Í morgun, þann 20. nóvember kl. 06:47 að staðartíma hér í Reykjavík, kviknaði nýtt Tungl á 28 gráðum í Sporðdreka. Með afstöðum sínum við allar innri og ytri pláneturnar verður þetta nýja Tungl eins konar „viskusteinn“ og getur aukið skilning okkar á lífinu og okkur sjálfum. Í raun mætti kalla það mikilvægasta nýja Tungl ársins!
Í bókinni The Hitchhiker’s Guide to the Galaxy, sem er vísindaskáldsaga eftir Douglas Adams, er byggð ofurtölva til að reikna út Svarið við hinstu spurningu lífsins, alheimsins og alls.
Eftir 7,5 milljón ár af útreikningum kemur loksins opinberunin, svarið við lífinu, alheiminum og öllu… talan 42. Allir verða auðvitað vonsviknir, því talan 42 virðist fáránleg og merkingarlaus. Hversdagsleiki tölunnar gerir grín að þrá okkar eftir einu loka – og óumbreytanlegu svari við lífsspurningunni. En talan 42 er aðeins fáránleg ef við ruglum saman tölunni og boðskapnum.
SVARIÐ VIÐ LÍFINU, ALHEIMINUM OG ÖLLU
Ef við tökum töluna 42 sem myndlíkingu – staðgengil fyrir undirliggjandi grunnkóða veruleikans, mynstur sem allt sprettur úr – þá er hugmyndin um að það sé frumhvatamaður, „hluturinn á bak við hlutinn“, ekki svo langsótt.
Undir nýju Tungli Sporðdrekans sem er í mismunandi afstöðum við allar hægfara pláneturnar erum við kölluð til að brjóta kóðann og komast að kjarna þess hver við erum, hvers vegna við erum hér og hvað raunverulega skiptir máli.
Þegar stórar og mikilvægar plánetur eins og Júpíter, Satúrnus, Úranus, Neptúnus og Plútó tala allar í einu – sérstaklega í gegnum persónulegan farveg eins og þetta nýja Tungl, verður ómögulegt að hunsa leit okkar að tölunni „42“.
Okkur líður eins og við verðum að vita hver meiningin er. Við getum tengt punktana á milli plánetanna, en hver er skýringin á bak við þá og hvernig áttum við okkur á því hvernig allt passar saman. Hvernig finnum við þennan grunnkóða? „Svarið“ við því af hverju við erum hér og hvernig öðlumst við skýra merkingu á ferðalagi okkar?

NÝTT TUNGL Í SPORÐDREKA – LEITAÐU INN Á VIÐ
Algengasta aðferðin – sérstaklega í þessum oförvaða heimi okkar – er að fara út á við. Að læra meira, lesa meira, safna meiri upplýsingum, eltast við fleiri upplifanir, stækka, kanna, gera. Að nálgast lífið eins og rannsóknarverkefni og vona að ef við söfnum nægilega mörgum gögnum, muni merkingin afhjúpast.
Hin leiðin – sú óskilgreindari, sem við erum síður hvött til að fara – er að gera nákvæmlega hið gagnstæða. Að slökkva á því sem kennararnir segja, „sérfræðingarnir“ fullyrða og fjölmiðlarnir endurtaka. Hávaðanum úr umheiminum sem reynir að þröngva hlutum upp á okkur. Að sitja með sjálfum okkur nógu lengi til að hið raunverulega svar geti orðið til innra með okkur.
Nýja Tunglið í Sporðdreka þann 20. nóvember, sem er í þéttri samstöðu við plánetuna Merkúr á ferð afturábak, vísar okkur á síðari leiðina. Þetta er nýtt Tungl hlustunar – sem hvetur okkur til að leita í hinn rólega stað innra með okkur, þar sem persónulegur sannleikur okkar bíður eftir að við heyrum hann.
Við höfum vef tengsla við ytri pláneturnar: nýja Tunglið er í 180 gráðu andstöðu við Úranus, í sextíu gráðu afstöðu við Plútó, í níutíu gráðu spennuafstöðu við Júpíter, Satúrnus og Neptúnus – allt sem bendir til stærra samhengisins, „líf, alheimur og allt“-þemans… sem öllu verður miðlað í gegnum. Sú leið liggur einmitt í gegnum persónulegu plánetuna Merkúr, sem er táknrænn fyrir hugsun og máltjáningu og er í samstöðu við Sól og Tungl á þessu nýja Tungli. Merkúr, sem var þessi guðdómlegi boðberi guðanna til forna
NÝTT TUNGL Í SPORÐDREKA OG MERKÚR AFTURÁBAK
Þegar Merkúr á ferð afturábak er í samstöðu við Sólina hefst nýr Merkúrhringur – nokkurs konar nýtt Tungl Merkúrs. Á þessu nýja Tungli í Sporðdreka skarast þessir tveir nýju hringir. Við erum því bæði með nýtt Tungl og „nýjan Merkúr“.
Í þessari sjaldgæfu „tvíhringa“-virkjun kviknar á innri rafkerfi okkar, því andinn (Sólin), sálin (Tunglið) og skynjunin (Merkúr) koma saman í samstillingu.
Nýja tunglið í Sporðdreka í samstöðu við Merkúr mun draga okkur að sannleikanum eins og að þyngdaraflinu. Allir þeir fletir sem við notum til að skapa merkingu koma saman til að opna fyrir djúpan Sporðdreka-kóða innri þekkingar.
Það er þessi innri togkraftur sem að lokum leiðir okkur að heilaga bikarnum í innra ferðalagi okkar – sannleikanum undir sannleikanum.
Skilaboðin sem Merkúr á ferð afturábak á þessu nýja Tungli færir okkur eru afar mikilvæg. En það er bara eitt „en“. Það gæti verið erfitt fyrir okkur að skynja þessi skilaboð, því þau eru djúpt innra með okkur, og falla EKKI undir svona formúlukenndar “2 + 2 = 4” leiðbeiningar.
ÞAÐ SEM ER MIKILVÆGT ER ÓSÝNILEGT AUGUNUM
Þessari afstöðu fylgir annars konar innsýn. Hún mun ekki líta út eins og eða fylgja þeim reglum sem þú nú þegar þekkir. Því það sem býr innra með okkur starfar ekki samkvæmt sömu lögmálum og dagsljósið.
Á nýju Tungli í Sporðdreka er ljósið slökkt.
Það er eitthvað við myrkrið – fjarveru ljóss, örvunar og ytri vísbendinga – sem fjarlægir truflun og skerpir hæfni okkar til að „sjá“ það sem við getum ekki séð þegar ljósið er kveikt.
Það sem við skynjum í myrkri er EKKI það sem heimurinn segir okkur að sjá. Þessi innri sannleikur fær ekki samþykki fjöldans. Oft er þessi „nætur“-skynjun nákvæm andstæða við það sem dagurinn „samþykkir“. Og það getur verið ógnvekjandi.
Ferill, hjónaband, börn, húsnæði, frí, samfélagsmiðlalæk, bókasamningur (eða hvaða skilgreining á velgengni sem við búum yfir) – hvað gerist þegar dagformúlan passar ekki við það sem kemur í ljós þegar ljósið er slökkt?
Í myrkri, þegar allt sem keppist um athygli okkar hættir að þrengja að, „sjáum“ við hvað raunverulega skiptir máli.
Eins og Litli prinsinn (bókin) minnir okkur á: „Það sem er mikilvægt er ósýnilegt augunum.“
Við þurfum að treysta innra hvísli – vitundinni sem er rétt og byggir á næmi okkar, viðurkenningunni sem erfitt er að orða en auðvelt að skilja, sannleikanum sem rís úr þeim hluta okkar sem aldrei lýgur, því hann er kóðaður í DNA-ið okkar.
Í því að treysta þessu innsæi birtist okkar dýpri, persónulegi sannleikur. Þegar hann kemur, kemur hann sem innri vitneskja – eitthvað sem þú gætir ekki alveg orðað, en mun engu að síður hljóma með kjarna þess hver þú ert.
Þýtt og endursagt af vef Astro Butterfly
Guðrún Bergmann
ÁTT ÞÚ ÞITT EIGIÐ STJÖRNUKORT? EF EKKI GETURÐU PANTAÐ ÞÉR KORT MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Mynd: Shutterstock.com
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar29. nóvember, 2025ÁHRIF PLÁNETANNA Á NÆSTUNNI
Greinar23. nóvember, 2025GÍFURLEGT ÞRÓUNARSTÖKK
Greinar20. nóvember, 2025MIKILVÆGASTA TUNGL ÁRSINS
Greinar13. nóvember, 2025HÆKKANDI TÍÐNI KÆRLEIKA

