PLÁNETURNAR Í SEPTEMBER 2026

Pláneturnar í september 2026

Í kjölfar öflugs myrkvatímabils, eru breytingarnar sem þeim fylgja að koma í ljós. Það sjáum við meðal annars í stjórnmálunum víða um heim, svo sem í kosningum hér á landi og í Þýskalandi. Einnig í stórum mótmælum á Spáni og víðar. Plútó er í Vatnsberanum, sem þýðir að valdið er að færast til FÓLKSINS – og yngra fólk er að móta nýja stefnu, því gömlu kerfin eru að liðast í sundur og hrynja.

Úranus er líka öflugur og hann veldur “jarðskjálfta og eldgosum” hvort sem er í mannlífinu eða Jörðinni. Að auki veltir hann upp á yfirborðið alls konar upplýsingum sem faldar hafa verið, þar sem hann er í Tvíburunum – og verður þar til ársins 2033.

Í grein minni um Tunglmyrkvann, sem varð 28. ágúst, daginn fyrir kosningu um ESB málið, kom þetta meðal annars fram:

Tunglmyrkvar eru í eðli sínu tengdir atburðum sem gerast hratt. Það sem myndi venjulega þróast smám saman yfir 29,5 daga hringrás Tunglsins gerist nú innan örfárra klukkustunda. Það þýðir að áþreifanlegar aðstæður – hlutir sem gerast fyrir allra augum og í hinum ytri veruleika (Jörðin varpar skugga sínum á Tunglið) – gera það ómögulegt að sitja hjá og gera ekkert. Hvað sem á dynur verðum við að breyta um stefnu.

Það er einmitt að eiga sér stað….

LÍFIÐ HELDUR ÁFRAM

Það eru góðir dagar, erfiðir dagar og óvæntir viðsnúningar. En undir öllu þessu er eitthvað að færast í uppbyggilega átt. Neptúnus og Plútó, ystu pláneturnar sem notaðar eru almennt í stjörnukortum (fyrir utan dvergpláneturnar), mynda nákvæma sextíu gráðu afstöðu sín á milli í þessum mánuði. Hinu nýja Tungli mánaðarins þann fylgir uppbyggileg orka og ýmsar plánetur eru að flytja sig á milli merkja.

MERKÚR OG VENUS

Þann 10. september skipta innstu pláneturnar tvær – Merkúr og Venus – um merki og fara inn  í svokallað skuggasvæði sambanda. Í samböndum erum við andspænis hvort öðru – og þeim þáttum í okkur sjálfum sem aðeins er hægt að skilja með því að spegla sig við aðra.

Ferlið er aldrei auðvelt því spegillinn er aldrei hlutlaus. Þegar hlutirnir verða ákafir, þegar þú finnur þig dragast inn í gömul mynstur, mundu: þetta er það sem fylgir raunverulegri nánd – og hún er þess virði – en haltu samt fast í að það er breytinga þörf.

NÝTT TUNGL Í MEYJU

Þann 11. september klukkan 03:27 kveiknar hér á landi nýtt Tungl á 18 gráðum í Meyjunni. Eins og alltaf á nýju Tungli eru Sól og Tungl í samstöðu og í þetta sinn í nokkuð nákvæmri samhljóma 60 gráðu afstöðu við Mars í Krabbanum, sem getur verið táknrænt fyrir góða samvinnu/samstöðu.

Merkúr, sem er fremst í Voginni, stjórnar þessu Tungli og myndar samhljóma  stóran þríhyrning við Úranus og Plútó. Enginn er betri en Meyjan í að færa eitthvað frá „þetta er skynsamlegt“ yfir í „þetta virkar í raun og veru“. Meyjan er nefnilega snillingur í skipulagningu.

ÚRANUS BREYTIR UM STEFNU

Sama dag og Tunglið verður nýtt stöðvast Úranus á 5 gráðum í Tvíburum til að breyta um stefnu og fara aftur á bak. Það er tiltölulega stutt síðan Úranus fór inn í Tvíburana og engu er líkara en hann hafi verið að þreyfa sig þar áfram – en með þessari stefnubreytingu eru líkur á að hann sé að hækka hljóðstyrkinn á nýju Tvíbura-dagskránni sinni. Þessi viðsnúningur hans gæti gefið okkur mjög skýra vísbendingu um hvað næstu 7 ár snúast eiginlega um.

MERKÚR – PLÚTÓ – ÚRANUS – NEPTÚNUS

Þegar Merkúr nær 3–5 gráðum í Voginni styrkist 120 gráðu tengingin við Úranus og Plútó, sem verður þá upp á gráðu – OG Merkúr verður líka í 180 gráðu spennuafstöðu við Neptúnus í Hrút. Munið að Neptúnus stendur fyrir drauma okkar, langanir og innsæi.

Þótt ytri plánetur eins og Úranus, Neptúnus og Plútó séu í nýjum merkjum, virkjast þær ekki nema þær hafi tengingu við einhverja af persónulegu plánetunumm sem eru Sól, Tungl, Merkúr, Venus og Mars.

Við erum svo vön að meðhöndla hugsanir (Merkúr) okkar og innra samtal sem SANNLEIKANN. En sannleikurinn er sá að þegar Merkúr er skilinn eftir einn, tapar hann oft áttum í hvað er rétt og hvað ekki.

Að taka inn raunveruleikann – hin sjónarhornin, hvernig hlutirnir eru í raun að þróast á miklu stærri skala og hvernig þeir falla inn í miklu stærri mynd – getur verið auðmýkjandi, en líka frelsandi.

Þessi Merkúr-afstaða við allar þessar plánetur flytur okkur út úr litlu sögunni í höfðinu á okkur og tengir okkur við miklu stærri veruleika.

LILITH FER Í STEINGEITINA

Þann 14. september fer Svarta Tunglið Lilith inn í Steingeitina. Lilith er skuggi Tunglsins – og táknræn fyrir allar þær tilfinningar, skynjanir og sálrænu flækjur sem aldrei komast í ljós meðvitundarinnar. En það þýðir ekki að þær hverfi. Þær fara niður undir yfirborðið og festast í líkamanum sem hrátt, ósíað sálrænt efni.

Svarta Tunglið Lilith er í grundvallaratriðum það sem Tunglið vill þegar Sólin ekki sér. Þegar þessi hluti okkar fer inn í Steingeitina kemur því Lilith-hlið merkisins fram.

Steingeitin er upphafsmerki Jarðar – hún tengist því hvernig við krefjumst Jarðar okkar, hvað við erum tilbúin að vinna fyrir, og hvað verður óumsemjanlegt í efnislegum heimi.

Þetta getur litið út eins og uppreisn gegn falskri valdstjórn, eða enduruppgötvun á metnaði sem við höfum ekki leyft okkur að hafa áður.

Eða þvert á móti: að átta sig á að vinnufíkn eða að „halda í við nágrannana“ getur verið staðgengill fyrir – fremur en tjáning á – RAUNVERULEGUM metnaði okkar.

VENUS Í SPENNUAFSTÖÐU VIÐ PLÚTÓ

Þann 15. september verður Venus á 3 gráðum í Sporðdreka í níutíu gráðu spennuafstöðu  við Plútó og gefur okkur forsmekk af því hvernig næstu mánuðir munu verða.

Venus kemur til með að stöðvast á 8 gráðum í Sporðdrekanum  snemma í október. Venus er hins vegar nú þegar farin að hægja mjög á sér, sem þýðir að Venus–Plútó afstaðan verður virk óvenju lengi. Við erum í raun að tala um næstum þriggja mánaða ferli, samanborið við að oftast varir svona afstaða einungis í einn eða tvo daga.

Enginn á þessari Jörðu fær að halda áfram að vera á yfirborðinu með hlutina. Það verður kafað dýpra en þægilegt þykir.

NEPTÚNUS Í SEXTÍU GRÁÐU AFSTÖÐU VIÐ PLÚTÓ

Þann 15. september verður nákvæm sextíu gráðu afstaða milli  Neptúnusar í Hrút og Plútó í Vatnsbera. Þetta er fíngerð en mjög mikilvæg afstaða.

Þetta er ekki fyrsta sextíu gráðu afstaðan á milli Neptúnusar og Plútó – því það hafa verið nokkrar nákvæmar afstöður á undanförnum áratugum. Þetta er hins vegar sú fyrsta með Neptúnus í Hrút og Plútó í Vatnsbera.

Nákvæma afstaða eins og þessi er himneskur „stimpill“ – augnablik þar sem allt kristallast. Allir þeir mánuðir og ár þar sem Neptúnus og Plútó hafa dansað umhverfis hvort annað eru á vissan hátt undirbúningur fyrir þessa nákvæmu mætingu.

Í beinni túlkun eru þetta góðar fréttir. Allt bendir til þess að handan skilnings okkar veiti Alheimurinn okkur mögulega þann stuðning sem þarf til að draumar okkar verði að veruleika.

Nákvæmur skilningur getur komið á því hvernig eitthvað sem við skynjuðum að skipti máli en gátum ekki alveg náð utan um, fellur í raun inn í miklu stærra ferli.

Skoðaðu kortið þitt, því þau hús þar sem Hrútur og Vatnsberi ráða ríkjum geta gefið þér frekari vísbendingar um hvar þessar breytingar gætu byrjað að sjást í lífi þínu.

SÓLIN FER INN Í VOGINA

Þann 23. september fer Sólin inn í Vogina með gleðilegu jafndægri að hausti fyrir okkur öll. Dagur og nótt verða jöfn.

Jafndægur eru líka vendipunktur → jafnvægið milli dags og nætur breytist nú. Ný árstíð kemur með nýjum þróunum, nýjum tækifærum og nýju upphafi.

Og þótt Vogin sé næstum samheiti yfir orðið „jafnvægi“ – og jafnvægi hljómi svolítið eins og aðgerðaleysi – skulum við ekki gleyma að Vogin er upphafsmerki. Tímabil Vogarinnar er í raun frábær tími til aðgerða – að koma sér á framfæri, hefja ný hugmyndaverkefni eða mynda ný félagsleg tengsl.

FULLT TUNGL Í HRÚTNUM

Þann 26. september klukkan 16:49 verður Tunglið fullt á 3 gráðum í Hrútnum í nákvæmri samstöðu við Neptúnus. Það minnir á það sem Carl Jung kallaði „stóran draum“ – arketýpískan draum sem opinberar eitthvað óvenjulegt um okkur sjálf og tilgang okkar.

Gefðu gaum að skilaboðum sem koma til þín eftir óbeinum leiðum. Eitthvað um tilgang þinn gæti verið að koma fram og smella saman. Þetta gæti tengst því að draumar rætist eða þú skynjir betur hvað þér er ætlað að gera héðan í frá.

MARS FER INN Í LJÓNIÐ

Þann 28. september yfirgefur Mars Krabbann og fer inn í Ljónið. Í sannleika sagt var staða Mars í Krabba ekki auðveld – ekki bara vegna spurninga um eðlislægan styrk. Mars í Krabbanum var í 90 gráðu afstöðu við Neptúnus og Satúrnus – án mikils stuðnings frá vatns- eða jarðmerkjum því, ólíkt fyrri árum, hafa ytri pláneturnar allar flutt sig yfir í eld- og loftmerki.

Hlutirnir verða aðeins áhugaverðari með Mars í Ljóninu. Til að byrja með verður Mars í 180 gráðu spennuafstöðu við Plútó. Þar mætast stálin stinn, þótt þau mildist aðeins af afstöðunum við Neptúnus og Úranus.

Hlutirnir verða hins vegar áhugaverðari þegar Mars nálgast Júpíter í Ljóni (nú á 15 gráðum) og síðan Suðurnóðuna (nú á 29 gráðum í Ljóni). Þetta verður mjög áhugavert ferli hjá  Mars, vegna þess að á næsta ári fer plánetan aftur á bak – aftur inn í Ljónið, svo við eigum von á að Mars verði mun lengur í Ljóninu en vanalege eða allt þar til í júní árið 2027.

Greinarhöfundur: Guðrún Bergmann 
Heimild: Greinin er að hluta byggð á skýringum Astro Butterfly

Guðrún hóf nám í stjörnuspeki árið 1984 og fékk strax mikinn áhuga á henni. Hún hefur síðan þá nýtt sér hana ótrúlega mikið í eigin lífi. Eftir að hún missti manninn sinn heitinn Guðlaug Bergmann, og var ein með rekstur á Hótel Hellnum, réði hún starfsfólk í gegnum vinnumiðlanir árin 2005-2010 með aðstoð stjörnuspeki. Þá var ekki hægt að spjalla í gegnum Messenger eða Zoom og þá þurftu pláneturnar í kortum umsækjenda að vísa henni veginn.

Ef þú átt ekki STJÖRNUKORT geturðu pantað þér kort með því að SMELLA HÉR!

Grein um Sólmyrkvann 12. ágúst er að finna HÉR

Stjörnukortin í greininni eru fyrir nýja og fulla Tunglið í september – og miðast við Reykjavík.

Mynd: Shutterstock.com

 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN