Guðrún Bergmann

NÝTT TUNGL Í FISKUM

Nýja Tunglið þann 19. mars 2026 er á tuttugu og átta gráðum í Fiskum og er í samstöðu við stjórnanda sinn, Neptúnus. Nýja Tunglið og Neptúnus mynda topp á þríhyrningi með Plútó í Vatnsbera og Úranusi í Nautinu.

Þar sem nýja Tunglið er virkjað af öllum ytri plánetunum fylgir því tilfinning um að margir ferlar sameinist í eina stund skilnings eða fullkomnunar.
Allar leiðir liggja að þessu nýja Tungli! Tuttugu og átta gráður í Fiskum eru alveg á síðustu gráðum stjörnumerkjahringsins. Við erum enn í vatninu. En við erum líka mjög, mjög nálægt ströndinni. Við sjáum land framundan, heyrum hljóð og finnum að við erum að nálgast einhvern áfangastað.

Lesa meira »

Stjörnuspekin síðari hluta mars

Þann 19. mars 2026 verður svo heillavænt nýtt Tungl (kl. 01:23 hér á landi) á tuttugu og átta gráðum í Fiskum. Nýja tunglið er í utan merkja samstöðu við Neptúnus og Satúrnus (nú á fyrstu gráðum Hrúts) og er í nákvæmri utan merkja sextíu gráðu afstöðu við Úranus sem er aftast í Nautinu (fer inn í Tvíburana í apríl). Þetta nýja Tungl getur hjálpað okkur að sjá hvernig við getum tekið draum okkar – eða það sem við héldum að aldrei yrði að veruleika – og gert að raunveruleika, með einum eða öðrum hætti.

Lesa meira »

FYRRI HLUTI MARS 2026

Mars býður stjörnuspekilega séð upp á ýmsar breytingar. Í þessari grein fjalla ég um orkuna í fyrri hluta mánaðarins, en í mars erum við í myrkvatímabilinu. Þann 3. mars verður almyrkvi á fullu Tungli í Meyju sem kemur til með að bera með sér aðlögun og mjög raunverulegar afleiðingar í hinu daglega lífi. Á sama tíma erum við enn að samþætta Satúrnusar og Neptúnusar samstöðuna sem varð á NÚLL gráðu í Hrút þann 20. febrúar – endurstillinguna sem markaði opinberlega upphaf nýs tímabils. Þótt nýja tímabilið sé tæknilega hafið, erum við enn að vinna úr því fyrra.

Lesa meira »

ÖFLUGAR AFSTÖÐUR PLÁNETANNA

Fimmtudaginn 26. febrúar breytir Merkúr um stefnu á 22 gráðum í Fiskum og verður á ferð afturábak til 20. mars, en þá verða jafndægur í Hrúti. Merkúr verður kominn aftur á 8 gráður í Fiskum þegar hann stöðvast til að snúa við og stefna framávið. Með Sól, Venus og Norðurnóðuna í Fiskum gætum við fundið sterka löngun til að draga okkur inn á við, vera í kyrrð, þögn og hugleiðslu, eða verja meiri tíma úti í náttúrunni. Þetta er tímabil þar sem mikil áhersla er á Fiskamerkið og við finnum að innsæi okkar og draumar verða dýpri og ríkari.

Lesa meira »

222 ORKUHLIÐIÐ

Svo er það 22. febrúar þegar það opnast nýtt orkuhlið 22.2 eða 222, en fyrir hvað er þetta orkuhlið að undirbúa okkur?
Við stöndum á enn einum þröskuldi umbreytinga, þar sem hljóðlát innri endurröðun á sér stað. Þröskuldi á milli þess sem þú hefur verið og þess sem þú ert að verða.

Lesa meira »

SATÚRNUS OG NEPTÚNUS Í SAMSTÖÐU

Í dag ná Satúrnus og Neptúnus nákvæmri samstöðu – kraftmiklu stjörnuspekilegu augnabliki sem markar djúpa umbreytingu í meðvitund okkar og andlegum vexti. Þessi samstaða hefur ekki orðið á NÚLL gráðu í Hrútnum, fyrsta stjörnumerkinu í stjörnumerkjahringnum í 6300 ár, svo hún markar umbyltingu.

Núll gráðan er gjarnan kölluð sköpunargráðan, svo ef þú finnur fyrir aukinni alvöru, innri togstreitu eða sterkri löngun til að gera drauma þína raunverulega – þá ertu að upplifa orkuna sem fylgir þessari samstöðu.

Lesa meira »

SATÚRNUS KOMINN Í HRÚTINN

Nákvæm samstaða Satúrnusar og Neptúnusar á núll gráðu Hrútsins þann 20. febrúar er línan í sandinum. Með Satúrnusi í Hrútnum mun okkar eigið „Atlantis“ – eða hvaða nafni sem við kjósum að kalla persónulegan draum okkar eða sýn – rísa upp úr djúpinu og tekur á sig form, skipulag og stefnu.

Lesa meira »

ÞRÝSTINGURINN FYRIR UMBREYTINGUNA

Í næstu viku mætast nýtt Tungl og Sól-myrkvi þann 17. febrúar – og hið kínverska nýár hefst með ári ELDHESTSINS. Samstaða Tungls og Sólar markar alltaf sterkt umbreytingarhlið. Það gera myrkvar einnig, en þeir virka ekki aðeins á ytri atburði heldur hafa djúp áhrif á taugakerfið, tilfinningalífið og innri stefnu okkar. Oft byrja áhrifin fyrir sjálfan atburðinn og geta haldið áfram í tvær vikur eða lengur eftir hann, þar sem líkami og meðvitund vinna saman að því að losna við það sem er orðið úrelt.

Lesa meira »

ÞEGAR SANNLEIKURINN OPNAR LEIÐINA

Á lífsleiðinni söfnum við sárum. Sum þeirra eru augljós, önnur grafin djúpt í líkama okkar, minni og taugakerfi. Við lærum að aðlaga okkur, lifa af og halda áfram – oft með því að þagga niður í hluta af okkur sjálfum. En andlegur þroski kallar okkur fyrr eða síðar til uppgjörs: að horfast í augu við það sem særði okkur og finna leið til raunverulegrar heilunar.

Lesa meira »

FULLT TUNGL Í LJÓNI 01.02.26

Þann 1. febrúar verður Tunglið fullt í Ljónsmerkinu. Febrúar markar orkumikinn og jarðskjálftakenndan tíma, sem getur birst á marga vegu. Meðal annars má búast við aukinni spennu í kringum nýtt Tungl og sólmyrkva í Vatnsbera þann 17. febrúar – en nánar verður fjallað um það síðar. Úranus er í öflugum spennuafstöðum í febrúar og því má búast við mjög öfgakenndri jarðskjálftorku, bæði í jörðinni sjálfri sem og í stjórnmálum, efnahag og fjármálum.

Lesa meira »