Nýjasta og jafnframt sextánda bók mín, HREINT Í MATINN, er komin til landsins. Vinnan núna er að taka hana af brettum og koma henni í kassa svo hægt sé að afgreiða hana til þeirra sem keyptu hana í forsölu og koma henni í dreifingu í verslanir.
Þeir sem keyptu bókina í forsölu geta nálgast hana næstu viku á skrifstofunni í Ármúla 29, 2. hæð – gengið inn vinstra megin við Þ. Þorgrímsson. Þegar upp á 2. hæð er komið er gengið til hægri og innst hægra megin í ganginum er mig að finna.
AFHENDINGARTÍMAR:
- Mánudaginn 31. okt. – frá 10-12:30
- Þriðjudaginn 1. nóv. – frá 15-18:00
- Miðvikudaginn 2. nóv. – frá 11-14:00
- Fimmtudaginn 3. nóv. – frá 15-18:00
- Föstudaginn 4. nóv. – frá 11-14:00
- Laugardaginn 5. nóv. – frá 10-13:00
Þeir sem vilja fá bókina senda eru vinsamlegast beðnir að senda mér póst á gb@gudrunbergmann.is með upplýsingum um hvert á að senda hana.
ATH! Sending er á kostnað viðtakanda.
Hlakka til að afhenda ykkur HREINT Í MATINN 🙂
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar15. maí, 2026NÝTT TUNGL Í NAUTI 16.05.26
Greinar30. apríl, 2026VESAK TUNGLIÐ 2026
Greinar26. mars, 2026TVEIR ÁHRIFAVALDAR
Greinar23. mars, 2026FRÁ FRÆI TIL FRAMVINDU
