VERNDAÐU SJÓNINA

VERNDAÐU SJÓNINA

Almennt gerir fólk sér ekki grein fyrir því að það eru til ýmsar leiðir til að vernda sjónina, enda ekki langt síðan bætiefni sem styrkja augun og augnsvæðið sérstaklega fóru að koma á markað. Það er oft ekki fyrr en sjónin fer að skerðast sem við förum að huga að því hvað hægt sé að gera til að styrkja hana og örva á ný.

BÆTIEFNI FYRIR SJÓNINA

Eitt af þeim bætiefnum sem er styrkjandi fyrir sjónina er MacuGuard frá Life Extension. Í því eru næringarefni eins og lútein og astaxanthin, sem styrkja augnheilsuna, svo og zeaxanthin, meso-zeaxanthin, saffron og fleiri efni sem veita augum alhliða stuðning.

Annað bætiefni sem styrkir sjónina er melatónín. Melatonínið frá Life Extension er í forðatöflu sem losar melatónínið út jafnt yfir sex klukkustundir. Það hefur reynst mér mjög vel að taka þessi bætiefni inn samhliða, en mikilvægt er að taka melatónínið inn svona hálftíma fyrir svefn.

ASTAXANTHIN STYRKIR AUGUN

Ég hef áður skrifað um góða eiginleika astaxanthins, en þá sérstakleg verið með fókus á húðina, en rannsóknir sýna að það er líka að gera góða hluti fyrir augun. Astaxanthin er náttúrulega rautt karótenóíð litarefni sem tilheyrir fjölskyldu xanthophylls og er venjulega að finna í sjávarumhverfi, sérstaklega í örþörungum og sjávarfangi eins og laxfiskum, rækjum og humri.

Rannsóknir hafa sýnt að vegna einstakrar sameindabyggingar hefur astaxanthin nokkra mikilvæga líffræðilega eiginleika, sem aðallega koma fram í sterkum andoxunarefnum, bólgueyðandi áhrifum og vernd gegn frumudauða. Rannsóknirnar benda til þess að astaxantín sé áhrifaríkt til að koma í veg fyrir og meðhöndla ákveðna augnsjúkdóma, allt frá fremri hluta augans, að aftari hluta þess.

Karótínóðíðin í astaxanthin virka vel á sjúkdóma í sjónhimnu, augnyfirborðssjúkdóma, bólgur í æðahjúp augna og augasteinsský, eins og komið hefur fram í rannnsóknum bæði á mönnum og dýrum. Astaxanthin virðist búa yfir getu til að endurmóta efnaskiptaferla og endurheimta í kjölfarið frumujafnvægi í augum. Önnur efni í MacuGuard styðja svo enn frekar við þessa ferla.

MELATÓNÍN ER GOTT FYRIR AUGUN

Þó nokkur fjöldi rannsókna hafa gefið til kynna að melatónínmyndun eigi sér stað í sjónhimnu flestra hryggdýra, þar á meðal spendýra. Lífmyndun melatóníns í sjónhimnu og aðferðirnar sem taka þátt í stjórnun þessa ferlis hafa verið mikið rannsökuð. Dægurklukkur staðsettar í ljósviðtökum og taugafrumum í sjónhimnu stjórna myndun melatóníns í auganu.

Ljósnemar, dópamínvirkar taugafrumur og láréttar frumur í sjónhimnu, hornhimnuþekju og ystu himnu augans hafa allir melatónínviðtaka, sem gefur til kynna víðtæka augnvirkni melatóníns. Þar að auki er melatónín áhrifaríkt andoxunarefni sem dregur úr sindurefnum og stjórnar nokkrum andoxunarensímum.

Melatónín hefur einnig sterka virkni á æðahjúp augna, jafnvel meðan á blóðþurrð stendur. Frumuverndandi eiginleikar melatóníns geta leitt til hagnýtra áhrifa við meðhöndlun augnsjúkdóma, eins og gláku og aldurstengdrar hrörnunar í augnbotnum.

Neytendaupplýsingar: Þú færð MacuGuard og Melatonin frá Life Extension í versluninni Betri Dagar, Urriðaholtsstræti 24, Garðabæ – eða á vefsíðunni www.betridagar.is – Nýttu þér 15% afslátt út á afsláttarkóðann gb23 – hvort sem er í verslun eða á vefsíðu.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.

Þér er velkomið að skrá þig á PÓSTLISTANN minn til að fá reglulega sendar greinar um sjálfsrækt, andleg málefni, stjörnuspeki og náttúrulegar leiðir til að styrkja heilsuna.

Myndir: Af vefsíðu Betri daga – CanStockPhoto.com/dolgachov 

Heimildir:

https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC7281326/

https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/17266777/

 

 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN