ÁHRIF PLÁNETANNA Á NÆSTUNNI

Eftirfarandi pistill birtist á Facebook síðu hennar Pam Gregory og ég ákvað að snara honum yfir á íslensku með smá aðlögun að málinu okkar. Það eru nefnilega að verða breytingar á stefnu plánetanna sem hafa verið á ferð aftur á bak og þá léttir aðeins á hlutunum. Þann 28. nóvember stöðvaðist Satúrnus á 25 gráðum Fiskum og fer nú að hreyfast hratt fram á við, en hann fer inn í Hrútinn þann 14. febrúar. Merkúr breytti um stefnu þann 29. nóvember á 20 gráðum í  Sporðdreka og heldur nú beint áfram. Neptúnus lætur aðeins bíða eftir sér og  breytir ekki um stefnu á 29 gráðum í Fiskum til að bara beint fram á við fyrr en 10. desember. Eftir þann tíma gætum við fundið fyrir aukinni skýrleikatilfinningu, líkt og við séum að ganga inn í nýtt tímabil, þótt það birtist kannski ekki að fullu fyrr en fyrstu mánuði ársins 2026.

TÓMARÚM OG SÖKNUÐUR

Næstu mánuði getum við líka upplifað eins konar tómarúm, áður en næsti kafli lífsins tekur að mótast. Við gætum líka fundið fyrir sorg, syrgjandi sambönd sem hafa runnið sitt skeið – ekki vegna ágreinings, heldur einfaldlega vegna þess að þið eruð ekki lengur á sömu tíðni. Blessaðu þau sem tengslin eru að rofna við með kærleika og horfðu fram á veginn. Þú gætir einnig fundið fyrir söknuði yfir því að skilja eftir þig eldri útgáfu af sjálfri/sjálfum þér.

Til að fá skýrari mynd af því hvað gæti verið framundan hjá þér, skoðaðu þá hvar samstaða Satúrnusar og Neptúnusar á 0 gráðu Hrútsins, þann 20. febrúar lendir í fæðingarkorti þínu – og  í hvaða húsi kortsins – svo og hvaða húsum þessar tvær plánetur stjórna. Satúnus stjórnar tíunda og ellefta húsinu og Neptúnus því tólfta. Þú getur lesið meira um húsin í þessari grein: TÓLF HÚS STJÖRNUKORTANNA

Við getum líka litið til baka til mánaðanna maí/júní/júlí á þessu ári, einkum þó júní, og skoðað hvaða hugmyndir að nýjum verkefnum eða nýrri stefnu í lífinu kveiknuðu þá. Væntanlega setjum við meiri orku í þau verkefni fyrstu mánuðina árið 2026.

UMBREYTINGARMÁNUÐUR FRAMUNDAN

Áður en við stígum inn í nýtt ár eigum við eftir að ganga í gegnum desember, sem allt bendir til að verði mikill umbreytingarmánuður. Má þar einkum nefna afstöðuna sem verður á milli Sólar, Venusar, Jarðar og 3I-Atlas þann 19. desember, sem þá tengjast í beinni línu rétt fyrir vetrarsólstöður í Steingeit, en þær verða 21. desember.

Rafsegulsvið jarðar er óstöðugt vegna mikilla gosa á Sólinni og síðustu tvo daga hafa orðið tveir stórir jarðskjálftar (6,3 og 6,0) í Indónesíu og Alaska og þrjú M3-klassa gos á Sólinni á rétt um 24 tímum, með tilheyrandi segulstormum sem stefna til Jarðar.

Núna eru Sól, Venus og Mars öll í Bogmanni, stjörnumerkinu sem tengist flugi. Við getum því búist við truflunum á flugi.

OFURTUNGL 4. DESEMBER

Þann 4. desember verður Tunglið fullt á 13 gráðum í Tvíburum. Það myndar svokallaðan stórkross við Tunglnóðuna sem nær á milli Fiskanna og Meyjunnar. Við gætum því átt von á miklu flæði upplýsinga (Tvíburar) sem gæti orðið yfirþyrmandi. Mikilvægt er þá að halda innri ró og ekki er verra að detta inn í Hjartaöndun í 2-3 mínútur nokkrum sinnum yfir daginn.

Skuggahlið tvöfaldra merkja eins og Tvíbura (tveir) og Fiskar (tveir) getur bent til tvískinnungs. Neptúnus á síðustu gráðu í Fiskunum undirstrikar það – blekkingar sem gætu komið í ljós undir björtu Ofurtunglinu, svo og þegar Satúrnus nálgast samstöðu við Neptúnus næstu vikurnar. Sú samstaða táknar nokkurs konar „raunveruleikapróf“ á hvaða blekkingu sem er, auk þess sem Tvíburarnir eru mjög tengdir fjölmiðlunum.

VERSLUN OG TOLLAR

Tvíburarnir tengjast verslun og tollum. Við fullt Tungl eru Sól og Tungl í 180 gráðu andstöðu við hvort annað. Sólin í Bogmanni er í samstöðu við „The Great Attractor“ sem eykur mátt hennar. Bogmaðurinn er annað af tveimur merkjum sem tengjast lögum, svo það er áhugavert að Hæstiréttur Bandaríkjanna er nú að skoða hvort tollar Trump forseta hafi verið löglegir. Úrskurður er sagður koma „brátt“.

Kort Trump forseta er mjög virkjað af þessu Ofurtungli: Mars lendir á Suðurnóðu hans og Tunglinu, sem stjórnar húsi hans tengdu stjórnmálum. Sólin hans er í 10. húsi ferils og leiðtogahæfileika, svo þetta verður mjög áhugaverð vika fyrir hann, hvernig sem fer.

Úrskurðurinn gæti raskað mörkuðum og gjaldmiðlum, sérstaklega styrk bandaríkjadollara. Á þessu Ofurtungli er Sólin í mjög þéttri samstöðu við rísandann í korti Bandaríkjanna sem er á 12 gráðum í Bogmanni (kort miðað við 4. júlí 1776, kl. 17:10, í Fíladelfía).

HRUN GAMLA KERFISINS

Undanfarin tvö ár hefur Pam, ásamt mörgum öðrum talað um hrun gamla kerfisins. Það þarf að gerast til að nýju kerfin geti fæðst að fullu, þótt þau séu að mótast samhliða hruni þeirra gömlu. Fylgist því með málum tengdum tollum, verslun, hlutabréfamörkuðum, gjaldmiðlum, fjölmiðlum og hverju sem tengist tvískinnungi, blekkingum eða ástandsbreytingum. Eitthvað gæti verið að hrynja í náinni framtíð, mögulega mjög bráðlega út af Ofurtunglinu þann 4. desember.

MENN GÆTU “MISST HÖFUÐIД

Frá síðari hluta desember og fram í byrjun mars, meðan plánetan Úranus er í samstöðu við fastastjörnuna Algol, gætu menn „mist höfuðið“ eða fallið af stalli í opinberum embættum. Slíku falli gæti fylgt óreiða í þriðju víddinni, svo mikilvægt er að halda innri ró og vera eins og örninn sem situr hátt uppi í fjalli og horfir úr fjarlægð á það sem er að gerast.  

Mannkynið er að ganga í gegnum gríðarlega mikla vitundarbreytingu, sem líkleg er til að valda óreiðu því margir vilja halda í það gamla. Því er gott að spyrja sig: „Hversu góð getur breytingin orðið?“ frekar en að óttast hana.

Orka ársins 2026 verður hraðari, ferskari og léttari — með mörgum nýjum byrjunum og tækifærum fyrir okkur öll. Því meira sem við höldum stöðugleikanum, því jákvæðari verður framtíðin skrifar Pam, um leið og hún sendir öllum blessun sína.

——

EF ÞÚ ÁTT EKKI STJÖRNUKORT geturðu pantað þér kort með 20% afslætti til og með 4. desember næstkomandi með því að SMELLA HÉR

Myndir: Stjörnukort sem sýnir afstöðuna 20. febrúar 2026 og mynd af Shutterstock.com

 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN