VENUS Á FERÐ AFTUR Á BAK Í SPORÐDREKANUM

VENUS Á FERÐ AFTUR Á BAK Í SPORÐDREKANUM

– 40 DAGAR Í EYÐIMÖRKINNI

Eitt mikilvægasta ferli Venusar á þessu ári er framundan. Venus fer einungis aftur á bak í fimm merkjum á hverju hundrað ára tímabili. Á núverandi tímabili fer Venus aftur á bak í Hrútnum, Tvíburunum, Ljóninu, Steingeitinni og Spoðdrekanum.

Næsta ferli plánetunnar aftur á bak er í gegnum Sporðdrekann EN – hið athyglisverða er að þetta er síðasta Venusar ferlið aftur á bak í Sporðdrekanum á okkar æviskeiði – og í raun í margar komandi aldir.

40 DAGAR Í EYÐIMÖRKINNI

Þann 3. október stöðvast Venus á áttundu gráðu í Sporðdrekanum og snýr við til að fara aftur á bak um sporbaug sinn. Venus stöðvast svo aftur til að breyta um stefnu og fara beint áfram þann 14. nóvember 2026. Venus yfirgefur svo skuggasvæði ferlisins (retrograde shadow) þann 15. desember 2026.

ÞRJÁR ÁSTÆÐUR

Það tekur alltaf á þegar Venus er á ferð aftur á bak, en þegar plánetan fer aftur á bak í Sporðdrekanum verður ferlið yfirleitt sérstaklega magnað. Fyrir því eru þrjár ástæður.

Í fyrsta lagi vegna þess að þetta er Sporðdrekinn – og við vitum öll að Sporðdrekinn er sjálfur tilfinningaþrungnasta merki stjörnuhringsins.

Í öðru lagi vegna þess að Venus fer aftur á bak bæði í gegnum Sporðdrekann og Vogina, en bæði þessi stjörnumerki eru merki sem tengd eru við sambönd fólks. Venus, pláneta sambanda, fer því aftur á bak um sitt eigið yfirráðasvæði.

Og í þriðja lagi – sem skiptir gríðarlega miklu máli – er þetta í síðasta sinn sem Venusarstjörnupunkturinn (Venus Star Point) verður í Sporðdrekanum á meðan Venus er á ferð aftur á bak. Samstaða Venusar og Sólar sem verður um miðbik aftur á bak ferlisins  og kallast Venusarstjörnupunkturinn, markar upphaf nýrrar hringrásar Venusar.

Samstaðan verður á 0 gráðum í Sporðdrekanum og þetta er í síðasta sinn sem hún verður í Sporðdrekanum á ævi okkar!

NÚLL GRÁÐAN

Eins og á við um allar 0 gráður ber 0 gráðan í Sporðdrekanum með sér hreinan, ósíaðan og hráan kjarna merkisins – eins og við sjálfan Miklahvell.

En þessi samstaða á 0 gráðum í Sporðdrekanum er EKKI hefðbundna upphafið sem við tengjum venjulega við 0 gráðuna. Í samhengi við hringrás Venusar markar 0 gráðan í Sporðdrekanum í þetta sinn endalok.

Þessi röð Venusarstjörnupunkta í Sporðdrekanum hófst árið 1930 á 29 gráðum í Sporðdrekanum. Á átta ára fresti hefur samstaðan færst aftar í merkinu, eina gráðu í senn, þar til nú, árið 2026, að við erum komin á 0 gráðuna.

Að vissu leyti er þetta því niðurstaðan – lokaútkoman af öllum þeim Sporðdrekamálum sem við höfum verið að vinna úr í nærri heila öld.

FERLIÐ HÓFST ÁRIÐ 1930

Allt eftir því á hvaða aldri þú ert, hefur þú líklega upplifað nokkur fyrri tímabil þar sem Venus hefur verið á ferð aftur á bak í Sporðdrekanum. Hvert þeirra hefur fært okkur nýjan kafla í sömu undirliggjandi sögunni sem hófst árið 1930.

Nú fáum við tækifæri til að gera upp, í eitt skipti fyrir öll, þær flækjur Sporðdrekans sem hafa gengið í arf og styrkst í gegnum þessar hringrásir frá árinu 1930.

Sporðdrekadyrnar, sem staðið hafa opnar í hundrað ár, eru að skella í lás – fyrir fullt og allt.

ÞAÐ SEM RAUNVERULEGA SKIPTIR MÁLI

Hvað gerist þegar Venus fer aftur á bak? Hver er kjarni þess ferlis?

Plánetan Venus

Þegar Venus er á ferð aftur á bak gefst okkur tími til að endurmeta það sem okkur er kærast og sannast – hver við erum í raun og veru og hvað skiptir okkur virkilega máli. Ekki það sem okkur finnst að ætti að skipta okkur máli – fallega húsið, peningarnir, vandlega mótuð ímynd eða álit annarra – heldur það sem við þráum í raun.

Venus tengist gildismati okkar – plánetan er innri áttavitinn sem segir okkur hvað er satt, rétt og þess virði að velja. Hún stendur fyrir persónuleg heilindi okkar og spurninguna hvort við lifum í samræmi við þau eða ekki.

Venus er upphaf alls. Ferill, sambönd, peningar, viðurkenning og veraldlegur árangur – ekkert af þessu skiptir miklu ef þessa innri tengingu vantar eða hún er úr takti.

Ef við höfum ekki það sem við viljum, eða ef við höfum öll ytri merki velgengni en finnum samt fyrir tómleika, er það merki um að við höfum misst tengslin við innri Venusinn okkar.

Þá þurfum við að stíga út úr hávaðanum um stund – og dvelja um tíma í eyðimörkinni.

40 DAGAR Í EYÐIMÖRKINNI

Venus er á ferð aftur á bak í um það bil 40 daga. Fjörutíu daga tímabil er eitt af elstu erkitáknum mannkynsins fyrir einangrun, prófraunir og endurfæðingu.

Í trúarritum markar 40 daga tímabil andleg umskipti eða hreinsun. Í syndaflóðinu á tímum Nóa rigndi í 40 daga og 40 nætur og Móses dvaldi í 40 daga á Sínaífjalli.

Í þjóðtrú og galdri eru 40 dagar líka sá tími sem þarf til að aflétta álögum, ljúka helgiathöfn eða ganga í gegnum mikla umbreytingu.

Jafnvel enska orðið quarantine, sem við köllum sóttkví, er dregið af þessu 40 daga tímabili. Á tímum plágunnar fóru hafnarborgir í Evrópu að krefjast þess að skip, sem grunur lék á að bæru með sér smit, væru höfð í einangrun áður en fólk og farmur fengju að koma í land.

Ítalska orðið quaranta þýðir „fjörutíu“ og af því er orðið quarantine dregið.

Það er eitthvað við 40 daga – sem er lengri tími en mánaðarlegu hringrásirnar sem við notum venjulega til að mæla tímann – sem skapar nægilega fjarlægð til að raunveruleg umskipti geti átt sér stað.

Og allar þessar 40 daga sögur eiga annað sameiginlegt: Umbreytingin á sér ekki stað mitt í hversdagslífinu. Hvort sem um er að ræða eyðimörkina, fjallið eða skipið í sóttkví, þá erum við tekin út úr þeim heimi sem við þekkjum.

UMGJÖRÐ OG PRÓFRAUN

Sú umbreyting sem Venus kallar eftir getur ekki orðið ef við höldum okkur í nákvæmlega sama umhverfi – hvort sem átt er við bókstaflegt umhverfi okkar eða sögurnar og skoðanirnar sem við lifum eftir.

Dagarnir 40 eru bæði umgjörð og prófraun. Þægindi og truflanir eru tekin burt og í tóminu sem eftir verður fáum við að sjá hvað er raunverulega satt fyrir okkur.

Líklega eru þekktustu tengslin við 40 daga, frásögnin af því þegar Jesús dvaldi í 40 daga í eyðimörkinni.

Jesús fór út í óbyggðirnar, fastaði og djöfullinn freistaði hans með mat, völdum og upphefð. Þetta eru myndlíkingar fyrir allt það sem umheimurinn getur boðið okkur – á kostnað þess að við missum tengslin við það sem er satt innra með okkur.

Hin raunverulega prófraun eyðimerkurinnar snýst ekki um það hvort við þráum eitthvað, heldur hvort við getum greint á milli þess sem skiptir okkur raunverulega máli og þess sem virðist verðmætt af því að heimurinn segir okkur að svo sé.

Stundum – reyndar oft, og í raun nánast alltaf – vitum við ekki almennilega hver við erum eða hvað við viljum. Ytri væntingar, umbun, viðurkenning og hávaði draga athygli okkar frá því.

Þess vegna þurfum við á þessum tímabilum prófrauna, sjálfsskoðunar og samanburðar að halda – þrautunum í ævintýrunum, freistingum Jesú og föstu Mósesar. Þau setja sjálfið undir nægilegt álag til að við getum loksins greint hvað er raunverulega okkar og hvað við höfum drukkið í okkur úr umhverfinu.

Þá sjáum við muninn á forskrift heimsins og þeirri innri vitneskju sem við nálgumst aðeins með því að fara inn á við.

 

ENDURFÆÐING HJARTANS

Því þegar ytri uppsprettur ánægju og viðurkenningar eru teknar burt stendur sannleikurinn eftir. Dagarnir 40 eru ekki refsing. Þeir eru sá tími sem sálarlífið þarf til að raða sér upp á nýtt út frá nýjum skilningi á því hvað skiptir máli.

Hvort sem um er að ræða Jesú í eyðimörkinni, skip í sóttkví á tímum plágunnar eða hetju sem er lokuð inni í turni, þá krefjast dagarnir 40 umgjarðar. Það er skýrt afmarkað rými þar sem ferlið fær að þróast án þess að vera truflað eða útvatnað.

Í því rými eru ólíkar útgáfur af því sem við teljum okkur vilja mátaðar við innri loftvog Venusar, sem er nefnd hér að framan.

Hvað stenst prófið? Hvað styrkist? Hvað fellur burt? Hvað afhjúpast og sést í sínu rétta ljósi?

EKKI EINANGRUN

En það á ekki að skilja tímabilið þegar Venus er á ferð aftur á bak sem einangrun í merkingunni „Ég loka mig bara inni í herbergi og bíð eftir að þetta sé búið“. Og alls ekki með augum andlegrar sniðgöngu (spiritual bypassing) í anda „Þetta líður líka hjá“.

Nei. Að bíða eftir því að Venus ljúki ferð sinni aftur á bak, eins og ekkert sé fyrir okkur að gera á meðan, er líklega það sem vinnur mest gegn okkur.

Þegar Venus er á ferð aftur á bak VILJUM við fara út í eyðimörkina. Við viljum fasta.

Við stígum af fúsum og frjálsum vilja út úr hávaðanum og niður í djúp dulvitundarinnar, því við skiljum ferlið fyrir það sem það er. Þetta er nauðsynlegt ferli þar sem við losum okkur við allt sem stendur á milli þess sem við höldum að við séum og þess sem við þráum í raun og veru.

Meðvirkni. Egóið. Sjálfsdekur. Óttann við að vera yfirgefin. Þörfina fyrir viðurkenningu. Öll þessi lög þurfa að losa tökin svo að það sem er satt – og raunverulega okkar – geti vaknað til lífsins á ný.

Heimild: Astro Butterfly

Þýtt og lagað að íslensku: Guðrún Bergmann

VEIST ÞÚ HVAR 0 GRÁÐAN Í SPORÐDREKA ER Í ÞÍNU STJÖRNUKORTI?

ÞÚ GETUR PANTAÐ ÞÉR STJÖRNUKORT MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR!

 

 

 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN