FULLT TUNGL OG TUNGLMYRKVI
Aðfaranótt 28. ágúst 2026, nánar tiltekið klukkan 04:18 að staðartíma í Reykjavík varð Tunglið fullt með Tunglmyrkva á fjórum gráðum í Fiskum. Á vissan hátt er þetta annað stigið í myrkvatímibili ágústmánaðar, sem hófst með Sólmyrkvanum í Ljóni, sem sást best hér á landi þann 12. ágúst síðastliðinn.
HVERT STEFNIR?
Hvað sem fór af stað við Sólmyrkvann fyrir tveimur vikum síðan fer nú að gefa okkur vísbendingu um hvert stefnir.
Ef Sólmyrkvinn – sem varð við Suðurnóðuna (fortíð okkar sem heildar) – snerist um að sleppa tökum á þeirri sjálfsmynd og þeim skilgreiningum sem þjóna okkur ekki lengur, snýst þessi Tunglmyrkvi – sem er við Norðurnóðuna (framtíð okkar sem heildar) um að stíga inn í eitthvað nýtt.
Sólmyrkvinn myndaði 120 gráðu samhljóma afstöðu við Satúrnus – svo Satúrnus veitti okkur lið með því að halda í hönd okkar og gefa breytingunum ákveðna umgjörð.
Tunglmyrkvinn á fjórðu gráðu í Fiskum myndar hins vegar 90 gráðu spennuafstöðu við Úranus í Tvíburum og 120 gráðu samhljóma afstöðu við Mars í Krabba. Þessum afstöðum fylgir allt önnur orka. Hún er óvænt, óstöðug og og getur ýtt okkur skyndilega út af gömlu brautinni og út í aðgerðir.
Við Tunglmyrkvann verður ekki lengur hægt að horfa framhjá einhverju sem hefur hingað til verið óljóst, óvíst eða enn í mótun. Við kunnum því að segja:
„Ó – ER ÞETTA sem sagt leiðin sem lífið er í raun að leiða mig inná.“
SPENNUAFSTAÐA VIÐ ÚRANUS
Við Tunglmyrkvann í Fiskum verða afleiðingar þess sem fór af stað við Sólmyrkvann sýnilegar (fullt Tungl) – en í óvæntri mynd (spennuafstaða við Úranus).
Það sem einkennir þennan myrkva hvað sterkast er nákvæm 90 gráðu spennuafstaða hans við Úranus í Tvíburum og nákvæm 180 gráðu spennuandstaða við Merkúr í Meyju – og Sólina, sem er eins og alltaf beint á móti Tungli þegar það er fullt.
Þessari afstöðu fylgja ekki aðeins „óvæntir atburðir“ – heldur rýfur hún gamlar taugatengingar.
Eitthvað sem við höfðum ekki gert ráð fyrir – upplýsingar, innsýn eða skilningur sem breytir allri jöfnunni – getur gjörbreytt sjónarhorni okkar og komið okkur af stað í átt sem við sáum einfaldlega ekki fyrir.
Eða ef við sáum hana fyrir, gæti hún þróast mun hraðar eða á allt annan hátt en við höfðum nokkru sinni ímyndað okkur.
Og það er eitthvað við það hvernig Úranus raskar venjulegri skynjun okkar á veruleikanum sem talar beint inn í eðli Fiskanna: Viljann til að fara handan við vissu, stjórn og það sem hinn röklegi hugur getur staðfest.
AÐ GEFA SIG LÍFINU Á VALD
Því þegar öllu er á botninn hvolft er þetta myrkvi í Fiskunum – og Fiskarnir snúast um að gefa sig lífinu á vald. Hið áhugaverða er líka að Tunglið er í samstöðu við dvergplánetuna GongGong í áttunda húsi kortsins fyrir Reykjavík. GongGong opnar fyrir andlegt næmi okkar og innsæi og þar sem Tunglið og GongGong eru í Fiskum megum við eigum von á að skynja og skilja hluti betur – hluti sem hafa hingað til verið okkur huldir.
Áttunda húsið er dularfulli hluti kortsins sem stjórnar fæðingum, dauða, kynlífi, umbreytingum, hinu dulda, samruna í orkuflæði og djúpum tilfinningalegum samböndum eða samkomulagi. Áttunda húsið stjórnar líka eigum annara og peningum, eins og fasteignum, erfðum, fjárfestingum o.s.frv. Húsinu er stjórnað af SPORÐDREKANUM.
Sjá nánar um hús stjörnukortann og merkingu þeirra í greininni TÓLF HÚS STJÖRNUKORTANNA.
TUNGLMYRKVI Í FISKUM – AÐ TAKA ÁHÆTTUNA
Að gefa sig á vald þýðir ekki einfaldlega að treysta því besta og taka áhættuna.
Við getum í raun ekki „gefið okkur á vald“ einhverju sem er öruggt. Þegar við vitum hver niðurstaðan verður – eða getum að minnsta kosti séð hana fyrir – er engin raunveruleg áhætta, og þar af leiðandi engin raunveruleg eftirgjöf eða eftirgjöf á stjórnun.
Að gefa sig á vald snýst heldur ekki um þá trú að alheimurinn styðji við bakið á okkur.
Að gefa sig á vald snýst um að vera tilbúin/n til að stíga inn í hið óþekkta án nokkurrar vissu. Það er eins og að stökkva fram af bjargi eða stíga út í tómið þegar ekkert er vitað um það sem við tekur hinum megin.
Við Tunglmyrkvann í Fiskum verður okkur boðið að stökkva.
Þetta er Norðurnóðumyrkvi – og það er einmitt það sem myrkvar við Norðurnóðuna gera – þeir ýta okkur út fyrir þægindarammann og inn í hið óþekkta.
TUNGLMYRKVI Í FISKUM – HVAÐ SEM Á DYNUR
Níutíu gráðu spennuafstaða Úranusar við myrkvann rýfur gömlu hnitin og viðmiðin.
Og þegar þau hnit sem við höfum vanist að styðjast við hverfa, kviknar eitthvað innra með okkur – sá hluti sem vaknar til lífsins, þegar hin satúrníska leið til að lifa af, með verkfærum sínum, takmörkunum og reglum, dugar ekki lengur.
Tunglmyrkvi í Fiskum myndar einnig hundrað og tuttugu gráðu samhljóma afstöðu við Mars í Krabbanum. Án flæðis á milli Tunglsins og Mars í þessum vatnsmerkjum gæti orka Úranusar og Merkúrs orðið óreiðukennd og óáþreifanleg.
Sem betur fer gefur Mars þessari opinberun farveg. Röskun skapar hreyfingu. Tækifæri birtast og við tökum ákvörðun á staðnum. Ef það er eitthvað sem við getum treyst á varðandi þennan myrkva, þá er það hraðinn: hvað sem gerist mun gerast hratt.
Það er ákveðin bráðatilfinning til staðar – sem er eðlislæg Tunglmyrkvum – og hún nær jafnvel út fyrir áhrif Úranusar og Mars.
TUNGLMYRKVAR ERU HRAÐVIRKIR
Tunglmyrkvar eru í eðli sínu tengdir atburðum sem gerast hratt. Fullt Tungl er hulið af skugga Jarðar. Tunglið dökknar og verður síðan aftur að fullu upplýst á örfáum klukkustundum.
Það sem myndi venjulega þróast smám saman yfir 29,5 daga hringrás Tunglsins gerist nú innan örfárra klukkustunda.
Það þýðir að áþreifanlegar aðstæður – hlutir sem gerast fyrir allra augum og í hinum ytri veruleika (Jörðin varpar skugga sínum á Tunglið) – gera það ómögulegt að sitja hjá og gera ekkert.
Hvað sem á dynur verðum við að breyta um stefnu.
Og það verður ekkert kort, engar leiðbeiningar og engin trygging fyrir því að ef við fylgjum skrefum A, B og C komumst við örugglega á áfangastað D.
Þess í stað verða aðstæðurnar sjálfar að leiðsögukerfi okkar. Ein hurð lokast, önnur opnast. Upplýsingar berast og ekki er lengur hægt að fresta ákvörðun.
Við vitum kannski ekki hvert allt þetta leiðir okkur. En eitt er víst: það er ekki lengur möguleiki á að halda kyrru fyrir þar sem við erum.
© Guðrún Bergmann
EF ÞÚ ÁTT EKKI þitt eigið persónulega stjörnukort
GERTURÐU PANTAÐ ÞÉR KORT HÉR! – Kortin eru á tilboðið til 6. Sept.
Heimild: Greinin byggist að hluta á þýðingu á grein af Astro Butterfly.com, ásamt ýmsum öðrum upplýsingum
Kort: Kortið er gert fyrir Reykjavík og miðast við þann tíma sem Tunglið verður fullt.
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR
