SEINNI HLUTI OKTÓBER-
– STÖNDU MEÐ OKKUR SJÁLFUM
Hér á eftir kemur umfjöllun um pláneturnar og afstöður þeirra seinni hluta október.
HÉR FINNURÐU HLEKK INN Á FYRRI HLUTANN EF ÞÚ VARST EKKI BÚIN/N AÐ LESA HANN
SÓL Í SAMSTÖÐU VIÐ VENUS
Þann 24. október, mætast Sólin og Venus á ferð aftur á bak á 0 gráðu Sporðdrekans. Venus er þá í hjarta Sólar (cazimi) og nýr Venusarhringur hefst. Þetta er nýtt upphaf – en um leið síðasti Venusarhringurinn í Sporðdrekanum sem við fáum í mörg hundruð ár.
Á vissan hátt ber hann í sér kjarna Sporðdrekans – kjarna allrar þessarar hundrað ára vegferðar og alls þess sem hún hefur kennt okkur.
Það er eitthvað í okkur, í tengslum okkar við það hver við erum innst inni og í því hvernig við stöndum með sannleika okkar, sem verður að eilífu breytt eftir þessa samstöðu.
Allt sem þessi mánuður hefur verið að byggja upp – afstaðan sem við vorum knúin til að taka, erfiðu verkin, gömlu sögurnar sem komu upp á yfirborðið – allt leiddi það okkur hingað.
MERKÚR FER AFTUR Á BAK
Sama dag og Sól og Venus mætast eða þann 24. október stöðvast Merkúr á 20 gráðum í Sporðdreka til að breyta um stefnu og fara aftur á bak.
Tímasetningin er næstum því kómísk: Merkúr fer aftur á bak sama dag og nýr Venusarhringur hefst, og fer svo beint fram á við sama dag og Venus, þann 14. nóvember.
Nú förum við að sjá að samstaða Venusar og Merkúrs í byrjun mánaðarins hefur mun dýpri tilgang. Við erum í raun stödd í sögu Venusar og Merkúrs – ekki bara sögu Venusar.
Hvernig okkur líður með okkur sjálf, og hvernig okkur líður í samböndum okkar, tengist þeim sögum og hugarlíkönum sem við höfum byggt upp sjálf eða verið alin upp við.
Tilfinningar eru nefnilega ekki bara eitthvað sem hendir okkur – þær mótast beint af þeim hugsunum og sögum sem við segjum sjálfum okkur. Þegar við sjáum tenginguna, þegar við skiljum hvernig eitt leiðir af öðru, getum við aldrei aftur tengst eigin hjarta á sama hátt.

FULLT TUNGL Í NAUTI
Þann 26. október verður Tunglið fullt á 2 gráðum í Nauti. Fulla Tunglið er í samstöðu við Chiron, í spennuandstöðu við Sól og Venus og í níutíu gráðu spennuafstöðu við Plútó. Þar með myndast enn ein T-spennuafstaðan, í þetta sinn með Plútó á toppnum.
Tunglið í Nauti sýnir okkur hina hlið Sporðdrekasögunnar – hvar við höfum verið að týna okkur sjálfum og fórna eigin þörfum til að halda nánd við einhvern annan. Samstaða Tunglsins og Chirons afhjúpar undirliggjandi sárið: „Gerðu það, hugsaðu um mig“.
Og Plútó, á toppi T-spennuafstöðunnar, heldur þrýstingnum áfram þar til þessi gamla innræting brestur loksins. Sagan hefur þjónað tilgangi sínum og þegar hún víkur stendur eftir hreinn og ósíaður sannleikur um það sem raunverulega skiptir máli.
VENUS Í ANDSTÖÐU VIÐ CHIRON
Þann 26. október er hjarta Venusar – sem er nýorðin morgunstjarna – með enn eitt prófið fyrir okkur, nú með spennuandstöðu sinni við Chiron.
Aðeins örfáum dögum eftir að hrár sannleikur hjarta okkar var afhjúpaður, þegar Venus var í hjarta Sólarinnar, þarf Venus nú að horfast í augu við það sem enn á eftir að sættast við.
Hvað þarfnast enn heilunar, athygli og samþættingar? Hvernig byggjum við upp nýja leið til að tengjast öðrum – leið sem er í betra jafnvægi – en heiðrum um leið okkur sjálf?
Heimild: Astro Butterfly
Þýðing: Guðrún Bergmann
VEIST ÞÚ HVAÐA PLÁNETUR ERU Í SPORÐDREKAHÚSINU ÞÍNU?
ÞÚ GETUR FUNDIÐ ÞAÐ ÚT Í GEGNUM STJÖRNUKORTIN MÍN.
Áhugaverð grein: VENUS Á FERÐ AFTUR Á BAK
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR
Greinar25. október, 2026ÞETTA ENDAR MEÐ ÞÉR
