fiskum-orð.

Stundum þurfum við þessa kyrrð, þetta flæði, þetta rými þar sem hlutirnir eru ekki skýrt afmarkaðir, til að tengjast okkur sjálfum aftur, svo og því sem skiptir raunverulega máli.

Þegar Merkúr fer aftur framávið byrja innsýnirnar sem söfnuðust upp á ferð hans afturábak að kristallast. Það sem var óljóst fer að “meika meira sens”.

VENUS Í SAMSTÖÐU VIÐ CHIRON Í HRÚT

Þann 26. mars 2026 verður Venus í samstöðu við Chiron á tuttugu og fimm gráðum í Hrútnum og minnir okkur á hvar enn er þörf á heilun og hvar enn þarf að samþykkja „ÉG ER“ þáttinn í okkur.

Við höfum samt náð langt. Undanfarin 7 ár, á meðan Chiron hefur verið í Hrútnum, höfum við ár hvert öðlast aðeins meiri sjálfsskilning og aðeins meira hugrekki til að standa fullvalda í því hver við erum.

Hvort sem þú trúir því eða eða ekki – þá er þetta allra síðasta Venus–Chiron samstaðan í Hrútnum næstu 43 árin. Venus í samstöðu við Chiron mun færa  okkur byltingu í skilningi á því hvernig við tengjumst okkur sjálfum – og dýpri viðurkenningu á því að við erum nóg eins og við erum.

SATÚRNUS Í SEXTÍU GRÁÐU AFSTÖÐU VIÐ PLÚTÓ

Þann 28. mars 2026 myndar Satúrnus (á 5. gráðu Hrútsins) nákvæma sextíu gráðu afstöðu við Plútó (á 5. gráðu í Vatnsbera). Þetta er lúmsk en uppbyggileg afstaða sem bendir til þess að dýpri kerfisbreytingar séu að fá virkan stuðning.

Satúrnus leiðir til aga og framkvæmda. Plútó leiðir til kerfislæga umbreytinga. Sextíu gráðu afstaðan á milli þeirra bendir til þess að heimurinn sé mögulega að byrja að byggja upp nýja raunverulega innviði.

Samtöl um innviði – mögulega tengd orku, kerfum eða stefnumótandi bandalögum – gætu farið að færast frá hugmynd yfir í framkvæmd. Þetta er hvorki hávært né dramatískt. En það er virkt og framkvæmanlegt. Stundum er það nákvæmlega það sem þarf til að raunveruleg breyting nái fótfestu.

VENUS FER INN Í NAUTIÐ

Þann 30. mars 2026 fer Venus svo inn í heimamerki sitt, Nautið. Ímyndaðu þér Afródítu í lystigörðum Babýlonar – sem táknmynd áreynslulausrar fegurðar sem á rætur sínar að rekja til náttúrunnar.

Jafnvel þótt við tengjumst ekki almennt Venusi frá þessum jarðbundna, skynræna vinkli – þá breytist andrúmsloftið alltaf aðeins þegar Venus er í Nautinu.

Heimurinn verður aðeins jarðbundnari, aðeins áþreifanlegri og aðeins fegurri.

Grunnheimild: Grein á www.astrobutterfly.com

Þýðing og aðlögun á texta: Guðrún Bergmann

STJÖRNUKORT skýra svo vel líkindi þess sem kann að gerast í lífi okkar – eða kannski öllu heldur opna augu okkar fyrir tækifærum sem eru nú í kortunum okkar. Ef þú átt ekki persónulegt stjörnukort GETURÐU PANTAÐ HÉR!

 

 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN