FULLT TUNGL Í HRÚTNUM

Fullt Tungl í Hrútnum – á forsendum sálarinnar

Fulla Tunglið í Hrútnum sem varð þann 26. september gæti einmitt verið það sem færir okkur skilninginn og hugrekkið til að láta loksins verða af hlutunum.

Það var upp á gráðu í samstöðu við Neptúnus, á toppi Flugdreka sem myndast í kortinu og beinir allri orku ytri plánetanna inn í Hrútinn. Verður fulla Tunglið sá punktur þar sem þetta handanpersónulega, þarf að verða persónulegt – þarf að verða val, athöfn eða skref.

Hér verður orka Hrútsins á þessu tiltekna fulla Tungli áhugaverð.

Hrúturinn starfar venjulega „á eigin forsendum“. Hann er fyrsta merki dýrahringsins: sjálfmiðaður, upptekinn af sjálfsvernd, sjálfstæði og réttinum til að bregðast við í eigin þágu.

Nákvæm samstaða við Neptúnus

Tunglið var í nákvæmri samstöðu við Neptúnus – og ég man ekki eftir fullu Tungli í JAFN þéttri samstöðu við Neptúnus. Þessi samstaða leiðir okkur mun dýpra en sú athafnasemi Hrútsins sem knúin er áfram af sjálfsbjargarhvöt.

Frá mínum forsendum til forsendna sálarinnar.

Eitthvað svo djúpt, svo grundvallandi um það hver við erum, að það verður að tilvistarlegri köllun.

Þetta snýst ekki bara um okkur og það sem við viljum – heldur um þá vitund að með því að heiðra okkar sanna sjálf heiðrum við allan heiminn.

Þessi orka kemst eins nálægt og hugsast getur hinum frægu orðum Rúmís: „Þú ert ekki dropi í hafinu, þú ert allt hafið í einum dropa.“

Orðin rúma bæði haf Neptúnusar, einingu og samtengingu alls – og sérstöðu Hrútsins, dropann sem þarf samt að hreyfa sig, þarf samt að framkvæma eins og hann væri það eina sem skipti máli.

Fulla Tunglið í Hrútnum í samstöðu við Neptúnus snýst ekki einu sinni um að fylgja draumum okkar – því að fylgja draumum sínum getur samt hljómað örlítið sjálfhverft. Það snýst um að gera það sem sálin krefst af okkur.

Þróunarleg köllun

Þetta er þróunarleg köllun. Þetta er það sem líf okkar og heimurinn, þola ekki lengur að sé látið ógert.

Þetta er það sem þarf að gera – ekki (bara) okkar sjálfra vegna – heldur vegna heimsins, vegna fólksins í kringum okkur, vegna þeirrar fyrirmyndar sem við gefum börnunum okkar, samfélögum okkar og öllum þeim sem tilvist okkar hlýtur að snerta – fyrirmyndar sem rýfur vítahringinn.

Hvað er það?

Hvað er þetta undirliggjandi, þessi djúpa þrá sálarinnar, það sem þig hefur alltaf langað í en aldrei látið reyna á – kannski af því að þú trúðir aldrei alveg að þú gætir fengið það, af því að þú hafðir enga fyrirmynd að því hvernig væri að lifa þannig – sem þú þarft að sækjast eftir núna?

Láttu verða af því, því pláneturnar á himni munu aldrei raða sér upp á sama hátt aftur. Við munum aldrei aftur fá jafn Neptúnusarmettað fullt Tungl í Hrútnum – ekki á toppi Flugdreka, ekki með öllum þeim styðjandi afstöðum frá ytri plánetunum og til ráðandi plánetu Hrútsins, Mars (sem nú er í 180 gráðu andstöðu við Tunglið í Krabbanum).

Veldu það

Hvað sem það er, veldu það. Það þarf ekki endilega að vera neitt áþreifanlegt. Það gæti verið val sem sálin tekur, ákvörðun, skref fram á við… ekki það sem samfélagið hefur sagt þér að vilja allt frá því að þú fæddist … ekki það sem fjölskyldumynstrin hafa miðlað til þín í ómeðvitaðri hringrás

Eitthvað á forsendum sálar þinnar.

Heimild: Astro Butterfly

Þýðing: Guðrún Bergmann

Mynd: Shutterstock.com

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN