TUNGLMYRKVI 28. OKTÓBER
Október er svo sannarlega „heitur“ mánuður hvað stjörnuspekina varðar, með tvo magnaða MYRKVA, annan Sólmyrkva og hinn Tunglmyrkva. Núna er Plútó í samstöðu við Plútó í fæðingarkorti Bandaríkjanna í öðru húsi kortsins, sem er táknrænt fyrir fjármál landsins. Samstaðan er nákvæm upp á gráðu í síðasta skiptið á þessu ári, þótt áhrifanna frá þeirri samstöðu muni klárlega gæta áfram allt næsta ár og hugsanlega lengur.
MYRKVAR EINS OG GÁTTIR
Myrkvar virkar eins og gáttir eða dyr inn í nýjar víddir. Þeir eru almennt mjög öflugir og koma mjög oft á óvart, svona eins og Úranus gerir þegar hann er í transit. Þeim geta fylgt ný tækifæri, eitthvað sem kemur á óvart og breytingar, sem eru þá yfirleitt varanlegar.
Myrkvar eru því áhrifamiklir, sérstaklega ef þeir eru með öflugar afstöður við pláneturnar í fæðingarkortum okkar, svo dragið endilega fram stjörnukortin ykkar og skoðið hvar pláneturnar tengdar Tunglmyrkvanum eru að hafa áhrif á líf ykkar.
MARS Í SPORÐDREKA
Frá 12. október til 24. nóvember er Mars í sínu forna merki Sporðdrekanum, sem hann eitt sinn stjórnaði. Meðan Mars hefur verið í Voginni hefur hann verið mjög diplómatískur og ekki haft hátt um sig, en honum líður einstaklega vel í Sporðdrekanum, þar sem hann verður gífurlega fókusaður, líkt og leysigeisli. Þar notar Mars ástríðu sína og einbeitingu einkum og sér í lagi til að grafa upp leyndarmál, sem tengjast undirheimunum og öllu neðarjarðar, stórum peningaupphæðum og glæpatengdum fjármunum.
FJÁRMÁLAÖXULLINN
Öxullinn á milli Nauts og Sporðdreka kallast fjármálaöxlullinn og við munum ekki verða með annan myrkva á honum fyrr en eftir átta eða níu ár. Þess vegna er þessi núna svo mikilvægur. Fókusinn hjá Mars verður á að grafa upp stórar, faldar peningaupphæðir og löngu falin leyndarmál. Reyndar getur Mars í Sporðdreka líka verið tengdur hvers konar eituráhrifum, þar sem allt tengt eitri tengist Sporðdrekanum.
Mikilvægt er að hafa í huga að við finnum fyrir orkunni sem tengist myrkvum allt að mánuði áður en þeir verða og allt að sex mánuðum eftir að þeir hafa verið, svo það verða langvarandi áhrif frá þessum tveimur myrkvum nú í október.

SÓL, MERKÚR OG ERIS
Þann 18. október voru Sól og Merkúr í Vog í 180° spennuafstöðu við Eris, en það tekur plánetuna 560 ár að fara einn hring um sporbaug sinn, svo hún hefur verið mjög lengi í Hrút – og er þar núna á 24°og 35 mínútum. Táknmynd Hrútsins er mjög tengd stríðsorku og þar sem Eris er systir Mars og berst fyrir réttindum á götum úti , mun hún ekkert gefa eftir og ekki sætta sig við málamiðlanir. Hún er algerlega óvægin og vill koma á meira réttlæti og sanngjarnara samfélagi.
Eris er því ölfug og í 180° spennuandstöðu við Sól og Merkúr, gæti það táknað að fólk gerði sér gein fyrir að það hefði verið að þóknast öðrum, hvort sem er persónulega eða í stærra félagslegu samhengi. Svona eins og þeir sem vildu ekki rugga bátnum og fylgdu kerfinu, færu að átta sig á því að það hefði ekki þjónað þeim fullkomlega. Slíkar tilfinningar gætu komið upp í tengslum við Eris, svo og að fleira og fleira fólk vill meira tjáningarfrelsi og meira frelsi til athafna. Það vill bara vera frjálsara og lifa samkvæmt eigin gildum.
MERKÚR, SÓL OG PLÚTÓ
Fljótlega eftir þann 18. október eða dagana 20. og 21. október, verða bæði Merkúr og Sól í 90°spennuafstöðu við Plútó, en sú afstaða endurvekur spurninguna um vald enn á ný. Plútó er með svo öflugar afstöður allt þetta ár. Í kringum þann 20. október, gætu komið fram öflug orð frá einhverjum leiðtoga á alþjóðavettvangi.
Það gætu líka verið kröftug orð í þínu eigin persónulega lífi – og aftur daginn eftir munu málefnin snúast um völd og stjórn, á sama tíma og orkan örvar Eris til að berjast mjög harkalega á móti og neita að gefast upp. Eris er líka ennþá í þessari langvarandi T-spennuafstöðu við Plútó, ásamt Suður- og Norðurnóðunni.
JÚPITER, VENUS OG PLÚTÓ
Hið jákvæða er að þann 21. október er Júpíter á 12 gráðum í Nauti í 120° samhljóma afstöðu við Venus á 12° í Meyju, svo ef þið eruð með einhverjar plánetur í kringum 12° í Jarðarmerkjunum Nauti, Meyju eða Steingeit, eða svona frá 11° til 13°, gætuð þið náð árangri í einhverju, eða hlotið viðurkenningu fyrir eitthvað sem þið hafið unnið fyrir.
Þessi útþensla gæti verið mjög jákvæð og dregið aðeins úr öflugu orkunni í kringum þann 23. október, en þá erum við komin vel undir áhrif Tunglmyrkvans. Þá verður Plútó í Steingeit í 135° afstöðu við Venus í Meyju og á sama tíma verður Tunglið í 90° spennuafstöðu við Úranus í Nauti. Plútó fylgir alltaf útþensla og spenna og Venusi fylgir ást.
Venus tengist líka peningum og því gæti það verið ef Venus er á ferð í gegnum fimmta eða sjöunda húsið, en þau eru samskiptahúsin í fæðingarkorti ykkar, eða í gegnum fjármálahúsin, sem eru annað og áttunda húsið, að þið gætuð lent í ástarsambandi eða það orðið einhver óstöðugleiki í fjármálunum.
ÓSTÖÐUGLEIKI Á HLUTABRÉFAMÖRKUÐUM
Bæði Nautið og Sporðdrekinn tengjast fjármálum og þar sem Tunglmyrkvinn er í Nauti og það eru þrjár pláentur í Sporðdreka – og þetta er í síðast sinn í næstum níu ár sem myrkvi er í fjármálaöxulinum gæti orðið umbylting í fjármálum heimsins, ekki síst vegna þess að sögulega séð hefur óstöðugleiki á verðbréfamörkuðum oft átt sér stað í október.
Allt getur gerst þar sem Tunglið er í 90°spennuafstöðu við Úranus í Nauti, og Venus stjórnar Nautinu og þar með gjaldmiðlum og hlutabréfamarkaði, svo það verður áhugavert að sjá hvernig málin þróast. Það áhugaverða er að ef kortið fyrir hlutabréfamarkaðshrunið árið 1929 er skoðað, er Miðhiminn þess á 29° í Steingeit og því nákvæmlega í samstöðu við Plútó í transit, sem verður á þessari gráðu næstu mánuði, eða fram undir lok janúar á næsta ári.
Þann 26. október er Mars svo í 135° afstöðu við Neptúnus. Þessi afstaða er dásamleg fyrir hvers kyns andlega iðkun en ykkur gætu fundist markmiðin ykkar leysast upp og þið misst eldmóðinn í kringum þennan tíma.
TUNGLMYRKVI 28. OKTÓBER
Myrkvinn verður á 5° og 9 mínútum í Nauti. Hér á landi er bara um hlutamyrkva að ræða og samkvæmt Stjörnufræðivefnum verður hann í hámarki kl. 20:14. Þegar hann verður eru sex plánetur í föstum merkjum þannig að það er mikið festa eða stífni í hlutunum, sem bendir til mikillar ákveðni. Menn standa fast á skoðunum sínum, einkum gagnvart sannfæringakerfum sínum, sem eru mjög áberandi á þessum tíma.
Tunglmyrkvinn er eins og stórt full Tungl, svo þessi markar hámarkið í hringrás Tunglsins. Skoðið því hvar 5 gráður í Nauti lenda í kortunum ykkar. Á fullu Tungli eru Sól og Tungl alltaf á móti hvort öðru, svo skoðið í hvaða húsum þau lenda. Fullt Tung markar yfirleitt hápunkt eða endalok á einhverju, og ljósið frá Tunglinu lýsir upp eitthvað sem við höfum ekki séð svo greinilega áður.

MIKILVÆGUR TÍMI TIL AÐ SLEPPA
Þetta er því mikilvægur tími til að enda og sleppa tökum á einhverju sem þjónar okkur ekki lengur. Skoðið hvaða hegðunarmynstrum og ávönum þið gætuð sleppt. Þetta er mjög mikilvægur tími fyrir hreinsun og öllu mikilvægari fyrir þá sem þekkja stóra samhengið í því sem er að gerast í heiminum. Þetta gæti líka orðið flókinn tími fjárhagslega, vegna fjármálaöxlulsins milli Nauts og Sporðdreka, en Nautið er líka tengt matvælum okkar, landbúnaði og matvælaframleiðslu.
Þessi tími er líka tengdur tilfinningum okkar um öryggi og hvað við þurfum til að vera örugg í lífi okkar. Hann snýst í raun og veru um grundvallarþörfina og til að undirstrika það er Úranus á 21° í Nauti í 165° afstöðu við Sólina. Því getur fylgt uppnám eða þráhyggja eða einhvers konar órói. Það sem eflir þessa afstöðu er mjög sterk og tilfinningaþrungin Sporðdrekaorka.
SÓL, MERKÚR OG MARS
Sól, Merkúr og Mars, einkum þó Mars er drifinn áfram af sínu gamla stjörnumerki sem er táknrænt fyrir vald, svo það verður áhugavert að sjá í hvaða hús í kortunum ykkar þessar þrjár pláentur lenda. Það mun gefa ykkur einhverja hugmynd um persónulegan ásetning ykkar.
Þessi þrefalda samtenging milli Sólar, Merkúrs og Mars sem verður nákvæm þann 29. október er mjög tilfinningatengd (allar plánetur í Sporðdeka) svo samskipti geta orðið tilfinningaþrungin og hörð reiðiorð eru líkleg til að verða sögð. Fólk er tilbúið til að berjast og bardaginn er líklegur til að verða í þriðju víddinni. Þá er gott að velja að sitja bara hjá og fylgjast með.
MARS OG JÚPITER
Mars og Júpíter verða í nákvæmri 180° andstöðu og Mars–Júpíter andstaða snýst alltaf um sannfæringarkerfi okkar, sem við erum yfirleitt tilbúin til að berjast fyrir. Líklegt er að Mars í Sporðdreka afhjúpi eitthvað leyndarmál, sem veldur mjög tilfinningalegum viðbrögðum og sem við erum tilbúin að berjast fyrir vegna þess að það er hluti af sannfæringarkerfi okkar. Við gætum einnig verið að berjast gegn öðrum sannfæringarkerfum, því þau eru að stangast á við okkar.
Sporðdrekinn er mjög flókið merki en á þessum Tunglmyrkva er Tunglið í samstöðu við Júpíter. Tunglið tengist tilfinningum fólks og Júpíter blæs upp og þenur út allt sem er að þróast á þessum tíma. Það mun reyndar líka verða okkur hvatning, því ef Sporðdrekinn er ákafur og flókinn vill Nautið bara fara með okkur aftur í einföldu hlutina, aftur í grunninn, þar sem við göngum berfætt á jörðinni, ræktum eigið grænmeti í hrynjanda við ferli Tunglsins og í takti við náttúruna.
EFNISLÍKAMINN OG KÆRLEIKURINN
Nautið er ekki bara tengt takti náttúrunnar, heldur líka efnislíkama okkar og það verður djúp þörf fyrir kyrrð og frið, til að slaka aðeins á frá þessu tilfinningalega umróti. Þá er gott að loka aðeins augunum og draga djúpt andann. Stunda Hjartaöndun með því að anda inn og út í gegnum hjartað, líkt og það væri lunga, til að koma á innra jafnvægi og og finna innri kyrrð og frið.
Stjörnuspekin er að hvetja okkur til að hafa þessa tilfinningu fyrir útþenslu og stækkun. Tunglið í samstöðu við Júpíter tengist aukinni meðvitund um kærleika. Júpiter er táknrænn fyrir æðri vitund okkar – yfirvitund okkar – og báðar pláneturnar eru í Nauti, sem stjórnað er af Venusi. Bjóðið því velkomna til ykkar hærri vitund kærleikans eins oft á dag og þið getið. Horfið upp til himins og trjánna, en ekki niður á símana ykkar og takið meðvitað á móti þeirri ljósorku sem streymir til okkar frá Sólinni.

VARUNA VAKIR YFIR DJÖFLUM HAFSINS
Dvergplánetan Varuna er núna á 8°og 45 mínútum í Ljóni, en eins og allar dvergplánetur, tekur hana það hana langan tíma að fara einn hring um sporbaug sinn. Á þessum Tunglmyrkva er Varuna í T-spennuafstöðu við Sólina og Tunglið sem eru á 5°og 9 mínútum í Nauti og Sporðdreka.
Varuna er hindúískur sköpunarguð hafsins og vatnanna og er í raun tengdur vatni um allan heim. Hann ríkir líka yfir neðansjávarheiminum og vakir yfir djöflum hafsins samkvæmt goðsögninni, en það er sérlega áhugavert. Varuna býr yfir gríðarlegum guðdómlegum kraft, því hann er vörður siðferðislögmálsins og refsar þeim sem ekki heiðra hin helgu siðgæðislögmál og eru í raun og veru lygarar.
REFSAR ÞEIM SEM BRJÓTA EIÐA
Þetta með refsingar tengist líka goðsögninni um Orcus sem er á 15° í Meyju, en Orcus er í samstöðu við Venus á þessum Tunglmyrkva. Orcus er hinn Etrúíski guð undirheimanna, sem refsar þeim sem brjóta helga eiða og andleg lögmál, með því að fara með þá niður í undirheimana og láta þá að sjá ljósið. Ef þeir gera það ekki fá þeir réttláta refsingu,
Margar af þessum dvergplánetum eru með mjög sterkan siðferðislegan áttavita. Þær minna okkur á samband okkar við Jörðina og náttúruna og þá helgu lotningu sem við verðum að sýna Jörðinni með því að brjóta ekki gegn henni.
FIMM PLÁNETUR Í VATNSMERKJUM
Á þessum Tunglmyrkva eru þrjár plánetur í Sporðdreka og svo Satúrnus og Neptúnus í Fiskunum. Því eru líkur á að Varuna, sem skapaði höfin og allt vatn heimsins sé að verða enn mikilvægari. Annað sem bendir til þess er hve Satúrnus og Neptúnus eru áberandi, svo og að Sedna, ínúíta gyðjan sem í goðsögninni er algjörlega tengd við djúphöfin.
Sedna var að fara inn í Tvíburann, en þegar dvergplánetur færa sig úr einu stjörnumerki yfir í annað, er eins og þeim sé varpað fram á sjónarsviðið. Vötn og höf eru því áberandi og vatnið á eftir að verða mikilvægt í framtíðinni.
Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.
ATH! Ef þú átt ekki stjörnukort geturðu pantaða það með því að SMELLA HÉR
Þér er velkomið að skrá þig á PÓSTLISTANN minn til að fá reglulega sendar greinar um náttúrulegar leiðir til að styrkja heilsuna, sjálfsrækt, andleg mál og stjörnuspeki.
Nánari upplýsingar um húsin í stjörnukortunum er að finna í grein minni
TÓLF HÚS STJÖRNUKORTANNA
Mynd: Zhuravlev Andrey / Shutterstock.com
Heimildir: Útdráttur úr skýringum breska stjörnuspekingsins Pam Gregory – þýddur með hennar leyfi. Sjá skýringar hennar í heild sinni HÉR!
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR
