Þessa súpuuppskrift kemur frá henni Ólöfu í Kryddhúsinu, en uppruna hennar má rekja til gamallar uppskriftarbókar sem hún á frá Nigella Lawsson. Ólöf breytti uppskriftinni aðeins og notar í hana krydd frá Kryddhúsinu sem koma dásamlega vel út.
Kæri lesandi!
Súpan er frábærlega bragðgóð og auðveld að gera. Hún verður bara betri daginn eftir þannig að það er gott að gæða sér á afgangi sé hann til. Það má skipta rækjunum og hörpuskelinni út fyrir annað sjávarfang en mikilvægt að setja það út í síðast og elda stutt svo það verði ekki ofeldað í bragðgóðri súpunni, en uppskriftin er fyrir 3-4
Kryddlegin kveðja
Ólöf
INNIHALDSEFNI:
1 dós kókosmjólk
2 góðar msk Tælensk Karrýblanda Kryddhússins
2 fiskikraftsteningar leystir upp í glasi af heitu vatni
3 msk fiskisósa
2 msk hunang (eða sykur eða önnur sæta)
1/2 tsk Túrmerik
Chili flögur eftir smekk
salt og pipar
1/2 grasker (butternut squash) u.þ.b. 500gr, kjarnhreinsað og skorið í fína teninga
12 risarækjur eða fleiri minni rækjur
u.þ.b. 250g af lítilli hörpuskel (hún fæst frosin í t.d. Bónus)
u.þ.b. 2 msk safi úr límónu eða sítrónu
hnefafylli af fersku kóríander og aðeins meira til að sáldra yfir í lokin
Nigella- og sesamfræ til að strá yfir í lokin
AÐFERÐ:
1 – Fleytið þykka hlutanum af kókosmjólkinni úr dósinn af og setjið í heitann pott. Hrærið Tælensku karrýblöndunni út í og hitið vel saman.
2 – Bætið næst við restinni af kókosmjólkinni, fiskikraftinum, fiskisósunni og sætunni og hellið eins og 500-800 ml af heitu vatni saman við.
3 – Látið suðuna koma upp og setjið þá restina af innihaldsefnunum nema rækjurnar og hörpuskelina út í. Látið sjóða í hálftíma eða svo.
4 – Mér finnst gott að mauka súpuna með töfrasprota til að fá silkimjúka áferð á hana. Passið að smakka ykkur til og bæta við kryddi, salti o.s.frv. ef þess þarf. Bætið við vatni ef þarf til að þynna súpuna.
5 – Setjið svo hálf frosnar rækjurnar og hörpuskelina út í heita súpuna í 3-4 mín eða þar til hitað í gegn rétt áður en hún er borin fram.
Fallegt er að strá fersku kóríander, Nigella- og sesamfræum yfir og ljúffengt að bera fram með góðu brauði.
Nýttu þér afslátt af kryddunum frá KRYDDHÚSINU á vefsíðunni: www.kryddhús.is
– Afsláttarkóðinn er HOG23, veitir 15% afslátt og gildir frá 12. maí – 17. júní.
Myndir: Ólöf Einarsdóttir og CanStockPhoto.com/kaparulin
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR

