ÞRJÁR CBD VÖRUR SEM VIRKA VEL

ÞRJÁR CBD VÖRUR SEM VIRKA VEL

Ef þig langar til að prófa CBD vörur en veist ekki hvað þú átt að velja langar mig að deila með þér þremur vörutegundum, sem eru í uppáhaldi hjá mér. Ég g hef fjallað töluvert um CBD og vörur með hampolíu eftir eftir að ég „féll fyrir þeim“, fyrir um ári síðan – og segi gjarnan að þegar maður hefur eitt sinn prófað þær, leitar maður í þær aftur og aftur.

Lestu greinina endilega til enda, því þar finnurðu afsláttarkóða sem þú getur notað til að fá 15% afslátt af þeim vörum sem þig langar að prófa

AÐEINS UM CBD

CBD er skammstöfun fyrir enska orðið CannaBinoiD sem hefur verið þýtt á íslensku sem  endókannabínóðar. Stutt er síðan uppgötvað var að í líkamanum er kerfi sem kallast endókannabínóðakerfi. Það er flókið merkjakerfi frá frumunum sem samanstendur af endókannabínóðum, ensímum og kannabínóða-móttökum sem stjórna ýmissi starfsemi í mannslíkamanum. Endókannóbínóðar eru svipaðir og kannabínóðarnir sem eru í kannabis-sativa plöntunni, en hún er án THC, sem er hugbreytandi efni. 

LÍKAMINN FRAMLEIÐIR ENDÓKANNABÍNÓÐA

Hann framleiðir þá á náttúrulegan máta og þeir hafa áhrif á:
Orkujafnvægi líkamans – Örvun matarlystar – Blóðþrýsting – Sársauka – Þroska fósturvísa – Stjórn á ógleði og uppköstum – Minnisgetu – Viðbrögð ónæmiskerfisins – Parkinson‘s, Huntington´s, Alzheimer‘s og MS sjúkdómana, sem allir tengjast taugakerfinu.

Tveir helstu kannabínóða móttakarnir sem eru til staðar um allan líkamann eru: CB1 sem eru aðallega í miðtaugakerfinu, sem samanstendur af heila og mænu, CB2 sem eru aðallega í úttaugakerfinu og í ónæmiskerfinu.

CBD DROPAR ÚR HAMPFRÆJUM

Þegar verið er að prófa sig áfram með noktun á CBD olíu er gott að byrja að nota 3% olíuna frá Pharma Hemp. Hún er ekki  mjög sterk, en skilar samt góðum árangri og er á frábæru verði. Hægt er að nota hana til dæmis á kvöldin til að koma ró á líkamann og tryggja góðan svefn.

Hún virkar líka vel á alla taugaverki og dregur úr streitu í líkamanum, eins og CBD olíur gera almennt. Þetta er húðolía en ég set gjarnan 2-3 dropa undir tunguna og læt liggja þar í smástund, áður en ég kyngi þeim.

HAMP ÁBURÐUR

Þessi Hamp áburður frá Elixinol er mjög græðandi á alls konar sár og útbrot. Hann hefur virkað vel á þá sem eru með sóríasis eða annars konar þrálát húðútbrot og þurra bletti. Hann virkar líka græðandi á önnur sár. Ég brenndi mig nýlega og fékk sár í kjölfarið, sem ég hef grætt með þessum áburði.

Ég nota hann líka sem handáburð, en í þessum veðrabreytingum sem verið hafa undanfarið, hafa hendur mínar þornað mikið. Passið bara að nota lítið í einu, því áburðurinn dreifist vel.

ENDOCA HÚÐOLÍAN

Endoca húðolían er í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég ber hana á allan líkamann eftir sturtu og nota hana líka í tengslum við þurrburstun húðarinnar. Fyrir utan þrjár frábærar olíur, lífræna apríkósuolíu, bergamot olíu og CBD hampolíu, er blandan full af andoxandi efnum eins og A- og E-vítamínum og fljótandi ómettuðum fitusýrum sem mýkja áferð húðarinnar.

Olíublandan er létt í sér og gengur auðveldlega inn í húðina, en situr ekki utan á henni og veitir líkamanum ljóma frá toppi til táar. Hún hefur til dæmis virkað vel á þurra húð á höfði karlmanna sem komnir eru með skalla – og það má líka bera hana í þurran hárbotn kvenna að kvöldi til og þvo hana svo í burtu næsta morgun í sturtunni.

AFSLÁTTUR

Lesendur greina minna geta nýtt sér 15% afslátt af öllum vörum hjá www.hempliving.is með því að slá inn afsláttarkóðann: gb23 þegar kemur að greiðslusíðu.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.

Þér er velkomið að skrá þig á PÓSTLISTANN minn til að fá reglulega sendar greinar um sjálfsrækt, andleg málefni, stjörnuspeki og náttúrulegar leiðir til að styrkja heilsuna.

Myndir: Af vefsíðu Hempliving.is og úr myndvinnslu.

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
  • 592 Posts
  • 0 Comments
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Deila áfram