TUNGLMYRKVI Í SPORÐDREKA
Þann 20. apríl varð almyrkvi á Sól og nú í dag er hlutamyrkvi á Tungli. Eitt af því sem fylgir myrkvum eru varanlegar breytingar á lífi okkar, einkum ef afstöður myrkvanna tengjast sterkt inn á persónuleg stjörnukort okkar. Þá finnum við sterkar fyrir þeim í okkar eigin lífi, enda fylgir þeim feykilegur kraftur.
Í þessu tilviki gætir áhrifanna frá Sólmyrkvanum ekki bara í næstu sex mánuði eftir að hann varð eða nánast út allt þetta ár, heldur mun Plútó í transit fara aftur inn á tuttugustu og níundu gráðu Steingeitar og verða í níutíu gráðu spennuafstöðu við gráðuna sem Sólmyrkvinn varð á og endurvirkja orkuna í honum út allt árið 2024. Við erum því stödd á gríðarlega miklum umbreytingartímum.
PLÚTÓ BREYTIR UM STEFNU
Þann 1. maí stöðvaðist Plútó til að breyta um stefnu og fara aftur á bak. Í hvert skipti sem ytri pláneturnar breyta um stefnu magna þær upp orkuna sem það stjörnumerki sem plánetan er í er táknrænt fyrir. Plútó er pláneta tengd völdum, svo líklegt er að við sjáum mikið af valdabrölti í heiminum í kringum okkur og að einhverju leyti í eigin lífi. Við getum annað hvort lent í því að einhver vill ráða yfir okkur eða við yfir öðrum.
Einnig er sá möguleiki á birtingu þessarar orku að við skynjum allt í einu að við höfum verið að afsala valdi yfir okkar eigin lífi í hendur annarra – og að nú sé tími til að endurheimta það vald.
MARS Í KRABBA
Mars hefur verið „utan marka“ eða utan tuttugu og þriggja breiddargráða norðan eða sunnan við Sólbaug – en fer inn á sinn venjulega sporbaug þann 5. maí. Þegar plánetur eru „utan marka“ birtast tilfinningar almennt á öfgafyllri og óstýrilátari hátt.
Þar sem Mars er í Krabba getum við orðið mjög hvatvís eða brugðist tilfinningalega við, einkum ef okkur finnst að vegið hafi verið að fjölskyldu okkar eða þeim sem við elskum. Þá er hætta á að við ráðumst á viðkomandi með orðum eða afli. Því er mikilvægt að muna að draga andann djúpt og stíga aðeins til baka, áður en við svörum – því það veitir okkur lengri umhugsunarfrest – og eftir á eru líkur á að við verðum ánægðari með að hafa nýtt hann.
TUNGLMYRKVINN 5. MAÍ
Tunglmyrkvinn verður þann 5. maí á fjórtán gráðum og fimmtíu og átta mínútum í Sporðdreka klukkan 17:36 e.h. hér á landi. Tunglmyrkvar eru stór full Tungl og eru því hápunktur í ferli Tunglsins. Þessi Tunglmyrkvi hefur mikil áhrif á endalok hluta. Í hvert sinn sem við erum með myrkva, þarf Tunglið að vera nálægt, annað hvort Norður- eða Suðurnóðunni. Þessi er nær Suðurnóðunni og hún tengist fortíð heildarinnar. Þessari afstöðu fylgja því mjög skýr skilaboð um að þetta séu endalok á gamla ferlinu fyrir heildina.
Þar sem við erum öll hluti af heildinni, er mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvað hafi náð endapunkti í okkar lífi, hvað það er sem við erum að hætta að gera – eða hætta að vera – og fella haminn af okkar gamla sjálfi. Eru það sambönd okkar, starfið, staðsetning okkar, hvaða bækur við lesum eða hugsanamynstur okkar? Þetta er frábær tími til að sleppa tökum á öllu sem er ekki að gagnast okkur lengur.
Þessi Tunglmyrkvi er hálfskuggamyrkvi sem verður þegar Tunglið fer um ytri hlutann af skugga Jarðar. Hann er með mjög breitt ferli og er dýpsti hálfmyrkvinn fram til ársins 2042. Tunglmyrkvinn fellur yfir Afríku, Suðurheimskautið, Rússland, Asíu, Ástralíu, Nýja-Sjáland, Austur-Evrópu, Kyrrahaf og Indlandshaf.
TÁKNMYND SPORÐDREKANS
Þar sem Tunglmyrkvinn er í Sporðdreka er gott að kynna sér aðeins hver táknmynd hans er. Umfram allt annað er Sporðdrekinn merki leyndarmála, sem lengi hafa verið falin og djúpt grafin. Hann tengist undirferli og stundum líka glæpum. Í ykkar persónulega lífi gæti myrkvinn tengst því að þið uppgötvið leyndarmál sem þið ekki vissuð fyrir, en fyrst og fremst koma áhrif þessa Tunglmyrkva til með að hafa áhrif á heildina – það er að segja eitthvað sem heildin vissi ekki um eða haldið hefur verið leyndu fyrir henni.
Sporðdrekinn er líka mjög tengdur öllum málum í kringum traust og svik, alls konar eitrunum hvort sem þær tengjast allri þeirri mengun sem mannkynið hefur skapað eða eitrunum í líkama okkar. Þetta gæti verið sá tími þar sem slíkt yrði afhjúpað.
Öxulnóðan er í Nauti og Sporðdreka. Sá hluti nóðunnar sem er í Nauti tengist peningum almennt, gjaldmiðlum, bankamálum og auðæfum. Sá hluti Nóðunnar sem er í Sporðdreka tengist stórum fjárupphæðum, stórum fjárfestingum, lánum, húsnæðislánum, sameiginlegri fjármagnseign – auk þess sem Suðurnóðan í Sporðdreka er mjög tengd skuldum, vangjöldum, sjóðþurrð eða tekjuhalla.
Þessi áhrif magnast upp vegna þess að Plútó er í níutíu gráðu spennuafstöðu við Öxulnóðurnar fram í nóvember – en spennan verður mest nú á næstunni og fram í miðjan júlí. Við megum því vænta þess að það eigi eftir að verða einhver titringur í fjármálakerfinu á næstunni.
DRAMATÍSKUR MYRKVI
Myrkvinn á fjórtán gráðum og fimmtíu og níu mínútum í Sporðdreka virðist ætla að verða mjög dramatískur, því Sólin er í náinni samstöðu við Úranus og Tunglið er í hundrað og áttatíu gráðu spennuandstöðu við Úranus og Sól. Úranus er í Nauti og verður það fram til 2026, en hann er mjög áberandi á þessum Tunglmyrkva. Honum fylgja skyndilegir sjokkerandi hlutir, afhjúpanir og sannleikur sem kemur upp á yfirborðið, en Úranus er líka pláneta aukinnar vitundarvakningar, jarðskjálfta og eldgosa, svo við gætum séð meira af slíku.
Það eru þó aðallega jarðskjálftar í fjármála- og stjórnmálakerfum heims, sem eru líklegir til að verða áberandi. Þar sem Tunglið, sem er táknrænt fyrir fólkið er í andstöðu við Úranus, tengist þessi myrkvi líka því að fólkið er í uppreisnarhug og vill gera byltingu á einhvern hátt.
Þetta gæti birst á mjög dramatískan máta í heiminum, ekki síst vegna þess að mestallan maímánuð er Júpiter í utan merkja níutíu gráðu spennuafstöðu við Plútó, en það er mjög sterk spennuafstaða. Júpiter þenur allt út sem hann er í afstöðu við – meðal annars þau málefni sem tengjast völdum, skuldum, taprekstri og sjóðþurrð, gjaldföllnum skuldum, sköttum og í raun öllu fjármálakerfinu.
Júpiter er líka að þenja út T-spennuafstöðuna sem er á milli Plútó og Norður- og Suðurnóðunnar, en sú afstaða tengist grundvallarbreytingum á fjárhagslegu og félagslegu skipulagi. Myrkvarnir gætu því markað upphafið á þeirri grundvallarbreytingu sem við eigum eftir að sjá verða.
ÚRANÍSKT ÞEMA Í GANGI
Þar sem Júpiter er í níutíu gráðu spennuafstöðu við Plútó í Vatnsbera og Vatnsberanum er stjórnað af Úranusi, er mjög sterkt Úranískt þema í gangi. Júpiter á því líka eftir að þenja út öll málefni sem tengjast frelsi, sannleika, uppreisnum og mótmælum.
Sjáið hvað er að gerast í Frakklandi núna. Ekki bara í borgum, heldur um allt Frakkland. Þau mótmæli eru löngu komin út fyrir endurbætur á eftirlaunakerfinu og eru orðin mun víðtækari. Þetta minnir á mótmælin 1789 þegar Franska byltingin varð, því stærri mynd stjörnuspekinnar virðist vera að endurtaka sig.
Júpiter er líka pláneta réttlætis og var í nákvæmri samstöðu við dvergplánetuna Eris þann 23. apríl og er í náinni samstöðu við Eris í korti Tunglmyrkvans. Plánetan Eris er táknræn fyrir hinn herskáa baráttumann á götum úti sem berst fyrir réttlæti, samfélagslegu jafnræði og því að tillit sé tekið til allra. Eris er gjarnan sú sem segir sannleikann, því hún hatar lygar, ójafnræði og óréttlæti og verður að afhjúpa sannleikann.
MERKÚR BREYTIR UM STEFNU
Merkúr er á ferð aftur á bak um sporbaug sinn og fer ekki beint áfram fyrr en þann 15. maí. Alltaf þegar Merkúr er á ferð aftur á bak, er hann að endurhugsa hlutina. Um hvað gæti hann verið að hugsa núna? Hann er væntanlega að hugsa um fjármálin, því hann er í Nauti. Hvar væri best að geyma peningana? Hvaða staður gæti verið góður fyrir þá? Nautið tengist nefnilega öryggi og vill gjarnan halda hlutunum óbreyttum eins og þeir eru.
Merkúr gæti líka verið að velta fyrir sér hvernig og hvar væri best að kaupa í matinn, frá hverjum og hvers konar mataræði sé best að fylgja. Allt er þetta mjög tengt Nautinu – landbúnaði – og því hvernig við stjórnum landbúnaðarframleiðslu okkar.
Eitt stóra þema tengt Úranusi, sem verður í Nauti fram til ársins 2026, er innrás tækninnar (Úranus) í landbúnað sem ræktaður er eftir bíódýnamískum leiðum – eins og innkoma með nýjungar í ljósabúnaði með lituðum ljósum til að ná sem bestum vexti í plönturnar.
Neikvæða hliðin á Úranusi vill hins vegar alltaf hvetja til iðnvæðingar, til að gera hvað sem hann tengist, í þessu tilviki ræktun og landbúnað, fljótvirkari og skilvirkari og auka framleiðni. Úranus í Nauti birtist því á mismunandi vegu, en í loftinu liggur að eitthvað tengt fæðu og landbúnaði sé líklegt til að koma upp á næstunni.
NEPTÚNUS OG MARS
Í korti Tunglmyrkvans er Neptúnus í hundrað og tuttugu gráðu samhljóma afstöðu við Mars, en sú afstaða hjálpar okkur að færa okkur frá hinu efnislega yfir í hið andlega. Báðar þessar plánetur eru í vatnsmerkjum, en vatnsmerkin hafa mjög mikil áhrif á andlega þáttinn hjá fólki.
Þessi afstaða getur líka verið táknræn fyrir andlegar athafnir eða andlega þróun okkar í gegnum ýmislegt eins og öndunaræfingar, hugleiðslu, jóga, Tai-chi eða Qi-gong, en þetta eru allt form af andlegum athöfnum. Besta birtingin á þessari afstöðu tengist því hinu andlega og því hvernig við eflum þann þátt í lífi okkar.
Neptúnus er líka í níutíu gráðu spennuafstöðu við Venus í þessu korti Tunglmyrkvans, en það er alveg dásamlegt fyrir alla skapandi vinnu eða aukið hugmyndaflug. Allt sem tengist fegurð sem þið kynnuð að vera að skapa og fallegum orðum sem þið gætuð verið að vinna með núna. Þetta er því yndisleg örvun á skapandi orku.
Þar sem Mars er í Krabba gætu komið upp mál sem snúa að börnum, vegna þess að Krabbinn tengist móðurhlutverkinu, sem við gætum orðið reið yfir – og tengist ýmsum fréttum sem eru að koma upp á yfirborðið núna. Verið bara meðvituð um þetta og ef reiðin brýst fram er gott að taka skref aftur á bak, anda djúpt að sér og koma svo með það sem við viljum segja.
HAUMEA Í ÖFLUGRI AFSTÖÐU
Yndislega dvergplánetan Haumea er nú hluti af T-spennuafstöðunni með Plútó/Júpiter og Norður- og Suðurnóðunni. Haumea er tengd frjósemisgyðju Hawai‘i og er egglaga, sem er afar sérkennilegt lag á plánetu. Haumea gat fætt af sér börn hvaðan sem var af líkamanum, safnað fæðu sem óx villt með töfrastaf sínum Mekkalai og hafði ótrúlega endurnýjandi orku.
Þetta er eitt það dásamlega við þessar dvergplánetur, því það er eitthvað svo töfrandi við það hvernig þær birta hina Guðlegu vitund kosmósins á fullkominn máta. Haumea er því mjög stórt tákn um hina Nýju Jörð – og myndar jafnvægi við allt það niðurrífandi sem er að eiga sér stað í heiminum núna og hrun hins gamla. Hún er tákn um endalok og nýtt upphaf.
JÚPITER Á KRÍTÍSKU GRÁÐUNNI
Eitt enn sem er mikilvægt í þessum umbreytingasama maímánuði er að frá 12. til 16. maí kemur Júpiter til með að fara yfir tuttugustu og níundu gráðuna í Hrútnum. Þessa síðustu og krítísku gráðu, sem er sú sama og Sólmyrkvinn varð á þann 20. apríl. Munið að Júpiter þenur alla hluti út, svo hvað sem var í gagni á Sólmyrkvanum kemur til með að þenjast enn frekar út þessa daga í kringum miðjan maí.
Þann 16. maí fer Júpiter svo inn í Nautið. Undir venjulegum kringumstæðum myndi þetta búa til stöðugleika en vegna þess að Nautið tengist fjármálaöxlinum, megum við eiga von á óróleika á þessu tímabili.
Ef þið eruð með Sól, Tungl eða Rísingu ykkar í Nauti – þá er Júpiter í hverju merki í um það bil tólf mánuði. Yfirleitt fylgja Júpiter aukin tækifæri til frekari persónulegs þroska, meiri útþensla allt eftir því í hvaða húsi kortsins staðan lendir, meiri viðurkenning og allsnægtir. Skoðið því hvar Nautið lendir í kortum ykkar og næstu tólf mánuði mega allir eiga von á – sama í hvaða húsi þessi staða lendir – að Júpiter komi til með að virkja og þenja út allt það sem er að gerast á þessu sviði í lífi ykkar.
SÓLSVEIFLAN
Sólsveifla (Solar Cycle) Sólarinnar er heiti á ákveðinni lotulengd sem stendur yfir í um það bil ellefu ár. Á því tímabili sveiflast sólblettir og önnur sólvirkni með þeirri lotulengd. Vísindamenn og stjarneðlisfræðingar töldu að Sólsveiflan sem við erum nú í myndi ná hámarki sínu árið 2025. Sú getgáta hefur breyst því hámarkið er líklegt til að verða mun fyrr eða síðla árs 2023 eða í byrjun árs 2024.
Þetta hámark myndar nokkurs konar þróunarferli kosmískrar Alheimsorku, sem streymir til okkar á Jörðinni. Öll Sólgosin og Sólblossarnir koma til með að ná hámarki síðla árs 2023 eða í byrjun árs 2024, en það er enn eitt meiriháttar merkið um hröðun á framþróun okkar og því mjög mikilvægt.
Gert er ráð fyrir að næsta Sólsveifla (Solar Cycle) verði tvisvar sinnum öflugri en síðasta Sólsveifla sem hófst árið 2014. Verið því meðvituð um í hvers konar orkusviði við erum í sem rafmagnaðar verur, meðan við vinnum að því að aðlagast allri þessari rafmögnuðu og geislavirku orku sem streymir inn frá Sólinni.
Hægt er að lesa meira um þá umbreytingu sem er að verða í heiminum í LEIÐ HJARTANS – en henni fylgir FRÍ heimsending.
Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.
Þér er velkomið að skrá þig á PÓSTLISTANN minn til að fá reglulega sendar greinar um sjálfsrækt, andleg málefni, stjörnuspeki og náttúrulegar leiðir til að styrkja heilsuna.
Myndir: CanStockPhoto.com/lucidwaters/krisdog
Heimildir: Útdráttur úr skýringum Pam Gregory á þessu fulla Tungli, en þær má finna í fullri lengd HÉR
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR
