- Ertu að takast á við bólgusjúkdóma, bjúg eða eilífa verki í líkamanum? Ertu með meltingarvandamál, kviðverki eða hægðir svona tvisvar til þrisvar í viku? Hefurðu verið greind/-ur með sjálfsónæmissjúkdóm eða heldurðu að þú gætir verið með glútenóþol?
- Nýjasta bók mín HREINN LÍFSSTÍLL fjallar um leiðir til að koma líkamanum í jafnvægi á ný. Hún kemur út í ágúst, en fram að þeim tíma er hægt að kaupa hana á forsölutilboði, nú með 35% afslætti til 16. júlí. Fullt verð er 5.990 kr. – Afsláttarverð er 3.593 kr. – SMELLTU HÉR til að tryggja þér eintak.
- Líkt og með HREINT Í MATINN, bókina mína sem kom út í fyrra og er nánast uppseld, læt ég einungis prenta 1500 eintök.
________________________________________________________________________________
UM HVAÐ FJALLAR HREINN LÍFSSTÍLL?
Í þessari 128 síðna bók fjalla ég um helsta heilsuvandamál nútímans sem tengist lekum þörmum – og hvaða áhrif lekir þarmar hafa á önnur kerfi líkamans, svo og hvernig má laga það. Í bókinni er að finna upplýsingar um:
- Bólgusjúkdóma og hversu mikilvægt er að lægja bólgur í líkamanum áður en þær verða að sjálfsónæmissjúkdómum.
- Glútennæmi og glútenóþol og hvaða áhrif það hefur, í gegnum leka þarma, á heilsu líkamans, jafnvel á heilann, en nýjustu rannsóknir sýna að það getur verið orsök alvarlegra sjúkdóma eins og Alzheimer’s.
- Sjálfsmat á því hvort þú sért með glútennæmi eða glútenóþol, með því að svara spurningarlista frá Celiac Disease Foundation í Bandaríkjunum.
- Mikilvægi vatnsdrykkju, bætiefnin sem eru okkur nauðsynlegri en önnur og margt fleira.
- Starfssemi lifrar og mikilvægi hennar í kafla sem skrifaður er af Matthildi Þorláksdóttur náttúrulækni.
- Að auki eru í bókinni glúten-, mjólkur- og sykurlausir fisk-, kjúklinga-, lambakjöts- og grænmetisréttir fyrir 3 vikur + nokkrar uppskriftir að glútenlausu meðlæti með kaffinu.
Í HREINN LÍFSSTÍLL er að finna fullt af upplýsingum sem hjálpa þér að breyta og bæta heilsuna með nýjum lífsstíl. Bataleiðirnar felast ekki í einhverri undrapillu, heldur því að taka ábyrgð á eigin heilsu, áður en hún brestur og ákveða að hún sé svo mikils virði að þú sért tilbúin/-n til að gera breytingar á lífsstílnum til að bæta og vernda hana.
Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR
