OKTÓBER 2026 – STÖNDUM MEÐ OKKUR SJÁLFUM

OKTÓBER 2026

– STÖNDUM MEÐ OKKUR SJÁLFUM 

– FYRRI HLUTI MÁNAÐARINS

Október þetta árið er svo sannarlega stór mánuður í stjörnuspekilega séð. Mikilvægasti atburðurinn er auðvitað ferð Venusar aftur á bak sem hófst þann 3. október. Venus er sú pláneta sem ver minnstum tíma á ferð aftur á bak – eða aðeins um 7% – svo þegar það gerist finnum við öll fyrir því.

Eins og fjörutíu daga ferli Venusar aftur á bak, með allri þeirri sjálfsskoðun og þeim vangaveltum sem því fylgja, sé ekki nóg, þá fer Merkúr líka aftur á bak í þessum mánuði.

MERKÚR OG VENUS

Merkúr myndar samstöðu við Venus aðeins örfáum dögum eftir að hún snýr við og fer aftur á bak. Þar með sáir hann fræjum þeirra spurninga sem við munum lifa með næstu vikurnar – um sambönd okkar, gildi okkar og hvað við raunverulega viljum.

Og við munum koma aftur og aftur að þessum spurningum, því síðar í mánuðinum fer Merkúr líka aftur á bak í Sporðdrekanum. Báðar pláneturnar munu dvelja óvenju lengi í Sporðdrekanum næstu mánuðina. Það segir sig því sjálft að það hús í kortinu þínu sem Sporðdrekinn stjórnar verður í brennidepli.

SAMBÖNDIN Í BRENNIDEPLI

En óháð húsunum virðist eitt þema ráða ríkjum í október: SAMBÖND. Venus, Mars og Plútó mynda hverja spennuafstöðuna á fætur annarri á meðan Sólin fer í gegnum Vogina og inn í Sporðdrekann, svo ef október hreyfir ekki við einhverju í samböndum þínum yrðu flestir stjörnuspekingar mjög hissa.

Október er krefjandi mánuður, fullur af spennuafstöðum sem koma við alla okkar viðkvæmustu bletti. Samkvæmt Astro Butterfly, sem hefur skrifað mánaðarlegar spár frá árinu 2016, segist hún ekki muna hvenær síðast hafi komið jafn spennuþrunginn mánuður.

ENGINN FLÓTTI LENGUR

Í stað hins venjulega „þetta á eftir að lagast“ eða „en það er samt von“ vill Alheimurinn kannski að við sitjum í raun og veru með óþægindunum í þessum mánuði – og GERUM EINFALDLEGA ÞAÐ SEM GERA ÞARF.

Það þýðir ekkert lengur að fara eins og köttur í kringum heitan graut. Breytingar eru erfiðar, og það sem við þurfum helst að gera er oft einmitt það sem við höfum lagt hvað mest á okkur til að komast hjá.

En skilaboðin eru skýr: hvað sem það er sem þú hefur streist á móti, frestað eða vonað að ytri aðstæður myndu leysa fyrir þig, þarf nú að takast á við það – í þessum mánuði.

Þrátt fyrir allt sem kemur fram í þessari grein, er gott að hafa í huga að stjörnuspeki er líkindaspá, svo kannski rennirðu bara í gegnum mánuðinn án nokkurra innri átaka – en kannski ekki.

VENUS FER AFTUR Á BAK

Þann 3. október 2026 stöðvaðist Venus á 8 gráðum í Sporðdreka til að breyta um stefnu og fara aftur á bak.

Venus verður á ferð aftur á bak til 14. nóvember, en þá stöðvast plánetan á 22 gráðum í Vog og fer beint fram á við á ný. Hún verður svo komin út úr skuggasvæði ferlisins – þegar hún fer aftur yfir 8. gráðu Sporðdrekans – þann 15. desember.

Þetta ferli Venusar aftur á bak skiptir sérstaklega miklu máli, því þetta er síðasta aftur á bak ferli Venusar þar sem nýr Venusarhringur hefst í Sporðdrekanum. Ef þú misstir af greininni minni um ferli Venusar aftur á bak – 40 daga í eyðimörkinni – geturðu lesið hana hér.

MARS Í ANDSTÖÐU VIÐ PLÚTÓ

Sama dag og Venus fer aftur á bak er Mars, á þriðju gráðu Ljónsins, í 180 gráðu spennuafstöðu við Plútó í Vatnsberanum. Samtímis myndar Venus T-spennuafstöðu við bæði Mars og Plútó.

T-spennuafstaða myndast þegar tvær plánetur eru í andstöðu hvor við aðra og sú þriðja er í níutíu gráðu spennuafstöðu við þær báðar. Sú þriðja verður þá eins konar þrýstipunktur allrar spennunnar.

Þetta er gríðarlega spennuþrungin afstaða, þar sem öll sú ólga sem kraumar á milli Mars og Plútós fær útrás í gegnum Venus. Það getur birst sem afdrifarík ákvörðun, tilfinningasprenging eða að okkur snúist skyndilega hugur…

… en hvaða mynd sem það tekur á sig, megum við búast við því að það sem er spennuþrungið í lífi okkar, og þar sem okkur finnst við hafa misst stjórnina, muni á endanum knýja okkur til að taka afstöðu. Við munum höggva á Gordíonshnútinn í eitt skipti fyrir öll.

Það verður samt áhugavert að sjá hvað gerist í framhaldinu. Venus breytir um stefnu sama dag, svo hvað sem við ákveðum gæti reynst vera aðeins upphafið að sögunni…

SÓL Í ANDSTÖÐU VIÐ SATÚRNUS

… en ákvarðanirnar sem bíða okkar verða ekki auðveldari við það að Sólin var þann 4. október, á 11 gráðum í Vog, í spennuandstöðu við Satúrnus í Hrútnum. Sjaldan er ein báran stök –  og þegar himinhvolfið lætur til sín taka, kemur það allt í einu.

Eina leiðin út er í gegn – og stundum þurfum við einmitt svona þrýsting til að ganga í raun og veru í erfiðu verkin.

Því sama hversu gott líf okkar er, þá er alltaf eitthvað sem við höfum ekki alveg náð að vinna úr, eða ekki tekist á við eins vel og við gætum. Þá þurfum við eitthvað af þessum krafti til að hrista það laust.

Nýtt Tungl í Vog – kortið miðast við Reykjavík.

NÝTT TUNGL Í VOG

Þann 10. október kviknar nýtt Tungl á 17 gráðum í Vog. Nýja Tunglið er á leið inn í sextíu gráðu samhljóma afstöðu við Júpíter, svo þar sjáum við fyrsta vonarneistann.
Stuðningurinn er enn til staðar og Alheimurinn vill minna okkur á að mitt í allri umbreytingunni er enn eitthvað sem heldur utan um okkur.

Það ætti þó ekki að draga athyglina frá þeirri erfiðu vinnu sem bíður okkar. Venus, sem stjórnar þessu nýja Tungli, er í nákvæmri níutíu gráðu spennuafstöðu við Mars. Það minnir okkur á að hvað sem nýja Tunglið býður okkur að hefja, þurfum við samt að berjast fyrir því.

PLÚTÓ FER BEINT FRAM Á VIÐ

Þann 15. október stöðvast Plútó á 3 gráðum í Vatnsbera til að breyta um stefnu og fara beint fram á við. Orkan verður vart öflugri en í kringum þessa afstöðu, vegna þess að Venus, á ferð aftur á bak, er á leið inn í níutíu gráðu spennuafstöðu við Plútó – sem einmitt núna, er kyrrstæður og margfalt öflugri en venjulega. Sú afstaða verður nákvæm þann 20. október.

Þetta er önnur lotan í sögu Venusar og Plútós. Gamlar sögur um traust, svik, ótta og berskjöldun fara aftur undir stækkunarglerið, og eitthvað innra með okkur brýst upp á yfirborðið.

Skýringar fyrir seinni hluta mánaðarins koma í næstu viku… Þú getur skráð þig á fréttabréfið mitt – fréttabréf – til að fá greinina senda beint til þín…

Heimild: Astro Butterfly

Þýðing: Guðrún Bergmann

VEIST ÞÚ HVAÐA PLÁNETUR ERU Í SPORÐDREKA HÚSINU ÞÍNU?

ÞÚ GETUR FUNDIÐ ÞAÐ ÚT Í GEGNUM STJÖRNUKORTIN MÍN.

VOGIRNAR FÁ 20% AFSLÁTT MEÐAN SÓLIN ER Í VOG – ÚT Á KÓÐANN „VOG“

 

 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN