L-GLUTAMINE STYRKIR ÞARMAVEGGINA
Meginatriði greinarinnar:
- Þarmaveggirnir geta bólgnað og skaddast af fæðu, lyfjum og ýmsu öðru.
- Það leiðir til þess að þarmaveggirnir fara að leka fæðuögnum sem fara út um líkamann og valda skaða.
- L-Glutamine frá NOW er amínósýra, sem gerir meðal annars við skaddaða vefi, einkum í þörmum.
Fylgstu með daglegum færslum á FACEBOOK – eða skráðu þig í HEILSUKLÚBBINN
Mest lesna greinin á vefsíðunni minni ber fyrirsögnina 9 MERKI UM LEKA ÞARMA. Í þessri grein fjalla ég hins vegar um L-Glutamine og hvernig það stykrir þarmaveggina. Sú þekking að þarmarnir ráði miklu um ónæmiskerfi okkar er ekki ný af nálinni, því fyrir 2400 árum síðan hélt Hippocrates því fram að alla sjúkdóma mætti rekja til þeirra.
Í dag eru það læknar eins og meltingasjúkdómasérfræðingurinn Alezzio Fasano, sem segja okkur einfaldlega að þarmarnir séu varnarmúr okkar gagnvart árásum úr umhverfinu og því mikilvægt að þeir séu í lagi.
VÍÐTÆK ÁHRIF Á HEILSUNA
Menn greinir aðeins á um það hvort 70% eða 80% ónæmiskerfisins sé að finna í þörmunum, en í raun er prósentan aukaatriði. Það mikilvæga í þessu máli er að þarmarnir gegna lykilhlutverki í ónæmiskerfi okkar. Mun algengara er, en flestir halda, að fólk sé með leka þarma.
Talað er um að heilaþoka, ADHD, húðsjúkdómar eins og exem eða hormónaójafnvægi, þunglyndi og margt fleira geti stafað geti tengst ástandi örveruflórunnar í þörmunum. Til að bæta úr lélegu ástandi þarmaflórunnar er frábært að taka inn góðgerlablöndur eins og Probiotic 10 blöndurnar frá NOW.
HVERS VEGNA LEKA ÞARMAR?
Í bók minni HREINN LÍFSSTÍLL fjalla ég nokkuð ýtarlega um leka þarma og hvers vegna þeir leka, hvað veldur og hvað er til ráða. Hér kemur hins vegar stutta skýringin.
Menn hafa nýlega komist að því að þarmaveggirnir eru ekki en samofin heild, heldur eru á þeim “hlið” sem opnast í stuttan tíma fyrir tilstilli efnis sem þarmarnir framleiða og heitir zonulin. Opnunin leyfir litlum einingum næringarefna að fara í gegnum hliðin og út í blóðið. Svo eiga hliðin að lokast – EN gera það ekki.
Bólgur í þarmaveggjunum geta líka leitt til þess að þarmarnir verði lekir. Helstu ástæður fyrir bólgunum má rekja til:
- Verkjalyfja og magasýrulyfja, sem ekki eru lyfseðilsskyld
- Sýklalyfja
- Áfengisneyslu
- Of mikillar sykurneyslu
- Neyslu mjólkurafurða
- Glútens og annarra korntegunda – sem enn teljast stærsti skaðvaldurinn
- Ójafnvægis í örveruflóru þarmanna
- Candida sveppasýkingar í þörmum
L-GLUTAMINE STYRKIR ÞARMAVEGGINA
L-Glutamine er einstök amínósýra sem kemur að ýmissi starfsemi í líkamanum. Áætlað er að í hverjum og einum líkama séu allt að 50.000 mismunandi prótein hverju sinni og flest þeirra þurfa á L-Glutamine að halda. Þessi prótein bera ábyrgð á nánast öllum efnaskiptum í líkamanum, allt frá því að melta fæðuna og yfir í það að gera við skaddaða vefi, einkum og sér í lagi í þörmum.
Þótt L-Glutamine geti stuðlað að nánast allri uppbyggingu og virkni líkamans, er það einkar mikilvægt til viðgerðar á lekum þarmaveggjum.
Auk viðgerða á þarmaveggnum stuðlar L-Glutamine meðal annars að:
Minni uppþembu – Kemur jafnvægi á blóðsykurinn – Byggir upp heilbrigðan og grannan vöðvamassa – Dregur úr harðsperrum eftir líkamsrækt og hjálpar líkamanum að ná fyrr jafnvægi eftir göngur og hlaup – Stuðlar að heilbrigðara ónæmiskerfi – Dregur úr áfengislöngun – Kemur jafnvægi á skapsveiflur – Stuðlar að reglulegum hægðum –
L-Glutamine frá NOW er tekið inn á fastandi maga að morgni til ef það er í hylkjum. Einnig er hægt að fá L-Glutamine í dufti, en þá er hægt að blanda því út í búst og aðra drykki.
Neytendaupplýsingar: L-Glutamine frá NOW fæst meðal annars í Hverslun.is, Fjarðarkaupum og í Nettó.
Mynd: Can Stock Photo – PrettyVectors
Helstu heimildir: Grein í fréttabréfi bandaríska læknisins Dr. Amy Myers.
Um höfund
- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
- Greinar19. janúar, 2025FYRSTA NÝJA TUNGL ÁRSINS 2025
- Greinar16. janúar, 2025HVER STJÓRNAR ÞÍNUM LÍKAMA?
- Greinar13. janúar, 2025FULLT TUNGL Í DAG
- Greinar11. janúar, 2025YFIRLIT YFIR ÁRIÐ 2025