ÞETTA ENDAR MEÐ ÞÉR

ÞETTA ENDAR MEÐ ÞÉR

Síðasti Venusarstjörnupunkturinn í Sporðdrekanum – og nýtt upphaf

Dagana 23.–24. október var Venus, sem nú er á ferð aftur á bak, í samstöðu við Sól á 0 gráðu í Sporðdrekanum – og þar með hófst ný hringrás Venusar.

Þessi samstaða við Sólina er miðpunkturinn á ferð Venusar aftur á bak og augnablikið þegar hún fer úr því að vera kvöldstjarna yfir í að verða morgunstjarna. Þetta er jafnframt síðasta hringrás Venusar sem hefst í Sporðdrekanum í mjög langan tíma. Dans Venusar á himninum fylgir átta ára takti – hún fer aftur á bak í sama merki á átta ára fresti, í um það bil 100 ár.

Venus hóf þetta ferli í Sporðdrekannum árið 1930 og síðan þá hefur hún, á átta ára fresti, snúið aftur til að mæta Sólinni í Sporðdrekanum – í hvert sinn nokkrum gráðum framar í merkinu.

Hringrás Venusar sem hófst 23.–24. október 2026 er sú síðasta. Venus var kominn á 0 gráðuna í Sporðdrekanum. Sögunni sem hefur verið að fléttast í 100 ár er að ljúka.

SKÓLI HJARTANS

Sporðdrekinn hefur verið strangur skóli fyrir hjarta Venusar. Í Sporðdrekanum hefur Venus lært að halda kyrru fyrir og fara á dýptina. Hún hefur kynnst öllum dyggðum Sporðdrekans – trausti, dýpt og tryggð, en traustið, dýptin og tryggðin voru ekki auðfengin. Fyrir þeim hefur þurft að hafa.

Traustið ávannst í gegnum óttann.

Dýptin mótaðist af sterkri reynslu af ást – en líka af missi.

Tryggðin var þrautreynd með svikum.

Við getum einfaldlega ekki skilið hvað þessir hlutir þýða í raun ef við förum ekki í gegnum allt litróf reynslunnar?

Í þessi 100 ár hafa langömmur okkar, ömmur okkar, mæður okkar – og nú við – verið að læra í gegnum dyggðir Sporðdrekans.

Kannski hófst sá lærdómur þegar konur misstu menn sína og syni í stríði – og lærdómurinn var sá að missir væri gjaldið fyrir ástina. Þess vegna sá líkaminn til þess að sársaukinn gleymdist ekki.

Kannski hófst hann með erfiðleikum, þegar lítið var til – og skilaboðin voru: vertu sterk, haltu fast í það sem þú átt, eða fórnaðu því sem þig langar í fyrir öryggið.

Kannski hófst hann með ofbeldi og minningin fraus og hélst þannig árum og áratugum saman. Hún gekk áfram í þögn og viðvörunum, svo börnin myndu muna og kunna að verja sig.

EKKI BARA ÞINN ÓTTI

Ótti þinn er ekki (bara) þinn ótti. Hann er ótti foreldra þinna, afa og ömmu og langafa og langömmu.

Tilfinningin um að þú sért ekki nógu verðug/-ur er ekki (bara) þín – hún er djúp, óheiluð þrá eftir öryggi, alúð og vissunni um að þú skiptir nógu miklu máli til að einhver verði um kyrrt, eða einhver fórni einhverju fyrir þig.

Sorg þín er ekki (bara) þín sorg. Hún er sorg foreldra þinna, afa og ömmu og langafa og langömmu, frá þeim tíma þegar öruggara var að halda fast í hlutina og lifa af en að finna til.

Nú hefur þú unnið verkið. Allur þessir lærdómur Sporðdrekans hefur verið eimaður, Venusarstjörnupunkt eftir Venusarstjörnupunkt, þar til ekkert er eftir nema kjarninn sjálfur.

Ferðin um undirheimana hefur verið löng og myrk. Þar var enginn áttaviti, ekkert ljós til að vísa okkur veginn, bara meira og meira grafið. Þannig urðu til fleiri og fleiri lög af tilfinningum, sem fletta þarf ofan af til að standa augliti til auglitis við það sem við höfum grafið.

Og hér erum við – með Venus í hjarta Sólar (cazimi) á 0 gráðu í Sporðdrekanum, við allra síðasta Venusarstjörnupunktinn í Sporðdrekanum.

Allri þessari byrði lýkur núna. Þetta endar með þér.

ARFURINN SEM FYLGIR OKKUR

Það sem lærst hefur strikast ekki allt út. Við skiljum þetta ekki allt eftir og byrjum upp á nýtt. Það er ekki tilgangurinn.

Þessi 100 ára ferð um undirheimana var ekki til einskis. Við gengum ekki í gegnum allt þetta bara sem eitthvert „próf“ eða grimman brandara sem alheimurinn lék á okkur.

Rétt eins og mestu auðæfin liggja grafin djúpt í jörðu, höfum við fundið ýmislegt í djúpinu sem við getum nú tekið með okkur upp á yfirborðið: styrk tryggðarinnar, hugrekkið sem þarf til að treysta og dýpt tengsla sem þola sannleikann.

Móðir þín/faðir þinn, ömmur þínar/afar þínir og langömmur þínar/langafar þínir hafa allar borið hluta af þessari sögu svo þú kæmist þangað sem þú ert í dag – að sjálfum kjarnanum. Svo þú gætir fundið demantinn sem þeim entist ekki aldur til að sjá. Þau ruddu veginn svo þú gætir komist á þennan stað.

Og nú, með þennan umbreytta kjarna kærleikans úr Sporðdrekanum, getur þú tekið traustið, berskjöldunina, tryggðina og dýpt tengslanna með þér inn í létta loftið og ljósið í Voginni.

Eftir átta ár hefst ný 100 ára hringrás í Voginni og fjársjóðir Sporðdrekans munu finna sér farveg í skýrum samskiptum, jöfnum samböndum, í krafti frumkvæðisins (Vogin er kardínálmerki) og þeirri vissu að við erum hetjurnar í okkar eigin lífi.

Nú þegar við stöndum á þröskuldi núll gráðunnar, taktu þá gjöf Sporðdrekans með þér.

BREYTINGIN BYRJAR NEFNILEGA MEÐ ÞÉR!

Heimild: Þýtt og endursagt upp úr grein frá Astro Butterfly

Myndir: Shutterstock.com

FLEIRI GREINAR TENGDAR ÞESSU FERLI VENUSAR:

VENUS Í UNDIRHEIMUM

VENUS – SANNLEIKUR HJARTANS

VENUS Á FERÐ AFTUR Á BAK Í SPORÐDREKANUM

EF ÞÚ ÁTT EKKI STJÖNUKORT GETURÐU PANTAÐ ÞAÐ HÉR

Allir Sporðdrekar fá 20% afslátt út á kóðann „DREKI“ meðan Sólin er í Sporðdrekanum

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN