ER LOSUNIN Í LAGI?
Í síðustu grein minni fjallaði ég um meltinguna – MUNDU EFTIR MELTINGUNNI – og hvað hægt er að gera til að tryggja gott niðurbrot fæðunnar sem neytt er meðan á þeim hátíðarhöldum sem framundan eru stendur.
Í dag er ég með nokkur ráð varðandi losunina. Meltingarvegurinn er um 7 metra langur og í kínverskri læknisfræði er fjallað um mikilvægi þess að þegar eitthvað fer inn, fari eitthvað annað út. Sé ekki um daglega losun að ræða, helst tvisvar á sólarhring safnast úrgangurinn upp í ristli og þörmum þar sem hann getur valdið sveppagróðri og alls konar óveiru.
MELTINGARHREINSUN
Gert er ráð fyrir því að nota megi Meltingarhreinsunarhylkin ef um harðlífi eða stíflur í þörmum er að ræða. Þá er ráðlagt að taka inn 5 hylki tvisvar á dag í sjö daga. Hins vegar má nota 2 hylki tvisvar á dag í lengri tíma í einu, ef hægðir eru tregar og skila sér ekki daglega.
Í Meltingarhreinsunarhylkjunum eru viðarkol og ýmsar jurtir sem eru bakteríudrepandi og stuðla að því að þarmar og ristill séu ekki að safna úrgangi.
HÖRFRÆSOLÍA
Annað sem nota má til að styðja við reglulega hægðalosun um hátíðarnar er Flax Oil en það er hörfræsolía. Hörfræsolían er bæði mýkjandi og styrkjandi fyrir slímhúðina í meltingarveginum, svo og losandi. Því er gott að taka inn til dæmis 1-2 matskeiðar fyrir svefn á kvöldin til að tryggja góða losun næsta morgun.
Tími ristilsins er frá kl. fimm til sjö á morgnana og því mikilvægt að úrgangur líkamans skili sér út fljótlega eftir að farið er á fætur á morgnana. Það er alveg pottþétt að líkamanum mun líka líða mun betur ef losun er regluleg.
Neytendaupplýsingar: Meltingarhreinsun með eða án trefja og Flax Oil hörfræsolían fást í versluninni Mamma Veit Best á horni Auðbrekku og Dalbrekku í Kópavogi.
Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.
Þér er velkomið að skrá þig á PÓSTLISTANN minn til að fá reglulega sendar greinar um sjálfsrækt, andleg málefni, stjörnuspeki og náttúrulegar leiðir til að styrkja heilsuna.
Myndir: CanStockPhoto / nito og af vefsíðu Mamma Veit Best
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR


