VENUS Í UNDIRHEIMUM
– ÞAR SEM MYRKRIÐ GEYMIR LÍFIÐ
Síðustu dagarnir áður en Venus rís á ný sem morgunstjarna
Undanfarin kvöld hefur Venus, á ferð sinni aftur á bak, sigið eftir sólsetur æ neðar í átt að sjóndeildarhringnum. Nú getur það gerst hvenær sem er að hún renni inn í geisla Sólarinnar sem er að setjast og hverfi af himninum.
Venus er á leið inn í undirheimana. Þetta er síðasti áfanginn í hringrás Venusar – lokaspretturinn áður en hún rís á ný, í þetta sinn sem morgunstjarna, í lok október.
Í undirheimunum brennir Venus burt allt sem tengt er samskiptum okkar og komið er að eðlilegum endalokum.
VENUS Í ÝMSUM MENNINGARHEIMUM
Menningarheimar víða um heim hafa sagt söguna af því þegar Venus hverfur. Í goðsögnum Asteka kastar Quetzalcoatl – guðinn sem tengdur er Venusi – sér á bál, og eftir nokkra daga í undirheimum rís hjarta hans á ný sem morgunstjarnan.
Í einni elstu sögu sem skráð hefur verið stígur súmerska gyðjan Inanna – sjálf Venus – niður í undirheimana. Við hvert hinna sjö hliða þarf hún að láta eitthvað af hendi: kórónuna, skartgripina og konunglegu skikkjuna.
Hún kemur fram fyrir drottningu hinna dauðu svipt öllu því sem hún var í heiminum fyrir ofan – nakin. Þar deyr Inanna. Líkami hennar hangir á króki í þrjá daga og þrjár nætur. Uppgjöfin er alger.
LOKAHREINSUN OG ENDURFÆÐING
Þessi áfangi Venusar á ferð aftur á bak stendur frá því um 19. október (einum til tveimur dögum fyrr eða síðar, eftir því hvar á Jörðinni þú býrð) og fram til 23.–24. október, þegar Venus mætir Sólinni, sem þá verður komin inn í Sporðdrekann.
Talað er um endurfæðingu Venusar, þegar hún verður í hjarta Sólarinnar (cazimi) dagana 23.-24. október. Á sama tíma og Venus verður í hjarta Sólarinnar, kemur Merkúr til með að stöðvast til að breyta um stefnu og fara aftur á bak. Merkúr er táknrænn fyrir hugsun okkar og máltjáningu, svo við megum búast við að það verði ekki bara tilfinningalegt endurmat í gangi, heldur líka huglægt.
Nokkrum dögum síðar – eða í kringum 29.-30. október – snýr Vebus aftur upp í heiminn fyrir ofan og birtist á ný á morgunhimninum.
Áður en Venus rís úr öskunni síðar í mánuðinum er rétt að beina athyglinni að þeim hluta ferðalagsins sem nú stendur yfir. Á milli 19. og 23. október 2026 verður Venus ósýnileg og gengur í gegnum lokahreinsun nítján mánaða hringrásar sinnar.
Einmitt þá er Venus einnig í níutíu gráðu spennuafstöðu við Plútó – sjálfan herra undirheimanna. Þessir fjórir til fimm dagar verða því eins djúpt í undirheimunum og hugsast getur. En hvað eru undirheimarnir? Hvers vegna fer Venus þangað af fúsum og frjálsum vilja?
ÓTTINN VIÐ MYRKRIÐ
Undirheimarnir eru ríki Plútós – ríki dauða, umbreytingar, endurfæðingar og hins óþekkta. Og af því að undirheimarnir eru óþekktir – og við vitum ekki hvað raunverulega gerist þarna niðri – óttumst við þá eðlilega.
Óttinn er við myrkrið og hið óþekkta. Það sem við sjáum ekki hræðir okkur, því við höfum engan viðmiðunarramma fyrir það.
Stundum finnum við þennan ótta greinilega, þegar ógnin blasir beint við okkur. Oftast vinnur óttinn við myrkrið hins vegar á mun lúmskari hátt. Við vitum ekki við hvað við erum hrædd. Við veljum bara það sem er þægilegt. Við höldum okkur í dagsbirtunni – í birtu þess sem við þekkjum nú þegar.
Við förum ekki „út í heiminn“. Við tökum ekki áhættuna. Við eltum ekki starfsferilinn, ævintýrið eða sambandið sem kallar á okkur – því þar er einfaldlega of margt óþekkt. Og með hverju slíku vali gerum við aðeins minna, tökum aðeins minni áhættu og sýnum aðeins minna af okkur sjálfum. Við hörfum inn í hið kunnuglega, þar til einn daginn að við þekkjum ekki lengur okkur sjálf.
ÓTTINN VIÐ MISSI
Ef við skoðum þetta nánar er óttinn við myrkrið í raun ótti við missi. Ótti við að það sem skiptir okkur máli verði á endanum tekið frá okkur. Rétt eins og laufin falla og hverfa ofan í jörðina snýr allt sem er efni – líka fólkið sem við elskum – á endanum aftur til ríkis Plútós.
Því höldum við aftur af okkur. Við leggjum okkur ekki öll fram. Við elskum ekki af öllu hjarta. Við leyfum okkur ekki að vera berskjölduð. Einhvers staðar djúpt inni hefur sálin reiknað dæmið: Ef ég elska bara að hluta mun missirinn særa minna og ég lifi hann af. Ef ég elska af öllu hjarta gæti missirinn tekið frá mér eitthvað sem kemur aldrei aftur.
Við höldum að við séum að vernda okkur. En í raun erum við að koma í veg fyrir að við lifum til fulls, þar til eitthvað lætur undan. Einhvern tíma fer lífið sem við höfum byggt upp í dagsbirtunni að virðast óþæglega innantómt – kannski öruggt, en ekki okkar. Og á því augnabliki, þegar allt hrynur inn á við, áttum við okkur á því að við eigum ekki annarra kosta völ en að leita til undirheimanna – eða djúpt inn á við.
Þetta er einmitt það sem Venus gerir núna. Hún VERÐUR að fara niður í undirheimana – því allt þarna úti, í birtunni, er farið að virðast falskt og úr tengslum. Hlutverkin, grímurnar og reglurnar sem við fylgjum af því að þær eru öruggar, ekki af því að þær eru sannar. Sannleika er ekki lengur að finna í hjarta hennar, svo hún leitar þangað sem hann er.
VENUS Í SPENNUAFSTÖÐU VIÐ PLÚTÓ

Um leið og Venus sættir sig við að undirheimaferðin sé óumflýjanleg og hverfur sjónum okkar, myndar hún níutíu gráðu spennuafstöðu við Plútó – sjálfa erkitýpu undirheimanna. Þetta gæti hljómað eins og tvöföld viðvörun, en í raun er þessi spennuafstaða Venusar og Plútós dulbúin blessun. Í myrkri undirheimanna er ekki lengur ógnvekjandi að mæta Plútó. Það er frekar eins og að koma heim.
Þótt þetta sé spennuafstaða við Plútó verður hún á forsendum Sporðdrekans – Venus er í Sporðdrekanum – og á yfirráðasvæði Plútós sjálfs. Eitthvað grundvallaratriði, sem einfaldlega var ekki hægt að takast á við í dagsbirtunni, getur nú breyst – á eðlilegan hátt – í djúpinu. Slík breyting getur nefnilega ekki átt sér stað í meðvitund okkar. Hún er ekki einhver vitsmunaleg uppgötvun eða gáta sem þarf að leysa.
MYNSTUR OG INNRI FORRITUN
Breytingin verður í sjálfum vef þess sem við erum, þar sem dýpstu hvatir okkar, mynstur og innri forritun hafa mótast. Við vitum að við erum komin þangað þegar ferlið líkist minna skilningi og meira því að eitthvað láti undan innra með okkur – djúpt og hreinsandi, eins og léttir á þróunarbrautinni.
Það losnar um eitthvað sem hefur haldið okkur í heljargreipum, ef til vill stærstan hluta ævinnar. Við sjáum að það er í raun og veru óttinn við myrkrið sem hefur blindað okkur svo að við höfum ekki lifað til fulls.
Í myrkri undirheimanna lútum við vef lífsins – og hann vísar okkur veginn.
HVAÐ FELST Í MYRKRINU?
Myrkrið, undirheimarnir, þögnin og jörðin eru ekki staðurinn þar sem lífið endar. Þau eru ílát lífsins, sjálfur vefur tilverunnar því öll fræ byrja að spíra og vaxa í myrkrinu.
Þegar við föðmum okkar stærsta ótta – óttann við myrkrið – og sættum okkur við óvissuna, hið óþekkta og að missir sé óumflýjanlegur, stendur hreint lífið eftir. Það sem þá finnst er mótefnið við innantómum reglum, lánuðum hugmyndakerfum og við grímunni sem við berum í dagsbirtunni.
Myrkrið er andstæða yfirborðsmennsku, tómleika og tengslaleysis. Andstæða þeirrar nagandi tilfinningar að það sé eitthvað við lífið sem við höfum enn ekki alveg áttað okkur á.
Þegar Venus í Sporðdrekanum verður ósýnileg og myndar spennuafstöðu við Plútó er gott að feta í fótspor hennar niður í undirheimana. Skilja dagsbirtuna eftir um stund – og sjá hvað felst í myrkrinu fyrir hvert og eitt okkar.
Heimild: Við vinnslu þessarar greinar var stuðst við efni í grein frá Astro Butterfly
Myndir: www.Shutterstock.com
FLEIRI GREINAR UM VENUS Á FERÐ AFTUR Á BAK:
VENUS Á FERÐ AFUTR Á BAK Í SPORÐDREKANUM
Ef þú veist ekki hvaða áhrif þessi för Venusar er að hafa á líf þitt geturðu komist að því, með því að panta þér STJÖRNUKORT HÉR! Lestur úr kortinu veitir þér upplýsingarnar sem þig vantar.
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR

