17 LEIÐIR TIL AÐ ÖÐLAST INNRI FRIÐ
Við megum vænta mikils titrings í pólitík, í Jörðinni og samfélögum heims í þessum mánuði. Framundan eru kannski mestu breytingar sem við eigum eftir að ganga í gegnum á lífsleiðinni.
Þá er gott að vera í innra jafnvægi og halda innri ró sinni.
Eftirfarandi listi er settur saman af Alex Elle og ég rakst á hann á Facebook. Langaði að deila honum með ykkur, því á honum eru mörg hollráð.
HÆTTU ÞESSU TIL AÐ ÖÐLAST INNRI FRIÐ:
- Rífast við fólk
- Eyða orku í einhliða sambönd
- Taka of mikið að þér þegar þú hefur ekki orku í það
- Sætta þig við og afsaka eitraða hegðun annarra því það er þægilegra en að gera breytingar
- Leyfa fjölskyldumeðlimum með fíknir eða önnur vanhæfnis vandamál að stela gleði þinni
- Reyna að „laga“ fólk út frá „kærleiksríkri umönnun“
- Fórna mörkum þínum til að falla (óþægilega) að þörfum annarra
- Halda í takmarkandi sannfæringar um líf þitt, sjálfsmat og möguleika
- Þykjast vera hamingjusöm/-samur þegar þér líður illa
- Þegja og greina ekki frá þínum eigin þörfum
- Velta of mikið vöngum yfir fortíð þinni og því sem ekki er hægt að breyta
- Halda í fólk sem þú átt ekki samleið með lengur, vegna þess að þú hefur „lagt svo mikið í samskiptin“
- Að gera eins og hinir, því það er svo þægilegt
- Yfirsjást allt það góða í eigin lífi og bera líf þitt saman við líf annarra
- Fórna sjálfri/sjálfum þér, sannleika þínum og heildindum „til að passa í hópinn“
- Bíða eftir mati annarra á þér til að auka sjálfstraust þitt
- Reyna að breyta fólki sem er ákveðið í að breyta engu
Svo er alltaf hægt að ná sér í ókeypis MORGUNHUGLEIÐSLU á síðunni minni til að vinna að innri friði.
Ef þér fannst þessi listi áhugaverður, deildu honum þá endilega með öðrum.
Skráðu þig á PÓSTLISTANN til að fylgjast með greinaskrifum Guðrúnar
Mynd: DreamLand_Media
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR

