GÍFURLEGT ÞRÓUNARSTÖKK

Jörðin og við sem á henni búum erum að fara í gegnum gífurlegt þróunarstökk. Við stöndum á algerum tímamótum, þar sem Jörðin færist sífellt dýpra inn í ljósbylgjur ljóssólar okkar, Alcyone og inn í Ljóseindabelti hennar. Ljóseindabeltið er viðfeðmt með ljóseindasveiflum í 4. og 5. tíðnivídd og þessar tíðnir eru að endurstilla sveiflutaktinn í plánetunni Jörð og okkur sem á henni búum.

SÓLARSTJARNAN OKKAR

Í bók minni LEIÐ HJARTANS sem ég skrifaði og gaf út árið 2022 fjalla ég um Sólina okkar sem er stjarna sem spilar gífurlega stjórt hlutverk í þróunarferli okkar. Bandaríski stjörnuspekingurinn Rob Perri, sem heldur úti vefsíðunni www.thestarscience.com er með magnaðar skýringar á sólstjörnunum okkar og ég fékk leyfi til að birta útdrátt úr þeim í bókinni minni. Hér á eftir er stutt skýring á kenningum Rob Perri, nokkuð orðrétt eftir honum höfð.

Hann heldur því fram að Alheimurinn okkar sé eins og einn risastór hugur, sem tengdur er tauganeti (neural network), líkt og heilar okkar. Netið samanstendur af greinanlegum orkumynstrum á sérstökum endurómanlegum tíðnum, sem hafa samskipti sín á milli. Kerfið er svo umfangsmikið að við eigum erfitt með að skilja það, en því er haldið saman af miðlægum sólstjörnum (central suns). Þær sólir eru vitundarheildir sem beina ljósi sínu og kærleika að lægri sviðum vitundar og reynslu.

RAFHLÖÐUR ALHEIMSINS

Á vissan hátt eru þessar sólir eins og rafhlöður Alheimsins, hver með sína endurómunarorku og tíðni. Nánasta miðlæga sólstjarnan okkar er fastastjarnan Alcyone, sem er alltaf í Ljóseindabeltinu (Photon beltinu). Hún er bjartasta stjarna Sjöstirnisins í stjörnumerki Nautsins. Massi Alcyone er 600% meiri en okkar Sólar og hún er tíu sinnum stærri.  

Okkar Sól á í stöðugum samskiptum vð Alcyone og þessar sólstjörnur deila í kosmískum samskiptum sín á milli upplýsingum, orku og innsæi um það hvernig á að stuðla að uppfærslu heildarinnar í okkar hluta Vetrarbrautarinnar. Þegar okkar Sól er nálæg Alcyone rís meðvitnd okkar, en þegar hún fjarlægist hana tekur myrkvað tímabil við.

INN Í LJÓSEINDABELTIÐ

Sólkerfi okkar er nú að komast inn í orkusvið Ljóseindabeltisins eftir 26.000 ára hringrás. Ljóseindabeltið er ótrúlega andlegt svið sem er hluti af enn stærri miðlægri sól í Vetrarbrautinni eða stjörnuþoku okkar, sem er Síríus. Ljóseindir frá miðlægu sólinni munu baða plánetuna okkar þegar hún fer í gegnum Ljóseindabeltið. Egóískt meðvitundarleysi mun lýsast upp og það verður uppfærsla á vitundinni. Þetta er samhæfingarferli þar sem Sólin okkar, miðlæga sólarstjarnan okkar Alcyone og æðri miðlæga sólstjarnan okkar Síríus koma til með að samstilla sig við miðju Vetrarbrautarinnar.   

Þetta er að gerast núna, þegar 26.000 ára hringrásinni er að ljúka. Framundan er því djúptækt þróunarstökk í orkuflóru Jarðar, tímabil umbreytinga og vakningar. Hér líkur skýringum Rob Perri.

ÞRÓUNIN HJÁ OKKUR

Við komum til með að ná tengslum á ný við fjölvíddar eðli okkar og öðlast beina tengingu aftur við Skaparann. . . en það er hinn sanni fæðingaréttur okkar. Allir sem á Jörðinni búa eru að fara í gegnum þessar tíðnibreytingar. Sumir eru betur undir þær búnir en aðrir. Þessum tíðnibreytingum fylgir mikið álag á líkamann, sem ég hef fjallað um í fyrri greinum mínum.

 Það álag kemur til dæmis fram í því að við getum átt erfitt með svefn, finnum fyrir höfuðverk, fáum són (tinitus) í eyrun, erum aðra stundina ofurhress og hina slöpp og þreytt. Við erum að fara í gegnum breytingar sem hafa aldrei átt sér stað áður, því við erum hér á Jörðinni í miðju þessu gríðarlega þróunarstökki.

HVERNIG Á AÐ BREGÐAST VIÐ?

Gott er að nýta sér eitthvað af eftirfarandi leiðum:

  • Hætta að horfa og hlusta á fréttir í fjölmiðlum. Gamlar leiðir og venjur eru að hrynja í þessar hækkandi ljósorku sem frá sólunum kemur. Látum ekki soga okkur inn í hrunið – höldum innri ró.
  • Leggja nokkrum sinnum á dag – í nokkra mínútur í senn – hönd (hendur) á hjarta, loka augunum, fylla hugann af þakklæti og anda inn í hjartað í gegnum nefið meðan talið er upp að 5 og út um munninn meðan talið er upp að 8. Þannig tengjum við saman hjarta og heila, en kærleiksorkan er málið og því þarf að efla hana.
  • Hugleiða reglulega eða bara sitja í kyrrð og ró í 10-15 mínútur á dag og “hlusta” á það sem kemur upp í hugann.
  • Verja eins miklum tíma og hægt er utandyra í tengslum við náttúruna, sem nú “sefur” reyndar hjá okkur.
  • Sitja í Sólinni án gleraugna alltaf þegar færi gefst til að taka á mótið ljóskóðum frá henni – minnst 15 mínútur á dag þegar Sólin skín.
  • Taka mataræðið í gegn og hætta í skyndibitamat og öðru unnu fæði.
  • Drekka ríkulega af vatni, helst við stofuhita. Gott er að blessa vatnið áður en það er drukkið.

Sólin okkar og miðlægar sólstjörnur hennar skipa samkvæmt þessu mikilvægt hlutverk í vitundarvakningu og þróun mannkyns. Að mínu mati gerir 3I-ATLAS það líka.

Hægt er að finna fleiri greinar á vefsíðunni: www.gudrunbergmann.is
Þú getur skráð þig á Póstlistann minn HÉR

Mynd: www.Shutterstock.com  

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN