FULLT TUNGL Í MEYJU

FULLT TUNGL Í MEYJU

Þótt meginefni þessara skýringa fjalli um orkuna í kringum Tunglið sem verður fullt þann 24. febrúar næstkomandi, bendir breski stjörnuspekingurinn Pam Gregory okkur á hversu mikil og umbreytandi áhrif fylgdu nýja Tunglinu í Vatnsbera sem reis þann 9. febrúar.

Það Tungl var í 90 gráðu spennuafstöðu við Úranus sem stjórnar Vatnsberanum. Þess vegna fylgdi því sterk Úranísk Vatnsberaorka sem tengd er alls kyns öfgum í veðri, óróa í Jörðinni  eins og eldgosum og jarðskjálftum, svo og rafmagnsleysi og uppreisnarorku og mótmælum (sjá Spánn, Frakkland, Ameríka og fleiri lönd).

RIGNING OG AURSKRIÐUR

Fyrir utan eldsumbrot og jarðhræringar sem urðu hér á landi, varð gríðarlegur rigningarstormur í Kaliforníu og um það bil 475 aurskriður féllu rétt í kringum Los Angeles svæðið. Það var metúrkoma og fólk var flutt á brott frá heimilum sínum. Talið er að fjórir hafi látist og um milljón manns voru án rafmagns svo það var mjög öfgafullt. Allir þessir atburðir eru mjög tengdir því að Úranus var í 90 gráðu spennuafstöðu við nýja Tunglið fyrr í þessum mánuði. Við megum því áfram gera ráð fyrir meira af þessum öfgum í veðri, skjálftavirkni og mjög rokgjörnu og óstöðugu jarðsegulmagni út árið.

SATÚRNUS Í FISKUM OG GONGGONG

Auk þessarar afstöðu Sólar og Úranusar, var dvergplánetan GongGong í samstöðu við Satúrnus í Fiskum og ef eitthvað merki er tengt flóðum þá eru það Fiskarnir, sem stjórnað er af Neptúnusi. Satúrnus hefur að gera með áskoranir eða erfiðleika í því merki sem hann er staddur og GongGong er táknrænn fyrir hinn kínverska vatnaguð sem líka tengist flóðum. GongGong var í nákvæmri samstöðu við Satúrnus  á nýja Tunglinu í Vatnsbera. Því er mjög sérstakt að sjá hvernig þetta birtist í raun og veru í lífinu í kringum okkur.

TUNGL Í LJÓNI OG MÓTMÆLI

Hitt sem sem átti sér stað í kringum síðasta fulla Tungl sem var í Ljóni, þar sem líka var um sterka Vatnsberaorku að ræða – er að við sáum bændur mótmæla af krafti í ótal löndum í Evrópu, meðal annars í Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Grikklandi, Þýskaland, Rúmeníu, Pólland og Belgíu. Þeir  mættu á dráttarvélum sínum og og réðust inn í þinghús Evrópusambandsins. Sögðu að nú væri nóg komið og að þeir ætluðu ekki lengur að fara eftir þessum öfgaráðstöfunum sem ES er að leggja á þá, heldur taka landið sitt aftur og neita að farga nautgripum sínum.  Í raun voru mótmæli þeirra svo táknræn fyrir orkuna í kringum fullt Tungl í Ljóni.

Við sjáum svo skýrt hvað Úranus í Nauti er að gera, því byltingin snýst meðal annars um naugripi. Þessar byltingar eru svo Úranískar, því þær snúast um frelsi og mannréttindi í mjög víðum skilningi. Þær snúast líka um matvælaframleiðslu og bændur hafa bent á að ef þeir hafi ekki land verði enginn matur framleiddur.  

ÁR VITUNDARVAKNINGAR

Eins og áður hefur komið fram verður þetta mjög stórt ár Vitundarvakningar og byltinga, því sú orka er hluti af því að Plútó er kominn inn í Vatnsberann.

Þetta hægfara upphaf á breytingunni og tilfærslunni á kraftinum til fólksins er hvorki línulegt né þægilegt, og það verður ekki fært fólki á silfurfati. Uppstokkunin er bæði tengd Úranusi í Nautinu og Plútó í Vatnsbera og í þriðju víddinni er þetta algerlega óskipulagt. Við horfum á heiminn, á stríðin, byltingarnar og daglegar áskoranir sem fólk er að ganga í gegnum. Tilfinningin minnir helst á yfirþyrfmandi ringulreið í þriðju víddinni því það er svo margt sem er misvísandi.

Þess vegna þurfum við að hefja okkur upp fyrir ringulreiðina, verða ofurhetjur og halda innri ró og senda þá tilfinningu frá okkur. Halda hlutleysi okkar og stunda Hjartaöndun.

UPPREISN OG BYLTING Í AMERÍKU

Stjörnuspekingurinn Cathy Rose bendir á að í kortinu fyrir síðasta nýja Tungl í Vatnsbera fyrir Washingtin D.C. þar sem ríkisstjórn Bandaríkjanna situr, hafi Úranus pláneta uppreisnar og byltinga setið nákvæmlega á miðhimni kortsins, en hann er tengdur ríkisstjórn og forystu landsins. Það bendir til áfalls eða einhvers óvænts, eða sannleika sem er líklegur til að koma í ljós á þessu fulla Tungli.

Það gæti ýtt af stað stærri hringrás, ekki aðeins vegna endurkomu Plútós á sama stað og Plútó er í korti Bandaríkjanna – heldur vegna þess að nú er Plútó kominn inn í Vatnsberann. Hann er sérstaklega áberandi í korti ríkjasambandsins því hann hefur ekki verið á þessum stað í korti þess í 240 ár, svo hann er að hrinda af stað nýrri og mun umfangsmeiri hringrás.

CHIRON OG NORÐURNÓÐAN

Þann 19. febrúar var Chiron, sem þekktur er sem heilarinn mikli, í nákvæmri samstöðu við  Norðurnóðuna á 16 gráðum og 45 mínútum í Hrút. Þessi afstaða er í raun að gefa okkur innsýn í það sem gæti orðið stærra mál við Almyrkvann þann 8. apríl næstkomandi, vegna þess að Chiron verður á þeim Almyrkva í mjög þéttri samstöðu við Norðurnóðuna, en þetta verður stærsti myrkvi ársins. Í kringum þann 19. febrúar gætu því komið upp vandamálum í tengslum við einhver veikindi eða veikindi sem við erum þegar að takast á við, eða eitthvað tengt fórnarlambshlutanum í okkur, eitthvað tilfinningalegt eða líkamlegt áfall sem við höfum orðið fyrir og ekki unnið úr.

Annar þáttur í þessu er tengdur erkitýpu Chirons, en hún snýst um að vera þessi óvenjulegi, sem stundum er utanveltu og passar ekki inn í hópinn, líkt og erkitýpan af Úranusi er. Margir hafa undanfarin ár haft tilfinningu fyrir því að vera utanveltu og ekki falla inn í hópinn og því verið útilokaðir í jaðri samfélagsins.

Það er að byrja að breytast nú með þessari sterki Vatnsberaorku, sem stjórnað er af Úranusi. Við ætlum því að vera stolt af sérkennum okkar, af því að hafa verið óvanalegir frumkvöðlar sem halda fast í sannleika sinn og standa sterk í eigin fullveldi. Allt er þettta tengt ekki bara Úranusi og Vatnsberaorkunni, heldur líka þessari samstöðu Chirons við Norðurnóðuna, sem verður mjög sterk við Almyrkvann á Sólu.

FULLT TUNGL Í MEYJU

Tunglið verður fullt þann 24. febrúar kl. 12:30 hér á landi. Þegar Tunglið er fullt eru Sól og Tungl alltaf í andstöðu við hvort annað, þannig að Sólin er á 5 gráðum í Fiskum, á móti Tunglinu á 5 gráðum í Meyju.

Meyjar- og Fiskaöxullinn er mjög tengdur heilsu, sem er eitt af stóru þemunum á þessu fulla Tungli, meðal annars heilsu þarmanna og þeirrar örveruflóru sem þar þarf að vera, svo allt í líkamanum gangi  eins og klukka. Fiskarnir eru tengdir ónæmiskerfi okkar, blóði okkar og heilsu í þeim skilningi svo alltaf þegar öxull er á milli Meyjar og Fiskanna, er það eitt af hugsanlega stór þemunum sem upp geta komið.

Hversu heilbrigð erum við og hvað er það í heilsufari okkar sem við þurfum að koma í lag? Það gætu líka orðið einhverjar uppljóstranir eða byltingar sem gætu litið dagsins ljós. Vegna tengsla Tungls (180 gráðu andstaða) og Sólar (samstaða) við Satúrnus gætu líka verið settar fleiri reglur og reglugerðir í tengslum við heilsu, svo það verður áhugavert að sjá – svo og hvað við þurfum að gera til að leiðrétta heilsubresti okkar og koma jafnvægi á líkamann á ný.

TUNGLIÐ OG JÚPITER

Tunglið í Meyju er í 120 gráðu samhljóma afstöðu við Júpiter í Nauti, en sú afstaða er mjög jákvæð, því henni fylgja nýjar hugmyndir. Sól og Merkúr eru líka í samstöðu við Formalhaut, hina föstu Konunglegu stjörnu Persíu sem er á 3 gráðum í Fiskum. Hún hreyfist einungis um eina gráðu á 72 ára fresti, en hún mun hjálpa til við að veita okkur hærra andlegt sjónarhorn á það sem er þróast í heiminum á þessum tíma, meðal annars með því að við stundum Hjartaöndun og horfum á atburði í kringum okkur frá syllu arnarins.

Það geta orðið fleiri flóð í kringum þetta fulla Tungl vegna þess að Sólin er í Fiskum, upp á gráðu í samstöðu við GongGong, hinn Kínverska Guð vatna og flóða, en líka áveitu vatns. Þar sem Tunglið er í Meyju og tengt örverum, gæti afstaðan mögulega tengst dreifingu á einhvers konar veirum, en við skulum vona að svo verði ekki. Því betri sem heilsa okkar er og því náttúrulegra sem ástandið á örverum í þörmum okkar er, þeim mun öflugra er ónæmiskerfi okkar.

SATÚRNUS Í FISKUM

Skoðið endilega hvar fyrstu gráðurnar í Fiskunum eru í ykkar eigin fæðingarkortum, vegna þess að Satúrnus fór inn í Fiskana fyrir um ári síðan eða í byrjun mars 2023. Hann er einungis kominn að 7 gráðum í Fiskum, þar sem hann hreyfðist mjög hægt í fyrra.

Skoðið í hvaða húsi Fiskarnir eru í kortinu ykkar, því það gæti verið eitthvað sem þið þurfið að taka ábyrgði á, eða fara í gegnum eitthvað vel og vandlega, hugsanlega einhverja samninga, eða vinna okkur í gegnum eitthvað áfall sem hefur setið á hakanum að gera. Satúrnus hefur hægt aðeins á okkur og gefið okkur enn meiri fókus til að ljúka þessum verkefnum, en mun fara að hraða sér frá og með þessu Tungli og fara frá 7 gráðum og upp í 19 gráður í Fiskum á þessu ári – svo Satúrnus gæti verið að hafa áhrif á meira en eitt hús í kortunum ykkar.

STÍLFUR Í FLUTNINGUM

En aðeins meira um Satúrnus í Fiskum sem kemur til með að vera í því merki fram í febrúar 2026. Hann er í hverju merki fyrir sig í um það bil tvö og hálft ár, en núna gæti orka hans tengst einhvers konar flutningum eða viðskiptum á sjó, vegna þess að Merkúr verður í samstöðu við Satúrnus undir lok mánaðarins, eða þann 27. og 28. febrúar. Merkúr er pláneta sem er mjög tengd viðskiptum og flutningum og þar sem báðar plánetur eru í Fiskunum, gætu orðið einhverjar stíflur á flutningum, ferðasamgöngum eða viðskiptaleiðum, sérstaklega í kringum þetta fulla Tungl.

Myndir: Stjörnukort fyrir fullt Tungl í Reykjavík – Shutterstock

Heimildir: Útdráttur úr skýringum breska stjörnuspekingsins Pam Gregory, sem finna má í heild sinni HÉR!

 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN