VENUS Á FERÐ AFTUR Á BAK – SANNLEIKUR HJARTANS
- Hvers vegna allt svarið felst ekki í því að „elska okkur sjálf meira“
– og hvað Venus biður okkur í raun um
Venus stöðvaðist 3. október á 8 gráðum í Sporðdrekanum til að breyta um stefnu og er nú á ferð aftur á bak. Þeir sem hafa fylgst með greinum hér á síðunni vita að fá aftur á bak ferli taka jafn mikið á og þegar Venus fer aftur á bak.
Á þessum tíma verða sambönd til eða slitna, fólk úr fortíðinni skýtur aftur upp kollinum og tilfinningar sem við héldum að við værum búin að vinna úr koma upp á yfirborðið á ný. Undir niðri er það sem raunverulega gerist að við komumst í nánari snertingu við hjartað. Þegar Venus er á ferð aftur á bak er hún nefnilega eins nálægt Jörðinni og hún kemst.
Þegar Venus er svona nálægt okkur fyllumst við af orku hennar – orku sem getur líka orðið yfirþyrmandi. Ef við skiljum ekki hvað er á seyði getur þessi „Venus á sterum“ upplifun komið okkur úr jafnvægi.
ÝTIR Á GÖMLU TAKKANA
Í þessu yfirflæði fer ýmislegt að ýta á gömlu takkana okkar. Við bregðumst of harkalega við. Við föllum aftur í gömul sár eða mynstur – ekki endilega vegna þess að þau endurspegli það sem við raunverulega finnum, heldur vegna þess að ákefðin sjálf kveikir á viðbrögðunum um að berjast, flýja eða frjósa (fight-flight-freeze).
Þá getum við farið að breyta í ósamræmi við það sem er satt fyrir okkur, jafnvel þótt okkur finnist það ekki. Við höldum að við séum að fylgja tilfinningum okkar – en erum við að tjá þær, eða erum við að bregðast við því hve yfirþyrmandi þær eru?
Við þráum nánd en ýtum manneskjunni frá okkur. Við viljum að einhver sjái okkur en felum okkur á bak við skeytingarleysi. Eða við þráum fullvissu og krefjumst svara áður en hinn aðilinn hefur fengið tækifæri til að bregðast við. Þegar hlutirnir fara svo ekki eins og við vonuðum segjum við okkur sjálfum: „En þetta var það sem mér fannst.“ „Ég er bara svo tilfinninganæm/-ur.“ „Ég gef of mikið af mér.“
SJÁLFSÁSTIN – TUNGLIÐ EÐA VENUS?
Ein leiðin sem við notum til að réttlæta þetta eru kunnugleg ráð um að við þurfum bara að elska okkur sjálf meira.
- Færðu ekki það sem þú vilt? Það er af því að tankurinn þinn er tómur.
- Gekkstu of hart fram? Þú hefur gefið of mikið af þér og aðrir kunna ekki að meta þig.
- Endarðu alltaf með brostið hjarta? Það er af því að þú elskar þig ekki nógu mikið og þarft að vinna í því áður en þú opnar þig fyrir öðrum.
Öll þessi ráð hljóma vel, því þau veita okkur huggun og skýringu. Stundum eru þau jafnvel einmitt það sem við þurfum að heyra. En ef við skoðum málið betur gætum við fundið aðra ástæðu fyrir því hve fús við erum að trúa þeim: Þau gefa okkur sögu sem auðveldara er að kyngja. Sögu sem ógnar ekki hugmynd okkar um okkur sjálf, þá sem þau sem elska heitt, finna allt og gefa of mikið.
Það er erfiðara að spyrja:
Komst það sem ég gerði í raun til skila því sem ég fann?
Það er ekki þar með sagt að ráð um sjálfsást séu slæm. Það er frábært ráð að hugsa vel um líkamann og mörg vandamál leysast með góðum nætursvefni. En í stjörnuspekinni tilheyra sjálfsumhyggja, hvíld og tilfinningalegt jafnvægi Tunglinu – ekki Venusi. Ef við erum örmagna, eða ef hormónabreytingar hafa áhrif á líðan okkar, þá já – tökum á því fyrst.
En það er ekki það sem Venus snýst um. Svona ráð um sjálfsást hjálpa lítið við spurningarnar sem raunverulega tilheyra Venusi: hvort lífið sem við lifum endurspegli það sem skiptir okkur máli, hvort sambönd okkar séu heilbrigð og heiðarleg, eða hvort okkur líði ekki bara „vel“ og í jafnvægi – heldur finnum fyrir lífsneistanum.
HVERS VEGNA LENDUM VIÐ Í ÞVÍ SAMA?
Ef það væri allt svarið að „elska okkur sjálf meira“, hvers vegna lendum við þá aftur og aftur í sömu mynstrunum í samböndum – jafnvel eftir alla vinnuna sem við höfum lagt í okkur sjálf? Gæti verið – kannski, bara kannski – að hér sé eitthvað annað sem við höfum ekki enn skilið?
Hugleiddu þau mynstur sem endurtaka sig í samböndum þínum og taktu eftir sögunni sem þú notar til að útskýra þau. Ef sagan fegrar þig – eitthvað á borð við „Ég elska of mikið og fólk kann ekki að meta mig“ – gæti hún sleppt einmitt því sem þú þarft að sjá. Taktu líka eftir því hvort sagan dregur úr þér mátt: „Ég geri alltaf sömu mistökin.“ „Þetta er mér að kenna.“ „Ég get bara ekkert gert í þessu.“
Báðar sögurnar gefa okkur skýringu, en hvorug býður okkur að uppgötva eitthvað nýtt. Önnur segir okkur að ekkert þurfi að skoða; hin að við getum ekkert gert.
VENUS – SANNLEIKUR HJARTANS
Báðar geta komið í veg fyrir að við köfum lagi dýpra og spyrjum – ekki hvað ég þarf, ekki hvað ég vil, ekki hvað ég á skilið, heldur hver er í raun sannleikur hjarta míns?
Ólíkt Tunglinu, sem fer um sporbaug sinn umhverfis Jörðina og er táknrænt fyrir okkar nánustu, líkamlegu þarfir, fer Venus umhverfis Sólina. Táknrænt séð eru það því ekki þarfir líkamans sem eru miðja tilveru Venusar, heldur köllun andans.
Venus og Merkúr eru einu pláneturnar sem eru á sporbaug milli Jarðar og Sólar. Í þessu táknmáli færir Venus æðsta tilgangs okkar (Sólin) yfir í eitthvað persónulegt. Yfir í það sem við metum mikils. Það sem við elskum. Það sem okkur finnst vera við sjálf.
Það er dýpri merking þess að Venus sé pláneta gildanna. Hún stendur fyrir það sem skiptir okkur nógu miklu máli til að móta val okkar. Það sem gefur okkur tilfinninguna: já, þetta er ég og þetta er lífið sem ég vil lifa.
HVORKI MERKJAVARAN NÉ NUDDIÐ
Það er ekki merkjavaran sem gleður Venus. Ekki heldur nuddið. Dekurdagur í heilsulind gerir ekki gæfumuninn fyrir Venus. Ekki heldur kyrrðardagar fyrir konur, ef við komum heim og förum beint aftur að lifa lífi sem okkur finnst ekki vera okkar eigið.
Það sem nærir Venus er tilfinningin fyrir því að við
lifum í sönnu samræmi við það sem við erum.
Að við dveljum nógu lengi með tilfinningum okkar til að skilja hvað þær eru að segja okkur – og tökum ákvarðanir sem tjá þann sannleika. Ef við þráum nánd, getum við þá tjáð þá löngun í stað þess að prófa hvort einhver eltir okkur þegar við drögum okkur í hlé?
Já – Venus stendur fyrir sjálfsvirði, en sjálfsvirði snýst ekki um að róa sig og hugga. Spurning Venusar er hvort við séum trú sjálfum okkur, ekki hvort okkur líði notalega með okkur sjálf.
Ef við segjum við okkur sjálf „mér er alveg sama“ þegar okkur er alls ekki sama, erum við ekki að heiðra Venus innra með okkur. Ef við viljum að aðrir sjái okkur en látum eins og við þurfum ekki á neinum að halda, erum við ekki að heiðra Venus innra með okkur.
Henni er umhugað um að við séum trú sjálfum okkur. Að við þekkjum það sem gerir okkur að okkur – og lifum í samræmi við þann sannleika. En hvernig þekkjum við hann? Við finnum hann ekki í samþykki annarra og getum ekki beðið eftir að einhver annar staðfesti hann áður en við treystum honum. Við þurfum að sitja nógu lengi með sjálfum okkur til að sjá hver við erum, handan þess sem við höfum lært að vera fyrir aðra.
MÓÐA Á SPEGLINUM
Þetta er innri vinna. Tákn Venusar er spegillinn, en spegill Venusar snýst ekki um hégóma. Hann er ekki þarna til að segja okkur hvort við séum eftirsóknarverð eða verðug ástar. Hann er þarna til að sýna okkur okkur sjálf.
Það er ekki auðvelt. Alla ævi höfum við safnað lögum af innrætingu og mótun sem hafa sett móðu á spegilinn. Við horfum í hann en sjáum ekki lengur okkar eigin spegilmynd – aðeins brenglaða mynd sem við erum farin að trúa að sé við.
Ferðalagið að hjartanu – ferðalagið að okkur sjálfum – snýst um að fjarlægja hvert lagið á fætur öðru af því sem er ekki satt og hreinsa spegilinn, svo eftir standi sannleikurinn.
SÍÐASTA HRINGRÁS VENUSAR Í SPORÐDREKANUM
Þegar ný hringrás Venusar hefst um miðbik aftur á bak ferlisins, þann 23. október á 0 gráðum í Sporðdrekanum, verður löngunin til að afhjúpa þennan sannleika sterkari en nokkru sinni fyrr.
Þetta eru 0 gráður í Sporðdrekanum og síðasta hringrás Venusar í Sporðdrekanum á okkar æviskeiði. Við finnum hungur í að komast til botns í málunum. Að finna sannleikann og ekkert annað.
Jafnvel þrjóskasti hluti okkar gæti loksins viðurkennt að það sem við höfum reynt að láta ganga upp með því að afneita því sem við finnum að virkar ekki lengur. Og við áttum okkur á því að ef við höldum áfram að gera það sem við höfum verið að gera, erum við bara að blekkja okkur sjálf.
Heimild: Astro Butterfly
Þýðing: Guðrún Bergmann
Myndir: Shutterstock.com
ÞÚ GETUR PANTAÐ ÞÉR STJÖRNUKORT SEM HJÁLPAR ÞÉR AÐ SKILJA HVAÐA ÁHRIF ÞESSAR AFSTÖÐUR ERU LÍKLEGAR TIL AÐ HAFA Í ÞÍNU LÍFI – MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Fleiri greinar um Venus og Sporðdrekann:
OKTÓBER 2026 – STÖNDUM MEÐ OKKUR SJÁLFUM
VENUS Á FERÐ AFTUR Á BAK Í SPORÐDREKANUM
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR
